www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Lögfræðingar
Mánudagur, 10. apríl 2006

Var að frétta að það hafi maður gert sér ferð hingað í síðustu viku sérstaklega til að þakka mér fyrir ráðleggingar mínar varðandi málaferli sem hann stóð í fyrir stuttu.

Hann vann málið, eins og mig grunaði reyndar að hann myndi gera. Hann deildi ekki þeim grun með mér og hefur líklega þessvegna verið svona kátur.

Ég er ekkert smá ánægð að frétta þetta.

Í fyrsta sinn sem ég fór á fund með viðskiptafræðingi, sem var fyrir ca fimm árum síðan, var ég svo rökföst og ákveðin að maðurinn spurði mig í lok fundarins "ert þú lögfræðingur fyrirtækisins?".

Mér fannst þetta alveg ferlega fyndið, þó ég hafi auðvitað ekki hlegið að honum. Sérstaklega í ljósi þess að ég hafði nýlega ákveðið að verða ljóshærð, með skelfilegum afleiðingum. Var með stutt, hlandgult hár sem ég hafði ekki greitt þennan morgunn því ég svaf yfir mig svo það stóð út hægra megin pínu eins og lítill hanakambur á röngum stað á hausnum á mér og vinstra megin var hárið niðursleikt eins og ég væri með nylonsokk yfir því. Samt ekki ósvipað og hártískan er í dag svo það má segja að ég hafi bara verið á undan minni samtíð.

Ég leit nákvæmlega ekkert "lögfræðilega" út - meira eins og uppvakningur úr hryllingsmynd - en var dugleg að nota frasa eins og "með tilliti til", "með hliðsjón af", "að því gefnu" og "í góðri trú".

Því miður veit ég ekki hvort það var. Hryllilega ógnvekjandi útlit mitt, orðalag eða rökfestan sem hrakti aumingja manninn útí horn.

Who cares. Niðurstaðan var mér í hag - eða fyrirtækinu öllu heldur.


| anna | 9:41 |
comments

Litli lögfræðingurinn! Geturðu ekki bara fengið þér skilti og opnað bissness? evil

Nr. 1 | posted by: Lindablinda | 10.04.2006 | 10:20:41 | [+] |

Norn = lögfræðingur? Nei, ég er bara að velta vöngum... embarassed

Nr. 2 | posted by: Kalli | 10.04.2006 | 13:39:20 | [+] |

Ekki segja þetta Kalli. Lögfræðingar geta aldrei verið nornir. Við búum einfaldlega ekki í þannig heimi! cool

Nr. 3 | posted by: anna | 10.04.2006 | 14:14:54 | [+] |

Uppvakningur úr hryllingsmynd. Skrýtið en það er akkúrat sú mynd sem ég hef af lögfræðingum. Brainless zombies sem gera hvað sem er fyrir næsta bita...

Nr. 4 | posted by: Andri | 10.04.2006 | 14:39:44 | [+] |

Já þú meinar.. að ég hafi looked the part! evil drunk

Nr. 5 | posted by: anna | 10.04.2006 | 14:43:39 | [+] |

Já Anna mín, það er nú ekki að ástæðulausu að ég fékk þig með mér að hitta hann Inga minn um daginn angel

P.s. Vil samt taka það fram að ég er ekki lesbísk laughing

Nr. 6 | posted by: Harpa | 10.04.2006 | 15:41:14 | [+] |

Það er kannski rétt að taka fram að Ingi er ólesbískur lögfræðingur með skollitað hár.. hmmm

Nr. 7 | posted by: anna | 10.04.2006 | 15:44:20 | [+] |

Ég fæ nú ýmsar hugmyndir við að lesa að Harpa hafi tælt Önnu til að hitta með sér lögfræðing... doubt

Nr. 8 | posted by: Kalli | 10.04.2006 | 18:25:30 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web