Laugardagur, 15. apríl 2006
Það er allt að verða vitlaust.
Haldiði að hann afi Úlfur hafi ekki lagt leið sína aftur til mín og nú með önnur þrjú páskaegg nr 3 - í þetta skipti voru þetta egg frá langafa yfir-Úlf. Þegar bólurnar sáu þetta heyrðist "bling" og ný bóla spratt fram - og svo aftur "bling" og svo aftur "bling" og svona hélt þetta svona áfram þangað til þær voru farnar að skipta milljónum og hvað haldiði að þær hafi þá farið að gera?
Ha?
Þær fóru að dansa POLKA!!