Nr. 5 | posted by: igor |
29.04.2006 | 23:11:38 | [+] |
Úps!
Nr. 6 | posted by: igor |
29.04.2006 | 23:50:32 | [+] |
Úps hvað?
Nr. 7 | posted by: anna |
29.04.2006 | 23:53:17 | [+] |
Fyrirgefðu
Mér fannst þetta bara dáldið fyndið að þú skyldir ekki vita hvað staðurinn heitir. You need training
Ég þekkti staðinn á betrekkinu
Nr. 8 | posted by: igor |
29.04.2006 | 23:57:37 | [+] |
Já ég játa. Veit ekkert hvað veitingastaðir heita. Ég fer nánast aldrei á þá og þegar ég fer er það eins og að fara í tívolí eða carnival og með svona fólki.. hver tekur eftir hvað staðurinn heitir?
Það er svo margt sem ég hef aldrei gert og það er líklega margt sem ég kem aldrei til með að gera.
Núna t.d. er ég leið því þegar mér var gefið undir fótinn í gær fann ég hvað ég sakna þess mikið. Ekki að vera að gefið undir fótinn. Heldur að fá svona augnarráð. Sakna þess að fá svona augnarráð frá einhverjum sem mér þykir verulega vænt um.
Mér þykir ekkert vænt um manninn sem horfði svona á mig í gær en ég hef prufað hitt.
Ég er einmana og ég verð það áfram því ég fæ mig ekki til að taka þetta hjarta mitt úr frystinum. Það er kalið. Ég vil ekki vera særð svona aftur. Og ég kann enga aðra leið.
Nr. 9 | posted by: anna |
30.04.2006 | 0:08:00 | [+] |
Ég held btw að þú sért ekki Igor. Þú notar of mikið af brosköllum.
Nr. 10 | posted by: anna |
30.04.2006 | 0:16:45 | [+] |
Jú, ég er igor.
Ég var að reyna að bæta það upp hvað ég var vondur við þig og notaði meira af brosköllum en venjulega
Nr. 11 | posted by: igor |
30.04.2006 | 1:01:34 | [+] |
Hvenær hefur þú verið vondur við mig?
Nr. 12 | posted by: anna |
30.04.2006 | 1:02:51 | [+] |
Nú ertu erfið.
Ég var dáldið vondur að stríða þér á veitingahúsanafnþekkingarleysinu.
Nr. 13 | posted by: igor |
30.04.2006 | 1:05:45 | [+] |
Já það. Iss.
En ég fór að gráta.
Neeeeeeeeeeeeeei. Bara grín.
Nr. 14 | posted by: anna |
30.04.2006 | 1:11:16 | [+] |
Nr. 15 | posted by: igor |
30.04.2006 | 1:13:43 | [+] |
Anna, skila hér með kærum, hjartans kveðjum frá öllu fólkinu á myndunum hér að ofan. Þú og dúkkurnar voruð oft nefnd í dag. Og svo þú vitir af því, Shaun fékk svo mikið samviskubit yfir "can we burn her?" commentinu að þau hjónin sváfu varla í nótt.
Það gengur náttúrlega ekki að Shaun sé með svona samviskubit. Sagðir þú honum ekki að mér hafi þótt þetta ferlega fyndið? Ég sé þetta svo fyrir mér. Öll cramped í svona litlu herbergi, fullt af skrítnum hlutum og hápunktur kvöldsins... er þegar nornin er brennd í garðinum.
wahahahahaha
Nr. 17 | posted by: anna |
30.04.2006 | 8:53:47 | [+] |
Þú ert nú meiri dísin.
Nokkrar vikur á Roaccutan! Lýsingarnar eru stórkostlegar á hræðilegri afskræmingu þinni og ljótleika. Þú ert blóðrisa skrímsli með bóluflösu....
en........ nærð samt að fá vel gefna og gerða gaura til að gefa þér auga, senda þér auga og sparka í fæturna á þér á daðurslegan hátt. Kannski þú sért norn
Ég er auðvitað norn, það er engum blöðum um það að fletta.
Bólurnar eru eiginlega farnar, það sem eftir er.. eru ljótir brúnir blettir í andlitinu á mér sem eiga eftir að jafna sig. Það er hinsvegar hægt að fela þá.
Ég fíla Munchausen í botn og vissulega er síðan mín undir áhrifum frá honum - en stundum er sannleikurinn bara eins og hann er og ég veit alveg hvenær mér stendur lay til boða og hvenær ekki.
Nr. 19 | posted by: anna |
30.04.2006 | 11:43:12 | [+] |
Oh...kvenlegt innsæi... af hverju get ég ekki skynjað svona? Fyrsta vísbending sem ég skynja er ef tungu er stungið oní kok á mér að óvörum.
Hefur nákvæmlega ekkert með innsæi að gera en gæti haft töluvert með þá staðreynd að gera - að konur eru oftast ca tíu sinnum leiknari við að lesa líkamstjáningu en karlmenn.
Samt.. come on Kalli. Ætlastu til þess að við trúum því að engin kona hafi ever horft á þig með svona sultry look í augunum?
Nr. 21 | posted by: anna |
30.04.2006 | 13:22:24 | [+] |
Jújú, en ég bara fatta það yfirleitt ekki nema bara kannski viku seinna.
Nr. 23 | posted by: anna |
30.04.2006 | 13:25:53 | [+] |
Prófaðu að hætta að gjóa augunum og horfa beint fram, Kalli.
Þessi með tunguna og kokið er ótrúlega fyndin lýsing. Ekki síst því margar konur tala einmitt þannig um karla sem ekki eru sérstaklega næmir í ástarleikjum. Svona bulldozera, sem bara æða áfram.
Æ auðvitað máttu það Lifur! Þú mátt það. Við getum geymt hann útá svölum. Eða hent Margeiri útá svalir og Gollum verður í baðkerinu. Mér finnst að hann eigi að fá að velja.
Hvað finnst þér?
pils
kjóll
gallabuxur?
Nr. 31 | posted by: anna |
30.04.2006 | 14:23:47 | [+] |
svarid vid spurningunni thinni er augljóslega: d) rodsamfestingur.
En ég er sammála Kalla, Gollum aettum vid ad hafa í kjól og hann aettum vid ad sjálfsogdu ad geyma í hjólageymslunni!
Hvað eigum við þá að gera við þessa fimm sirkus dverga sem Margeir er búin að draga heim og setja í hjólageymsluna? Ha? Það fer að líða að því að þú þurfir að koma á húsfundi hérna og verja gjörðir hans.
Nema þú sért að tala um hjólageymsluna ÞÍNA. En þá get ég lofað þér að Margeir verður geðveikt afbrýðisamur. Ég held að hann sé nógu trekktur fyrir.
Nr. 34 | posted by: anna |
30.04.2006 | 15:00:15 | [+] |
Þetta er ekkert Gestur. Um daginn fékk ég tölvupóst frá þremur mönnum sama daginn PLÚS.. Lifur mætti á svæðið.
Þetta er kosmískt. En Lifur var sá eini sem fékk náð fyrir mínum augum. Enda er ég í fjarbúð með manninum. Kannski er það þessvegna sem ég hef engan áhuga. Ég er í "off the market" mode. Vantar bara hringinn.
Sem minnir mig á.. Lifur. Hvernig var þetta með hringorminn? Hann kom aldrei.
Nr. 35 | posted by: anna |
30.04.2006 | 15:06:39 | [+] |