Ein vika af rófuketti.
Sunnudagur, 09. apríl 2006
Ég er aðeins byrjuð að hreystrast í framan en bólunum fjölgar ekki. Er samt ekki frá því að eitthvað af ógeðinu sem var bara þarna inní húðinni sé að hverfa. Held líka að þetta hafi verið svo djúpt inní húðinni að þetta komist hreinlega ekki út. Kannski þessvegna sem ég hef ekkert versnað. Vona að það sé ástæðan - ekki að lyfin séu ekki að virka.
Hann sagði það allavega læknirinn, að þetta væri mjög djúpt í húðinni á mér og hann sagði líka að sumt myndi hverfa án þess að það kæmu bólur.
Ég hef engar aukaverkanir og er enn með mökk af slímhúð allstaðar.
Mér skilst líka að það taki alveg heilan mánuð fyrir lyfinn að þurrka mann alveg upp - svo það eru ennþá þrjár vikur í það.
Ég er ekki heldur með varaþurrk.