Föstudagur, 21. apríl 2006
Á morgun, 22. apríl, verð ég búin að skrifa ravings of a lunatic í fjögur ár og deila með ykkur hamingju og sorgum, bulli og sannleika í samtals 2052 færslum.
Þegar ég var að setja síðuna mína upp síðast opnaði ég myndamöppuna í thumbnail ham og við mér blöstu smámyndir af þeim myndum sem ég er með á síðunni. Mér fannst svo gaman að sjá þær allar þarna að ég ákvað að búa til mynd úr þeim og birta. Bætti við nokkrum myndum sem voru þarna inni óbirtar og líka nokkrum sem stóð aldrei til að skrifa um.
Allar myndirnar, fyrir utan þessa þar sem ég er með grænu slæðuna, eru teknar á þessu fjögurra ára tímabili. Þessi með slæðuna var hinsvegar fyrsta myndin efst í vinstra horninu á anna.is og Organistinn myndi aldrei fyrirgefa mér ef ég léti hana ekki fljóta með - en svona líta þessi fjögur ár út.. í myndum.

Lag vikunnar langar mig að tileinka lesendum anna.is fyrr og síðar - og þó ég geti líklega aldrei gefið til baka allt það sem þið hafið gefið mér.. þá ætla ég ekki að hætta að reyna.