Mánudagur, 10. apríl 2006
Í ár gerði ég samning við börnin mín. Þau fá venjulega ca fjögur páskaegg nr 4 frá öfum og ömmum og foreldrum, en í ár fá þau bara eitt páskaegg.
Já bara eitt. Númer sjö.
Afi þeirra vill gefa þeim tölvuleik í staðinn fyrir páskaegg. Þau fá einn leik saman. Ég spurði þau áðan hvaða leik þau vildu fá...
Doddi: "ÉG VEIT! JACK ÞRJÚ!"
Jóhanna: "Nei."
Doddi: "JACK TVÖ!"
Jóhanna: "Nei."
Doddi: "JACK EITT!"
Jóhanna: "Nei."
Anna: "JACK: THE EMBRYO!"
Jóhanna: "Nei."
Anna: "JACK: THE GLINT IN THE MILKMANS EYE!"