www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Fiskar og fiskveiðar
Laugardagur, 15. apríl 2006

IMG_0729.jpg


Þetta er Doddi og uppáhalds bókin hans. Hún heitir "Fiskar og fiskveiðar".

Doddi var fjögurra ára þegar hann fann þessa bók og gerði hana að sinni. Hann hefur ekki skilið hana við sig síðan en var aðallega að skoða myndirnar - þangað til í dag. Í dag varð "Fiskar og fiskveiðar" fyrsta bókin sem Doddi settist niður með og fór að lesa í af eigin hvötum.

Dodda finnst nefnilega leiðinlegt að lesa, honum finnst miklu skemmtilegra að reikna og ég spái því að hann komi til með að vinna við eitthvað sem krefst mikillar stærðfræði í framtíðinni vegna þess að hann hreinlega elskar tölur.

Þegar hann kom áðan og sýndi mér með alveg brennandi áhuga einhverja fiska sem hann var að lesa um og hvar þeir væru veiddir og hvað væri hægt að nýta af þeim.. þá varð mér hugsað til þess að þessi litli drengur er skírður í höfuðið á þremur sjómönnum sem drukknuðu.

Mér finnst það pínu skerí.


| anna | 20:26 |
comments

Er þetta ekki merkilegt? Hvaðan ætti þessi áhugi hjá barninu annars að koma......maður spyr sig?

En, enn á ný steppum við í takt anna. Ég var viss um að stelpan mín væri strákur og hafði verið ákveðið að hann skyldi heita Jökull ef ljós væri sem mamma sín, en Tómas ef dökkur sem faðirinn. Stelpunöfn ekki rædd.

Út spýttist hins vegar dama og ég átti hina fleygu setningu er ljósmóðirin tilkynnti fréttina: "Það getur ekki verið, gáðu aftur" what

það tók okkur blaðamanninn þrjá mánuði að velja nafn á angann því ég harðneitaði að skírt yrði í höfuð á einum eða neinum því of mörgum nöfnunum fylgdi ógæfa. Þangað til hét hún strumpur. Aumingjans barnið really sad

Nr. 1 | posted by: Lindablinda | 15.04.2006 | 21:19:20 | [+] |

Ef við ætlum að draga svona upp er best að muna að allt er þá þrennt er, ekki satt?

Nr. 2 | posted by: Kalli | 15.04.2006 | 21:21:33 | [+] |

Þetta var ein af fyrstu uppáhaldsbókum mínum líka. Ég fékk hana að láni frá bókasafninu þegar ég var fimm eða nýorðinn sex og nokkrum mánuðum síðar keyptu foreldrar mínir eintak handa mér.

Nr. 3 | posted by: Elías | 15.04.2006 | 21:35:54 | [+] |

Var að fá sein-nátta hugmynd. Líttu á...... silent

Nr. 4 | posted by: Lindablinda | 16.04.2006 | 2:16:29 | [+] |

Sætur. Er dáldið veik fyrir litlum guttum (á nokkra svoleiðis).
Þarft að vinna í að koma honum að hjá Hafrannsóknarstofnun, þægileg innivinna þar sem stærðfræðikunnáttu er krafist, sem og haldgóðrar þekkingar á fiski og fiskveiðum.

Nr. 5 | posted by: Soffía | 18.04.2006 | 0:26:17 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web