www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
IceWeb2006 - the superheroes
Laugardagur, 29. apríl 2006

Fyrir ekki löngu síðan fékk ég sendingu frá amazon. Bækur sem ég var búin að hafa lengi á óskalistanum. Meðal annars Web ReDesign 2.0: Workflow that Works. Ég las bókina alla í einum rykk og af því loknu, skoðaði ég mynd af höfundinum þar sem hún er með laptop-inn að vinna og ég hugsaði. Vá. Þetta er alveg frábær kona. Ég ætla að hitta hana einhvertíma.

Bókin hennar er góð og hún er alveg hörku fyrirlesari. Reyndar fannst mér fyrirlestur Dave Shea bestur, vegna þess að hann var að fjalla um CSS og það er akkúrat það sem ég var að fara að læra næst - betur. Ég kann smá CSS, nóg til að stílisera texta en ég nota ennþá töflur. Reyni að nota ekki mikið af þeim (og það er bannað að skoða kóðann og hlæja að mér! hehehe) Dave var sannarlegur innblástur og ég hef alltaf verið pínu hrædd við CSS, af því ég þekki töflur en að heyra hann fjalla um þetta var þvílíkt boost. Ég veit að ég kann ekki mikið í css, en ég veit að ég verð ekki lengi að tileinka mér það.

Uppúr hádegi á ráðstefnunni kom Hugi að máli við mig og sagði mér að hann langaði að gefa fyrirlesurunum eitthvað sérstakt frá Íslandi, spurði hvort ég gæti útbúið Galdradúkkur fyrir þá. Mér fannst þetta alveg rosalegur heiður og fór beint heim þegar síðasti fyrirlesarinn hafði klárað, til að búa þær til.

Þegar ég var í þann mund að leggja lokahöndina á dúkkurnar sá ég sms frá Huga þar sem hann bauð mér að koma með þeim út að borða í kvöld og ég ákvað að fara. "Ákvað að fara", meina.. nokkrir fremstu vefgúrúar HEIMS. Come on. Hver segir nei við svona boði? Ha?

Doddi var hjá Júlíu og Jóhanna hjá vinkonu sinni svo það var ekkert mál. Á matsölustaðnum afhenti Hugi þeim galdradúkkurnar sem voru sérútbúnar með nörda-vef-frösum og þau voru svo ánægð! Vá. Þarna var Kelly Goto, Eric Meyer, Shaun Inman, Joe Clark og Dave Shea - með galdradúkkur. Og þau voru í skýjunum. Eric faðmaði mig meira að segja. Kannski af því ég setti nafnið "Alex Robinson" á hans dúkku, svona smá bónus. Nú getur hann fengið útrás fyrir frústresjónir sínar útí manninn. Ég fíla Eric. Hann er ferlega fyndinn.

Ég fíla þau reyndar öll. Þetta er yndislegt fólk og með eðal húmor. Algerlega laust við hroka og yfirlæti. Ég held að það sé eitthvað við þetta netsamfélag. Get ekki beinlínis útskýrt það.. en ég held að þegar þú ert búin að vera mikið á vefnum og hefur kynnast svona mörgu hjálplegu og yndislegu fólki, eins og t.d. ég hef gert, þá breytir það viðhorfi þínu til mannkynsins. Eins og einn af stofnendum ebay.com sagði ca "einn og hálfur milljarður fólks verslar við ebay. Það er einn og hálfur milljarður manna sem hefur lært að treysta ókunnugu fólki.

Það er nefnilega magnað.

Hugi hélt ræðu eftir matinn, þakkaði þeim fyrir að koma og sagði þeim hvað allir væru ánægðir með hvernig til tókst og svo sagði hann þeim að hann langaði að gefa þeim svolítið mjög sérstakt í kveðjugjöf og hann er svo heppin að nágranni hans er norn, ein af þeim fáu sem kirkjan náði ekki að brenna. Þá sagði Shaun: "so we get to burn her!"

Það sprungu gjörsamlega allir úr hlátri.

Mér finnst svo magnað að hugsa til þess að konan á myndinni í bókinni, sem ég lít svona upp til, komi til með að hafa galdradúkku frá mér einhverstaðar uppá vegg, og ekki bara hún. Mér finnst magnað að hafa aðgang að fólki sem er svona vel að sér á þessu sviði sem ég hef svona brennandi áhuga á og það magnaðasta af öllu mögnuðu er..

..já. Ég get reyndar ekki farið útí það strax á opinberum vettvangi. Segjum að ég gæti hafa vanmetið verðgildi þekkingar minnar og líf mitt gæti verið að taka alveg nýja stefnu.. eftir nokkra mánuði. Allt undir mér komið auðvitað og hvað ég er dugleg að vinna í að tileinka mér CSS.

Og ég er alveg óhugnanlega fljót að læra hluti sem ég hef áhuga á, svo fékk ég líka mjög gagnlegar ábendingar frá Dave sjálfum.

Ég er svo þakklát Huga fyrir að hafa boðið mér með í kvöld og fyrir að hafa staðið fyrir þessari ráðstefnu. Hann er ofurhetja.

Þetta er ógleymanlegt kvöld. Ógleymanlegt.


| anna | 3:39 |
comments

Til hamingju með þetta og mig langar að segja, I told you so.

Hvað meina ég með því?

Jú, þú varst að uppskera eins og þú sáðir.

Einhver myndi segja að það hafi verið einstök tilviljun að þú hafir fengið að hitta þetta fólk og það hafi leitt til...

Nei, auðvitað engin tilviljun. Öll þín vinna, ákafi, metnaður, greind, sjálfstraust, o.s.frv. á þessu sviði gerði það að verkum að þú stóðst frammi fyrir tækifæri.

Tækifæri sem hefði komið hvort sem er og einhver annar hefði gripið en það varst þú, engin annar en þú, sem greipst það. Og það var ekki tilvljun. Þú varst tilbúin þegar tækifærið kom.

Ég er stoltur af þér.

Igor

E.s. en fékkstu þér humar?

Nr. 1 | posted by: igor | 29.04.2006 | 9:44:26 | [+] |

Og þetta að gefa þeim Galdradúkkurnar er auðvitað frábær hugmynd. Tær snilld.

Nr. 2 | posted by: igor | 29.04.2006 | 9:50:25 | [+] |

Til hamingju með þetta mín kæra. Þú átt þetta svo sannarlega skilið. Gott er að eiga góða að og mér sýnist þú hafa verið í fantafínum félagsskap. Húrra fyrir ykkur öllum! smile

Nr. 3 | posted by: Lindablinda | 29.04.2006 | 10:14:16 | [+] |

Mundu bara eftir okkur hinum, þar sem þú trónir á toppi CSS heimsins, að ofmetnast ekki og fyllast hroka og drambi gagnvart þeim sem rétt vita að CSS stendur fyrir Cascading style sheets.

Þið munið vilja eiga vinina ykkar áfram þegar peningar, eilíf html partí og root fullnægja ykkur ekki lengur. Ég sé þessa sömu tendensa í Huga, þetta heitir að vera stjörnusleginn. Ég óska ykkur velfarnaðar, enn munið alltaf hver þið eruð, heimur intenetsins er harður, og hefur skilið marga eftir eins og úrelt format á diskettu.

Heillaóskir,
Samviskan ykkar, kvikmyndagerðamaður fræga CSS fólksins...

Nr. 4 | posted by: DonPedro | 29.04.2006 | 10:19:46 | [+] |

Got root?

wink

Nr. 5 | posted by: Kalli | 29.04.2006 | 10:54:37 | [+] |

Og afhverju get ég ekki kommentað á kynhvötina þína lengur, Anna?

Nr. 6 | posted by: Kalli | 29.04.2006 | 10:57:32 | [+] |

Takk fyrir síðast Anna. colgate

Igor mælir lög í fyrstu færslunni. Og Pedro vertu ekki með þetta væl, við Anna erum búin að sjá að ég við þurfum ekki gömlu vinina lengur, nú þegar við þekkjum frægt fólk.

Ég ætla að halda áfram með þetta stórskemmtilega CSS-skjal með nýju vinunum núna, það verður sýnt á Broadway í sumar.

Nr. 7 | posted by: Hugi | 29.04.2006 | 11:34:38 | [+] |

Ég sé alveg Huga fyrir mér að henda CRT skjá útum hótelglugga eftir að drekka flösku af cask strenght Laphroaig colgate

Nr. 8 | posted by: Kalli | 29.04.2006 | 13:10:49 | [+] |

Æ takk you guys en ég er sko ekki að verða rík (á þann mælikvarða sem þið eruð að tala um) eða heimsfræg eða að fara ferðast um heiminn og miðla reynslu minni. Ég hef orðað þetta of eitthvað.. já.

Og ég hvað eru þið eiginlega að tala um? Ég umgengst frægt fólk alveg endalaust og hef alltaf gert. Þetta er orðið partur af mínum lífsstíl. Er Jude ekki frægur? DonPedro? Spacey? Hugi? Jack? Igor? Harpa? Jennifer? Kalli? Lifur? Gestur? Lindablinda? Simmi? Clinton? svo einhverjir séu nefndir.

Engin heilvita manneskja myndi segja nei við matarboði með þessu fólki.

Ég fékk humar, já. smile

Nr. 9 | posted by: anna | 29.04.2006 | 14:34:15 | [+] |

Ég er ekki frægur. Ég er alræmdur.

Nr. 10 | posted by: Kalli | 29.04.2006 | 14:44:47 | [+] |

Af endemum ? wink

Anna - til hamingju með áframskrið í lífinu og tilverunni smile Þér veitti af því happy

Nr. 11 | posted by: Þór | 29.04.2006 | 14:56:42 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web