Þornunin er hafin. Ég er komin með frekar slæman varaþurrk.
| anna | 11:44 |
comments
Sæl Anna. Hef verið að laumast um síðuna þína og kynna mér skrifin þín - kom í gegn hjá Blindunni. Það er satt best að segja auðvelt að verða húkkt á þér. Og þar sem ég sé fram á að þvælast hingað um ókomna tíð þá finnst mér pervertískt að gefa mig ekki fram.
Universe er það allra besta sem ég hef lesið í árafjöld - og hef ég nú ekki lesið mikið Er hjartanlega sammála manninum sem þú berð mikla virðingu fyrir. Sagan er of góð til að hafa á opnu svæði.
Og hey, gangi þér vel með bjútí-trítmentið...
Nr. 1 | posted by: Fía flotta |
11.04.2006 | 12:11:45 | [+] |
Þá er bara að spenna beltin og smyrja sig með vaselíni
ærir þekkir ekki vel til ofnæmis, en stundaði það þó hér í sveitalækningum sínum svokallaða afnæmingu. það var nefnilega tískubylgja og tekjulind ofnæmislækna í den tid. sveitalæknar eins og ærir þurftu oft að taka við og halda áfram slíkri afnæmingu við aðskiljanlegustu hlutum en aðalalega gróðri. þetta virkaði stundum og stundum ekki, en óvíst hverjum það gagnaðist. kannski gætirðu rætt þennan möguleika við alvörulækni. en ærir vill þó taka fram að afnæming við karlmönnum hefur verri prognósu. það er synd ef þú getur ekki haft hundinn blessaða og margt til þess vinnandi, eða hvað.
Hey Anna ég gleymdi alltaf að segja þér frá varasalvanum sem bjargaði mér frá varasalva fíkninni minni.
E-vítamín varasalvinn úr body shop! sá allra besti, engin lykt, maður verður ekki háður honum, hann virkar þótt varirnar á þér séu eins og sandpappír og það allra besta er að hann er bleikur