www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Dagur eitt á Roaccutan
Sunnudagur, 02. apríl 2006

roaccutan.jpg

Ég fór í morgun að kaupa mér töfra eitrið mitt og nauðsynlegt fylgidót og er búin að taka inn fyrsta dagsskammtinn. Læknirinn sagði að ef ég myndi fá svakalega mikinn höfuðverk ætti ég að hætta að taka lyfið strax. Traustvekjandi. Ég hef hinsvegar ekki fundið fyrir neinu. Ég reikna með að það komi til með að breytast eftir því sem dögunum fjölgar. Hann talaði samt eins og þetta með höfuðverkin myndi gerast um leið - ef það myndi gerast.

Ég er samt byrjuð að bera á mig varasalva á klukkutíma fresti. Djöfull er auðvelt að verða háður varasalva.

Vona auðvitað að ég sé svo baneitruð að ég finni ekki fyrir þessu.

Á föstudagsmorguninn fór ég í fyrstu blóðprufuna og gleymdi náttúrlega að vera á fastandi maga. Þessvegna ákvað ég að byrja ekki fyrr en í dag. Ég mátti byrja á föstudaginn en ég heyri í lækninum á morgun og get sagt honum að ég hafi verið búin að borða tvo heila bita af banana áður en ég fór í blóðprufuna og hann verður að meta hvort það sé nógu hræðilegt til að senda mig aftur.

Ég stórefa það.

Ég er þreytt en það er vegna þess að ég vakti lengi í gærkvöldi og ég er veik í maganum en það var komið áður en ég byrjaði að taka lyfið.

Mér reiknast svo til að með mánaðarlegum læknaheimsóknum til að taka (óþarft) óléttupróf, mánaðarlegri blóðprufu, lyfjunum, varasalva og þessháttar kosti þetta mig ca 7-7500 á mánuði.

Ég finn reyndar skrítið málmbragð í munninum en það gæti verið vegna þess að ég var að sleikja skrúfur.

Ætla að fara snemma að sofa.


| anna | 22:22 |
comments

Besti varasalvinn er að éta grillaðar kótelettur. Ef þú hefur ekki kótelettur, þá mæli ég með Lansinoh eða einhverju svipuðu sem inniheldur hreint lanolin. Tólg gæti líka virkað.

Nr. 1 | posted by: Elías | 2.04.2006 | 23:05:19 | [+] |

Við bíðum í ofnæmi eftir árangrinum, gangi þér vel!

Nr. 2 | posted by: DonPedro | 2.04.2006 | 23:22:47 | [+] |

Er byrjuð að senda þér reglubundna skammta af huglægum stuðningi.

Nr. 3 | posted by: Lindablinda | 2.04.2006 | 23:36:21 | [+] |

Eru pillurnar virkilega orðnar svo slæmar að það þurfi að smyrja þeim með vaselíni áður en þær eru étnar ? wink

Nr. 4 | posted by: Þór | 3.04.2006 | 0:35:33 | [+] |

Vaselín, roaccutan og varasalvi...
Cravings of a lunatic!

Nr. 5 | posted by: Langi Sleði | 3.04.2006 | 8:49:15 | [+] |

Mér finnst þetta nú algerlega kalla á röð af fyrir-á meðan-og á eftir myndum.
Það bara æpir á mann. Ég vil myndir, með húfu og alles.

En gangi þér annars MJÖG vel.
shy

Ég kann ekki að gera svona feitt sem þið Kalli eruð svo flink í.

Nr. 6 | posted by: Gestur | 3.04.2006 | 10:56:06 | [+] |

Anna, gætirðu ekki bara photoshoppað mynd af þér inn á Tourette Barbie, þá held ég að þetta væri komið (svona fyrir Gest): geltir (reiðin, eða hugsanlega depurð og söknuður eftir Bertie), segir lick me lick me (húð- og varaþurrkur kallar á slíkt), wide-eyed surprise and shock w/sound (þú lítur í spegilinn á morgnana) o.s.v.

En annars, gangi þér ógessla vel með kúrinn angel toungue

Nr. 7 | posted by: Atviksorða-Anna | 3.04.2006 | 12:05:01 | [+] |

Ég er sammála með myndaseríuna!
...sérstaklega langar mig að sjá húfuna sem þú býrð í.

Gangi þér voða voða vel. cool

Nr. 8 | posted by: Elín | 3.04.2006 | 12:25:03 | [+] |

Það verður ekki af lesendum mínum tekið hversu bjartsýnir þeir eru. Haldiði virkilega að hégómi minn komi ekki í veg fyrir að ég birti myndir af viðbjóðnum sem hefur tekið sér bólfestu í fésinu á mér?????

Come on.

Og ef ég birti mynd af mér með húfuna hættir mér að finnast ég vera ósýnileg með hana - blasir við.

HINSVEGAR.

Ef bólurnar fara og ég fer að fara út aftur húfulaus á meðal fólks skal ég birta mynd af mér með húfuna, no prob.

Þetta er flott húfa. Frumburðurinn brjónaði hana fyrir mig og trefil í stíl!

Annars langar mig að þakka þeim sem koma með góðar ábendingar varðandi þennan lyfjakúr. Ómetanlegt að fá svona reynslu annarra beint í æð, t.d. með hvaða krem ég á að nota og svona.

Ástarþakkir! smile

Nr. 9 | posted by: anna | 3.04.2006 | 13:27:41 | [+] |

þitt innra beib mun skína gegnum allar bólur heimsins - þú ert svo mögnuð kona smile

gangi þér vel

Nr. 10 | posted by: baun | 3.04.2006 | 13:43:53 | [+] |

Úff baun. Ég er nú ekki aaaalveg viss um að þetta sé rétt.. en takk. smile

Gestur. Nú geturðu gert feitt eins og ég og Kalli.

Þegar þú smellir á Bold kemur svona inní textagluggann:

<strong></strong>

og þú setur það sem þú vilt feitletra

<strong> hér á milli </strong>

-og þá verður það feitt. smile

Þetta eru eins og jöfnur.

Þessi jafna:

<strong>

segir að allt sem kemur hér á eftir eigi að vera feitletrað og það verður nákvæmlega þannig nema þú "lokir" jöfnunni með:

</strong>

Nú kanntu smá html! wink

Nr. 11 | posted by: anna | 3.04.2006 | 15:37:30 | [+] |

Ég geri þetta alltaf þegar ég er lág í járni.

Nr. 12 | posted by: anna | 3.04.2006 | 15:56:38 | [+] |

Passaðu þig bara að sleikja ekki þessar galvaníseruðu þá, væna wave

Nr. 13 | posted by: Kalli | 3.04.2006 | 16:00:28 | [+] |

Vá. Þetta skýrir svooooooo margt! sour

Nr. 14 | posted by: anna | 3.04.2006 | 16:05:25 | [+] |

Ég smurði á mig kremi frá Locobase á hverju kvöldi, þetta krem er til í nokkrum stigum. Efsta stigið heitir Repair - og það svínvirkaði.
Varð aldrei mjög mjög slæm á daginn vegna þessa.
Já og svo eru það gerfitárin...algjörlega nauðsynleg. og aldrei aldrei fara út án þess að taka eitthvað til að smyrja á varirnar...
Gangi þér vel! wave

Nr. 15 | posted by: Halldóra | 3.04.2006 | 20:41:15 | [+] |

Takk, hunang colgate

Segðu mér að þessir hnappar séu ný viðbót, og að mér hafi ekki sést yfir

þá
hingað til.

Nr. 16 | posted by: Gestur | 3.04.2006 | 21:14:03 | [+] |

Hnapparnir eru ný viðbót. Við „snillingarnir“ þurftum að gera þetta handvirkt hér í gamla daga wink

Nr. 17 | posted by: Kalli | 3.04.2006 | 21:16:39 | [+] |

weepy

Nr. 18 | posted by: Gestur | 3.04.2006 | 21:27:28 | [+] |

Bú, hú.

Nr. 19 | posted by: Gestur | 3.04.2006 | 21:28:44 | [+] |

Gjugg í borg

Nr. 20 | posted by: Gestur | 3.04.2006 | 21:31:01 | [+] |

Ó, var að gera smá tilraun, sýnist hún hafa komið út eins og italic.
weepy

Nr. 21 | posted by: Gestur | 3.04.2006 | 21:32:01 | [+] |

Hæ, hæ, hæ

Nr. 22 | posted by: Gestur | 3.04.2006 | 21:37:56 | [+] |

Afsakið
Þetta er búið núna. embarassed

Nr. 23 | posted by: Gestur | 3.04.2006 | 21:42:12 | [+] |

Takk, takk, ég vona að þetta gangi vel hja mér!

Ég smurði á mig kremi frá Locobase á hverju kvöldi, þetta krem er til í nokkrum stigum. Efsta stigið heitir Repair - og það svínvirkaði.
Varð aldrei mjög mjög slæm á daginn vegna þessa.
Halldóra: Ertu að tala um það sem þú berð á andlitið eða allan líkamann?

Nr. 24 | posted by: anna | 3.04.2006 | 21:50:13 | [+] |

og liti... weepy
Langar til að læra vefsíðugerð eru einhver námskeið í boði sem maður getur tekið með vinnu?

Nr. 25 | posted by: Gestur | 3.04.2006 | 22:37:02 | [+] |

Ég fór á tvö tveggja kvölda námskeið hjá Endurmenntun í grunn html og hef byggt allt sem ég kann á þeim grunni með aðstoð Internetsins og eðlislægrar forvitni.

smile

Nr. 26 | posted by: anna | 3.04.2006 | 22:39:50 | [+] |

Og piltar, hvað finnst ykkur um þessar lýsingar kvenna að rjóða sig allzgonar kremum... vúúúú
Don Pedro er til dæmis kominn með ofnæmi og kannski að verða örkumla vonar líka?
Er einhver að naga sig í handarbörkinn af spenningi?
Og hvar er Kalli???

Nr. 27 | posted by: Gestur | 3.04.2006 | 22:42:40 | [+] |

Já, forvitnin spillir ekki fyrir. Og þrjóskan!
Takk aftur, Anna smile happy

Nr. 28 | posted by: Gestur | 3.04.2006 | 22:45:55 | [+] |

Anna sagði mér einu sinni að stundum væri betra að þegja. Áður en hún sagði mér það var það nokkuð sem ég hef reyndar að tileinka mér. Hvað varðaði kremin þurfti ég eiginlega bara að bíta í tunguna. Eða puttana öllu heldur.

Ekkert vera að segja mér ef það er á allan líkaman, ok?

Nr. 29 | posted by: Kalli | 3.04.2006 | 22:48:08 | [+] |

It's alive!

Your wife, does she go?

Sjö heftiplástrar á munn.

Yfir. Og út.

chococat

Nr. 30 | posted by: Gestur | 3.04.2006 | 22:58:25 | [+] |

Nudge, nudge. Say no more, say no more. Know what I mean, know what I mean?

Nr. 31 | posted by: Kalli | 3.04.2006 | 23:11:44 | [+] |

Einmitt. laughing

Nr. 32 | posted by: Gestur | 3.04.2006 | 23:16:14 | [+] |
Sjö heftiplástrar á munn.

Stóð ekki einhvurn tímann í Tinnabók „Sjö teip á tungu kross“?

Það er flott þýðing.

Nr. 33 | posted by: Kalli | 3.04.2006 | 23:18:32 | [+] |

Ég á þá ósk enn óuppfyllta að sjá gjafvaxta og mannbæra konu rjóða sig vel staðinni hnoðtólg á allan kroppinn svo vel glanzi. Það þarf ég að upplifa áður en ég dey.

Nr. 34 | posted by: DonPedro | 4.04.2006 | 0:28:26 | [+] |

Það minnir mig á.. Burt Reynolds... og ég fékk smá hroll. clown

Nr. 35 | posted by: anna | 4.04.2006 | 0:32:34 | [+] |

Anna mín, það er bara eðlilegt að finna fyrir hroll þegar þú hugsar um Burt Reynolds. Maðurinn er kyntröll!

Kannski eitthvað annað en tólg en annars góð hugmynd, Don!

Erb Crandal: Why are you all shiny? Congressman David Dilbeck: It's Vaseline! Erb Crandal: Oh ho! Ohhh! It's Vas . . . great . . . it's Vaseline! Congressman David Dilbeck: You've never covered yourself with Vaseline? Erb Crandal: No, no, not unless I have third degree burns, no.

Vaselín er samt ekkert ofarlega á listanum...

Nr. 36 | posted by: Kalli | 4.04.2006 | 0:44:58 | [+] |

Oh... ég þurfti að slá á enter eftir hverri setningu þarna... sour

Nr. 37 | posted by: Kalli | 4.04.2006 | 0:47:46 | [+] |


Sjö teip á tungu kross...

Hvernig gat mig misminnt svona hryllilega?
Nú skil ég af hverju enginn fattar þegar ég segi sjö heftiplástrar á munn, Kalli. Fólk starir bara á mig.

Er'ida örugglega svona?

Get ég sem sagt orðað þetta svona og haldið fram að þetta sé hárrétt tilvitnun?

Nr. 38 | posted by: Gestur | 4.04.2006 | 9:15:22 | [+] |

bara andlitið..en ef þú ert þurr annarsstaðar þá er það líklegast í lagi...ég meina sko að utan verðu *hóst hóst* wink

Nr. 39 | posted by: Halldóra | 4.04.2006 | 11:50:21 | [+] |

Þar sem heimildirnar mínar eru ofan í kassa í bílskúrnum hjá pabba þori ég ekki að segja af eða á. Prófaðu bara að skipta hinu út og sjá hvort fólk kveikir á perunni wink

Nr. 40 | posted by: Kalli | 4.04.2006 | 13:31:59 | [+] |

segðu mér eitt, er slæmur af bólum sjálfur, roaccutan, getur maður fengið resept upp á það hjá heimilislækni?

Nr. 41 | posted by: kiddi | 5.04.2006 | 20:57:47 | [+] |

Kiddi: Nei. Þú verður að tala við húðsjúkdómalækni. Pantaðu tíma hjá einhverjum af læknunum á Húðlæknastöðinni, Smáratorgi 1 í Kópavogi. Síminn þar er 520 4400 en þú mátt búast við að þurfa að bíða smá eftir að fá tíma.

Gangi þér vel!

Nr. 42 | posted by: anna | 5.04.2006 | 21:00:40 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web