www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
Ótrúlegar niðurstöður!
Þriðjudagur, 25. apríl 2006

fjolublatt.jpgÉg var í fimm klukkutíma að setja saman þessar spurningar og þetta er líklega ein vísindalegasta könnun sem ég hef á ævi minni haft á forsíðu.

Aldrei fyrr hef ég komist að svona miklu um lesendur mína og ég hef þegar fengið beiðnir frá háskólum héðan og þaðan úr heiminum þar sem falast er eftir því að nota niðurstöðurnar í lærðum greinum.

Þetta er ekki einfalt og ég veit ekki hvort ég get komið þessu í orð, en ég mun reyna.

Fyrsti valkosturinn er "rauður er betri en blár". 22% kusu þennan valmöguleika. Þetta fólk er ástríðufullt, einlægt og það er hægt að treysta því.

"Grænn er blautur" 8.5% völdu þennan möguleika en þetta er mjög abstrakt þenkjandi fólk sem á framtíðina fyrir sér í raungreinum.

"Fjólublátt er ekki svart". Flestir kusu þennan möguleika, eða 34,1%. Þetta er fólk sem hefur allt sitt á hreinu.

"Blátt er gaman". 18% lesenda síðunnar minnar eru klámfíklar.

"Svart er ekki". 11% lesenda síðu minna eru í afneitun.

"Hvítt er litlaust". 6,1% lesenda hata ekkert meira en að falla inní fjöldann.

Já. Magnað.

Ég bið ykkur að kjósa á forsíðu, ég get ekki ákveðið þetta. (sjá færsluna hér fyrir framan)


| anna | 0:32 |
comments

Með allt á hreinu wink

Nr. 1 | posted by: Lindablinda | 25.04.2006 | 8:44:50 | [+] |

Á praktískum nótum varðandi vonda endurskoðandann: Ég held að það verði alltaf erfitt að bera fram nafn þar sem tvö orð sem byrja á c og k eru lögð hlið við hlið.
Meira að segja þó að það eigi að hljóma í huganum.
Þess vegna er King Accountant Calculus með flottustu hrynjandina. Í hinum möguleikunum eru þessir tveir samhljóðar alltaf hlið við hlið.
Nú er ég til dæmis bara að hugsa um þegar sagan verður lesin í útvarp, leikin í útvarpi, í sjónvarpi og á sviði. Til dæmis.

Nr. 2 | posted by: Gestur | 25.04.2006 | 9:16:28 | [+] |

En.. hvað mátti þá Heinrich Himmler segja?

Gengur ekki alveg að hann heiti King Calculus en alltaf þegar hann sér einhvern aumingja með hor og slef gera góðverk eða hjálpa einhverjum að svíkja undan skatti, þá breytist hann í KING ACCOUNTANT CALCULUS og deyfir hann með bréfaklemmu og sagar af útlim.

Á ég ekki að láta hann reykja líka? Kannski er hann svona vondur vegna þess að hann fékk ekki skárra nafn en King Calculus við fæðingu og neyddist því að leggja fyrir sig reikningshald og þesslags.

Þessar ofurhetjur verða alltaf til í æsku. Kannski dó pabbi hans úr leiðindum þegar hann var að gera skattskýrsluna. Bara tillaga.

Nr. 3 | posted by: anna | 25.04.2006 | 9:21:29 | [+] |

Var að velta fyrir mér hvort þú gerðir þér grein fyrir að "calculus" heitir "örsmæðareikningur" á íslensku? Hljómar ekki mjög ofurhetjulega. really sad

Nr. 4 | posted by: beggi dot com | 25.04.2006 | 10:28:46 | [+] |

... sem gæti auðvitað verið traumað sem hann varð fyrir í æsku. wink

Nr. 5 | posted by: beggi dot com | 25.04.2006 | 10:29:45 | [+] |

Ég þjáðist af valkvíða... var oft að því komin að velja fyrsta eða þriðja valmöguleikann en gat ekki valið á milli þeirra. Ég er sem sagt ástríðufull og einlæg manneskja með allt á hreinu. Já, já... það passar alveg cool

Nr. 6 | posted by: Sigga | 25.04.2006 | 13:54:08 | [+] |

Himmler já, einmitt. En það sem truflar kannski meira hér er að Calculus er með kái í seinna atkvæðinu líka.
Og vel við hæfi að hann sé að glíma við svokallaða
frumskemmd úr barnæsku. Annars skilst mér að mæðrum sé ævinlega kennt um slíkt.

Nr. 7 | posted by: Gestur | 25.04.2006 | 15:05:22 | [+] |

18% wave

Nr. 8 | posted by: Andri | 25.04.2006 | 15:15:35 | [+] |

úff nú get ég sofið rólega vitandi að ég er með allt á hreinu, var nebbla ekki viss embarassed

Nr. 9 | posted by: Lesandi | 25.04.2006 | 23:48:47 | [+] |

Ótrúlegar niðurstöður segir þú, anna. Þær eru alltaf skemmtilegar kannanirnar þínar og gefa manni mikilvægar vísbendingar. Um allt og ekkert.

En hvað með þetta.

Skv. hinu virta tímariti TIME, 17. apríl 2006, þá ætla væntanlegar brúðir í 59% tilvika að hafa samfarir á brúðkaupsnóttina.

En hvorki meira né minna en 28% ætla aðeins að sofa.

Ekki kom fram hvað restin, 13% ætla að gera. Clues?hmmm

Konur í 17 ríkjum Bandaríkjanna voru spurðar.

Einnig kom fram að 16% ætla sér að verða óléttar sömu nótt. Ég reikna með að þær séu hluti af þessum 59% og skýri því ekki þessi óútskýrðu prósent?

Nr. 10 | posted by: igor | 27.04.2006 | 0:30:15 | [+] |

Það er nú ekkert ólíklegt, m.v. stöðu trúmála og kynlífsfræðslu í USA, að einhver hluti þessara kvenna ætli sér að verða óléttar án þess að stunda kynlíf.

Nr. 11 | posted by: Kalli | 27.04.2006 | 0:50:45 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web