Mánudagur, 10. apríl 2006
Á laugardagskvöldið var ég boðin í opnunarhóf hjá Nornabúðinni vegna þess að nú er búið að taka í gagnið ráðstefnusal innaf búðinni og þær eru líka búnar að koma sér upp heimasíðu sem ég hvet fólk til að kíkja á. Þar er m.a. hægt að fá nornaspá daglega.
Á hátíðinni fengu allir að draga sér rún sem nornirnar túlkuðu fyrir salinn. Ég dró rúnina gjöf sem er gæfurún og víst besta rún sem hægt er að draga.
"Gjöf merkir einnig gæfa og orðið gifting er skylt þeim. Gjafarúnin táknar gæfuríkt samband, byggt á gagnkvæu trausti og virðingu."
Þar sem þetta fyrirbæri er sjaldgæfara en andskotinn, a.m.k. á milli karls og konu, held ég að það sé ekki of sögum sagt að þetta sé besta rúnin sem hægt er að draga.
Nema í dag fór ég að hitta þessa ákveðnu norn eins og ég hef gert nokkrum sinnum áður vegna þess að með okkur er að takast góður vinskapur - en ég er samt ekki lesbísk. Ég finn mig knúna að árétta þetta í hvert sinn sem ég gef í skyn að ég kunni að meta eða líki við kvenkyns veru þar sem karlmenn hafa viljað túlkað þetta á kynferðislegum nótum alltsaman - ég er kynvera en ekki það illa sett að ég finni mig knúna að leggjast á eigið kyn - auk þess sem konur skortir þetta sem gerir gæfumuninn og er ætlað til innsetningar. Ég er bara svona gamaldags. Sue me.
Þarna í dag komst ég að því að norninni vantar manneskju með ákveðna hæfileika og sérþekkingu svo ég benti á aðra konu - sem mér líkar vel við og tekst það líka alveg án þess að langa að REFSA henni með tilheyrandi vessaskiptum.
Þegar ég gerði þetta hafði Norn sú sem ég átti í samræðum við í hádeginu orð á því að ég væri sannkölluð heillanorn.
Mér finnst ekkert verra að vera svoleiðis.
Það má nota rúnina sem ég dró í ástargaldri og það er gott að vita af því - þó ég sé í óða önn að falla.. hook line and sinker.. in love.. af sjálfri mér.
Það vekur upp eina spurningu. Gerir það mig að lesbíu? Eða gerir það mig sjálfkynhneygða?
Ég á það til nefnilega að REFSA mér öðru hvoru..
wahahahahahahahahahaha (-> sérlegur heillanornahlátur)