www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Katla
Þriðjudagur, 11. apríl 2006

Sjáiði hvað börnin mín eiga fallega systur.

Ég hef nú bara aldrei séð svona mikið hár á nokkru barni. Efast ekki um að þetta verði mikil kvenskörungur, hún á nú ekki langt að sækja það.

Mér sýnist hún vera alveg einstaklega vel heppnuð og hlakka til að fylgjast með henni í framtíðinni.

Þessi litla dúlla, fáiði ekki sting í hjartað?


| anna | 14:46 |
comments

Gersamlega. Hún er æðisleg.

Nr. 1 | posted by: parisardaman | 11.04.2006 | 15:03:51 | [+] |

Rosalega er hún sæt, fæ sting og heyri bjölluhljóm.

Nr. 2 | posted by: Elma | 11.04.2006 | 15:44:46 | [+] |

Eru fleiri karlmenn en ég sem verða skíthræddir við að lesa þessa færslu og kommentin á hana? embarassed

Nr. 3 | posted by: Kalli | 11.04.2006 | 18:24:45 | [+] |

Af hverju hræddur Kalli? Ég er í alvöru mjög forvitin að vita það vegna þess að ég skil ekki alveg af hverju..

Finnst þér þetta ekki fallegt barn?

Nr. 4 | posted by: anna | 11.04.2006 | 19:27:57 | [+] |

Jújú, en börn bara hreyfa nánast ekkert við mér. Þessar heilastöðvar sem eiga að sjá um að bræða mann eins og smjör við að sjá ungabörn eru óvirkar í mér.

Hræðslan stafar af því að alltaf þegar saman koma konur og ungabörn heyri ég klingið í eggjastokkunum alla leið yfir heimsalvefinn. Það hins vegar triggerar svona fight or light mechanism. Hún er fullvirk hjá mér og stillt á „flight“.

Nr. 5 | posted by: Kalli | 11.04.2006 | 19:31:08 | [+] |

Það er öruggast. Maður vill ekki að þetta sé stillt á „fight“ þegar börn eru annars vegar...

Nr. 6 | posted by: Kalli | 11.04.2006 | 19:35:17 | [+] |

True..

Nr. 7 | posted by: anna | 11.04.2006 | 19:36:32 | [+] |

isss... þetta eru bara stælar í Kalla. Það kom nú við hjartað í honum þegar sonur minn fékk hlaupabólu, þó þeir þekktust ekki neitt ! Kalli fórnaði PS vélinni sinni til mín í nokkra daga wink Krakkar bræða hann eins og aðra.

Nr. 8 | posted by: Sigga | 11.04.2006 | 21:01:57 | [+] |

Nei, nei. Það er bara af því að ég er góðmenni. Ekkert að rugla þessu saman. Svo skulum við ekki heldur gera of mikið úr þessu því vélin mín var ekki í notkun þegar þetta gerðist angel

Nr. 9 | posted by: Kalli | 11.04.2006 | 21:08:16 | [+] |

Kalli, ég rek þetta þveröfugt ofan í þig og út um niflungahringinn á þér aftur þegar þú verður pabbi.

Nr. 10 | posted by: DonPedro | 12.04.2006 | 0:37:00 | [+] |

...þegar þú verður pabbi.

Ég ætla að reyna að gefa þér ekki tækifæri til þess.

Nr. 11 | posted by: Kalli | 12.04.2006 | 0:40:15 | [+] |

Ég þvertek fyrir að ómur berist úr mínum eggjastokkum. Ég er búin að þessu og myndi ekki hika við að notfæra mér lög og læknavísindi til að eyða öllum grjónum sem tækju upp á því að skjóta rótum í gegnum eina skotheldustu getnaðarvörnina á markaðnum í dag.

Nr. 12 | posted by: parisardaman | 12.04.2006 | 7:52:17 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web