Sunnudagur, 16. apríl 2006
Við erum búin að vera að spila cluedo.
"I'm gonna kill you, kill you KILL YOU!" sagðí Doddi við systur sína á meðan hún stokkaði spilin.
"Now this has been shuffled", sagði Jóhanna og lagði spilin niður.
"-and when you're dead.. you'll never shuffle again", sagði Doddi eins og narratorar í bíómyndum gera.
Hann er svo fyndinn.
Ég er búin að opna öll páskaeggin mín og ná í málshættina úr þeim. Bólurnar mínar hafa grátið í allan morgun - því ég er ekki búin að borða neitt af þessum páskaeggjum og reikna fastlega með því að ég geri það ekki. Ég var að senda börnin út til að ná eitthvað af sykrinum úr systeminu en.. þetta eru málshættir ársins:
Iðjuleysi er rót alls ills
Augað eru spegill sálarinnar - var þetta ekki "augun" hér í gamla daga?
Segjanda er allt sínum vin (Úr Egils sögu)
Þetta síðasta þýðir víst að maður getur sagt vinum sínum allt.
Ég vildi óska að þeir hættu að hafa svona mongo málshætti eins og úr Egils sögu. Væri nær að nota Stormsker, eins og t.d.
"Oft er holdsveikum laus höndin"
"Oft fellur fjallgöngumaðurinn í góðan jarðveg"
"Oft verður dvergurinn undir í lífinu" - (ég falsaði þennan inní eggið sem ég gaf Margeiri. Já ég gaf honum egg. Ég er ekki alvond.)
"Margur verður af aurum ríkur"
"Illu er best ólokið"
"Margur gefur skít í klósett"
"Mörgum þykir danska hið versta mál"
"Best er að drekka í skemmtilegu hófi"
"Ekki gengur að vera fótalaus"
"Sjaldan fellur róninn langt frá flöskunni"
"Blindur er sjónlaus maður"
"Erfitt er að drekkja fiskum"
"Oft reynast minnkar bestu skinn"
Að lokum er hér einn sem er samin af fyrrverandi eiginmanni mínum en honum rataðist þetta á munn í Kringlunni:
"Oft eru laus stæði fyrir fatlaða"
Gleðilega páska!