Ég er nú ekki það illa haldin að ég sé lögst á broskallana og farin að refsa þeim. Enda ættu þeir þá frekar að refsa mér ef eitthvað réttlæti væri til í heiminum.
Ég hitti ekki Lifur en ákveðnir atburðir sem bárust mér til eyrna benda til þess að Lifur lífs míns sé ekki sú Lifur sem ég hélt að hún væri - sem skiptir í raun ekki máli. Ég ætla ekki að segja mig úr þessari fjarbúð þar sem hún fullnægir öllum mínum andlegu fjarbúðarþörfum.
Ég þarf ekkert að vita hver Lifur er til að ganga að eiga hann sem minn ekta fjarbúðar.. thing. Hann er það bara. Þvert á móti hjálpar þetta fjarbúðinni töluvert þar sem sá Lifur sem ég hélt að Lifur væri er í alvöru sambúð og ég var með smá móral yfir því hvað ég daðra gengdarlaust við hann hérna á netinu. Fannst það þó skárra en ef við værum að daðra one on one í tölvupósti eða álíka, en það hefur ekki verið tilfellið. Við Lifur erum expressijónistar sem njótum þess að vera í fjarbúð fyrir opnum tjöldum og leyfa öllum í HEIMINUM að fylgjast með því sem gerist þar.
Þar sem ég er ekki hlynnt fjölkvæni né lauslæti og svikum mun ég ekki fara að taka slátur.
Það er einn af kostunum við mig. Ég er faithful. Jafnvel þegar um hey í harðindum er að ræða.
Ég viðurkenni þó að mér fyndist ekkert verra ef ég myndi einn daginn finna non fávita sem hefur andlegan þroska yfir fimm ára sem er tilbúin að eyða lífi sínu með mér. Þangað til kemur ekkert annað en Lifur til greina og til að sanna ást mína og aðdáun á honum mun ég hekla handa honum koddaver sem ég mun afhenda þegar hann flytur inn.
Having said that.. þá ætti ég kannski að fara að læra að hekla...
Nr. 8 | posted by: anna |
7.04.2006 | 23:35:34 | [+] |
Geez, Louise.
Ég verð að viðurkenna að ég er dálítið hrifnari af því að hinn nýi Lifur sé kannski, hugsanlega ekki í sambúð.
Og alltaf gaman þegar sögur taka óvænta stefnu.
Gangi þér allt í haginn.
Ég fór og fékk mér humar í kvöld og kíkti eftir þér, anna, eins og ég hafði lofað ef ég færi og fengi mér humar. Sá þig ekki.
Þegar ég mætti á staðinn var fólkið, sem ég ætlaði að hitta, ekki komið og því beið ég úti í bíl.
Þá hringdi síminn og konurödd sagði:
"Þetta er anna..."
btw, það vantar svarmöguleika í nýju könnunina fyrir mig sem er;
Ég borða humar
Værir þú til í að bæta honum við, please? Annars get ég ekki svarað.
Nr. 10 | posted by: igor |
8.04.2006 | 0:46:29 | [+] |
Done.
Nú verður þú að segja hvað konan sagði meira. Annars DEY ÉG ÚR FORVITNI!
Nr. 11 | posted by: anna |
8.04.2006 | 0:52:52 | [+] |
..., ertu kominn? Fólkið kemur eftir svona 10 mínútur"
Nr. 12 | posted by: igor |
8.04.2006 | 0:57:09 | [+] |
wahahahhahahahaha
PADDA!
hahahahahahahhahaha
Nr. 13 | posted by: anna |
8.04.2006 | 0:58:18 | [+] |
I know.
Og þetta var nákvæmlega sagt svona. Og konan heitir anna. Bara önnur anna.
Nr. 14 | posted by: igor |
8.04.2006 | 1:00:35 | [+] |
ÖNNUR ANNA? Það er engin önnur anna. Hvernig geturðu sagt þetta
Nr. 15 | posted by: anna |
8.04.2006 | 1:02:32 | [+] |
Þetta eru mistök. Ég mun þurrka ÖNNUR ANNA úr minninu NÚNA.
ENGIN ÖNNUR ANNA. ENGIN ÖNNUR ANNA. ENGIN ÖNNUR ANNA. ENGIN...
Nr. 16 | posted by: igor |
8.04.2006 | 1:04:57 | [+] |
MJÖG GOTT!
MÚHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOH
eh.. tíhíhíhí
Var þetta góður eða vondur humar sem þú fékkst? Ætti ég að finna mér vondan humar til að refsa? Ef þú værir ekki svona hrikalega vel giftur Igor þá yrði ég að krefjast þess að þú kæmir í fjarbúð með mér, ég meinaða. Ég myndi sko hekla fyrir þig sængurver og.. og.. og.. LAK!
Nr. 17 | posted by: anna |
8.04.2006 | 1:08:47 | [+] |
Hann klikkar aldrei humarinn. Frekar en lifrin.
Þetta er auðvitað ansi freistandi tilboð, heklað sængurver og lak en ég verð að hafna þessu góða boði - myndi klæja svo mikið undan þessu.
Nr. 18 | posted by: igor |
8.04.2006 | 1:14:59 | [+] |
Auðvitað hafnar þú þessu boði! Þú myndir aldrei leggja á mig að hekla þessi ósköp, ég myndi aaaaaaaaaldrei fyrirgefa þér!
hehehe
Ég á líka eftir að refsa Lifur fyrir að hekla handa honum þetta koddaver, það get ég svarið. Ég hef aldrei heklað nokkurn skapaðann hlut en er samt viss um ég HATI að hekla.
hehehe
Nr. 19 | posted by: anna |
8.04.2006 | 1:20:47 | [+] |
Ég heklaði nú ansi góðan trefil í gamla daga. Var bara nokkuð ánægður með hann þó hann væri misbreiður til endanna. Réð ekkert við lykkjurnar þegar leið á heklið.
Annars verð ég að fara að sofa. Skrepp frá í nokkra daga.
Nr. 20 | posted by: igor |
8.04.2006 | 1:30:29 | [+] |
Hafðu það gott Igor. Hvar sem þú ert.
Nr. 21 | posted by: anna |
8.04.2006 | 1:31:25 | [+] |
Takk.
Nr. 22 | posted by: igor |
8.04.2006 | 1:32:11 | [+] |