www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Auđvitađ
Þriðjudagur, 11. apríl 2006

Ég fór áđan ađ kaupa skannann minn. Ég og afgreiđslustrákurinn gengum yfir í ţann enda búđarinnar sem hann geymir ţessi tól. Eftir stutta leit sagđist hann ekki eiga skannann sem ég vildi kaupa. Ég ákvađ ađ segja ekkert, heldur gaf ég honum baneitrađ augnarráđ og byrjađi, hćgt og rólega ađ kroppa ofanaf stćrstu bólunni sem er á enninu á mér á međan ég horfđi á hann ţessu óhugnarlega illskulega augnarráđi.

Tveimur mínútum seinna hélt ég heim á leiđ međ skannann minn.

Ţá veit ég ţađ.

Á leiđinni heim fattađi ég allt í einu! Ég ćtla ađ hćtta ađ bíđa eftir ađ ég finni vondasta vondukallaendurskođanda í heiminum. ÉG BÝ HANN BARA TIL! Og ég er búin ađ ţví.

Minn drauma endurskođandi heitir King Accountant Calculus. Hann gengur um í svartri skikkju međ svarta leđurhanska, gráum jakkafötum og í rauđum axlaböndum sem hann notar sem teygjubyssu til ađ skjóta eitruđum bréfaklemmum í óvini sína ţannig ađ ţeir lamast tímabundiđ á međan King Accountant Calculus sagar af ţeim útlim.

Ég elska hann en hann ţolir mig ekki en alveg sama hvađ hann reynir ađ koma mér fyrir kattarnef.. ţá slepp ég alltaf og fyrir einhverja algjöra tilviljun og svoleiđis helli yfir hann ást og umhyggju ţangađ til hann gubbar og ţarf ađ setja skikkjuna sína í hreinsun. Já. Allar sögurnar munu enda ţannig: hann setur skikkjuna í hreinsun. Og í fatahreinsuninni vinnur sláni sem reykir og reynir ađ vera fyndinn í hvert einasta skipti sem hetjan mín mćtir.

Honum mun aldrei takast ţađ. Blessuđum manninum.

Fyrsta bókin í ţessari hasarseríu, fyrsta af mörgum hundruđum, mun heita á íslensku:

Ćvintýri endurskođanda: uppgjöriđ.


| anna | 18:28 |
comments

Ég ELSKA King Accountant Calculus!!! laughing

Nr. 1 | posted by: Lindablinda | 11.04.2006 | 19:15:45 | [+] |

Vá ég líka. Hann er HETJAN MÍN!

love

Nr. 2 | posted by: anna | 11.04.2006 | 19:19:39 | [+] |

Gratúlerar međ leikfangiđ smile

Hvernig skanna fékkstu ţér ?

( nei, ég hef lítinn áhuga á ástarmálum endurskođanda wink )

Nr. 3 | posted by: Ţór | 11.04.2006 | 20:44:30 | [+] |

Skannar eru fyrir fólk međ grafíska hćfileika. Ţess vegna finnst mér ástarmál endurskođenda eiginlega bara áhugaverđari...

Nr. 4 | posted by: Kalli | 12.04.2006 | 12:57:10 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web