Fimmtudagur, 27. apríl 2006
Í dag og á morgun eru Samtök vefiðnaðarins, SVEF, að halda stærstu ráðstefnu sem haldin hefur verið á Íslandi um vefmál. Það er mikill metnaður þarna, fyrirlesararnir sem þeir eru búnir að fá eru bara klikkað góðir og ég get ekki beðið eftir að drekka í mig allt sem þeir segja.
Ég mun taka litlu svörtu hugmyndabókina mína með mér á þetta dæmi.
Annars byrjaði ég daginn á að brjóta óvart lítinn kertastjaka úr gleri og núna er hann í þúsund molum á gólfinu inní herberginu mínu. Í honum var kertið sem fylgdi fávitafælunni og ég hef smá áhyggjur af því.
Margir karlmenn á þessari ráðstefnu.
Ég er ekki að segja að allir karlmenn séu fávitar. Langt því frá. Nærvera mín í raunheimum virðist hinsvegar laða fávitana að eins og flugur að hunangi og þessi fávitafæla þrælvirkar. Ég hef ekki orðið fyrir alvarlegu áreiti frá fávita síðan ég keypti mér hana, tel ekki með þessi sms sem smiðurinn þreytist ekki á að senda mér. Stórmerkilegt. Ég sagði honum þegar hann hringdi þarna í þetta eina skipti til að bjóða mér út að ég myndi aldrei fara með honum á stefnumót. Ég byrjaði reyndar á að vera kurteis og segja "nei en takk fyrir að bjóða mér", en það var ekki nóg. Ég endaði á að gefa upp nánari upplýsingar um stöðuna, eins og þær.. að þetta kemur einfaldlega aldrei til með að gerast.
Ég er heiðarleg manneskja, færi ekki að ljúga þessu að manninum.
Þá sagði hann mér að ég væri bara ótemja og hann kynni sko alveg á svoleiðis því hann er hestamaður. Sagðist ætla að finna sér stein, setjast á hann og bíða þangað til ég gæfist upp og kæmi til hans.
Aha. Yeah.
Hann er ennþá á steininum en ég vona að hann fari að skilja að mér var full alvara þegar ég sagði þetta svo hann hætti nú þessum eilífu fimmaurabrandara sendingum sínum. Get lítið gert annað en að ignora þetta, ekki dettur mér í hug að svara. Sms-in sem ég fæ frá e-kortinu fullnægja mínum sms skeyta viðtökuþörfum fullkomlega - auk þess leiðist mér þessi samskiptamáti alveg ósegjanlega mikið og finnst hann ofnotaður. Önnur eins uppspretta misskilnings og leiðinda á milli elskenda á okkar tímum er vandfundin, sms skeytasendingar tróna þar á verðlaunapalli með gullið um hálsinn.
Ég er hinsvegar engin helvítis ótemja, bara mjög vandlát á knapa.