Laugardagur, 01. apríl 2006
Kvöldið í gær var magnað. Ég gerði nákvæmlega það sem ég sagðist ætla að gera. Skemmti mér hrikalega vel.
Ég hitti fellow bloggara og sagði honum það sama og líklega allir: pirrar mig svakalega að hann er ekki með kommentakerfi. Það sem hann sagði við mig var.. töff. Hann var í úlpu. Undantekningin sem sannar regluna því hann er ekki nörd. Fyrir það fyrsta var hann í mökk flottum jakkafötum innanundir og mér finnst fólk sem notar gleraugu töff. Enda nota ég gleraugu sjálf. Svona dags daglega allavega .
Hann var samt ekki jafn töff og ég. Hann var tvöfaldur. Ég var hinsvegar þreföld. Ég var í frakkanum hans Elíasar, jakkanum mínum og koktail kjól innanundir. Það toppar það engin nema maður í súperman búningi undir jakkafötunum. Það er bara þannig.
Í kvöld komst ég líka að því að það skiptir nákvæmlega engu máli hvernig fólk lítur út - á meðan það "cleans up nice".
Ég er búin að vera eins og dregin upp úr drullupoll í vinnunni og það virðist ekki registera.
Eða það skiptir hreinlega ekki máli.
Hvað veit ég. Nenni ekki að pæla í því.
Ég verð samt að viðurkenna að í kvöld fannst mér mest vænt um þegar ég hitti einn lesanda sem hefur ekki kommentað oft, en svona.. látið vita af sér öðru hvoru. Hann er bloggróni. Hann sagði mér að hann les mig á hverjum degi og að stundum skilur hann ekkert af því sem ég segi - en hann les mig samt!
Mig vantar nákvæmlega þannig mann. Sem skilur mig stundum ekki.. en vill samt hlusta á mig. Ég ætlast nefnilega ekki til þess að nokkur einasta manneskja skilji mig. Ég vil hinsvegar að það sé hlustað.
Sitthvor hluturinn.
Já og for the record. Þið vitið þetta kannski ekki.. en engin alvöru kona prumpar á almenningssalerni vitandi að það er einhver í næsta klefa. Það er bara ekki þannig. Alvöru konur myndu frekar DEYJA en að prumpa eins og físibelgur vitandi að önnur kona situr hinumegin við þilið.
it's a womans thing og ég KAUPI EKKI að það séu til hreinræktaðar konur sem gera annað. Nema þá á elliheimilinu.
Well. I've had my fun.
Ég er flutt á netið í óákveðin tíma.