Ef það er einhver.. sem ekki er búinn að kíkja á bloggið hans Huga, þá ætti sá hin sami að kíkja á það sem gerist þar. Þetta er líklega ein fyndnasta bloggsíða sem ég hef lesið.
Maðurinn fer á kostum!
| anna | 15:23 |
comments
Hægðavæðing hins íslenska bloggheims er nú næstum alger!
Þetta er ein af þessum lesningum þar sem að maður situr eins og fáviti einn með sjálfum sér og emjar af hlátri og getur ekki hætt. Hann hefur húmorinn drengurinn.
Já, húmor er eitthvað sem Hugi á alveg yfirdrifið af. Hann er einn af þessum örfáu mönnum sem maður getur snert af stolti og ánægju sagt um, "já, ég þekki þennan mann".
Þó maður þekki hann náttúrulega sama og ekkert, því maður er varla búinn að snúa sér við þegar hann kemur manni á óvart - aftur
Jájá, kúkur er vel til þess fallinn að koma manni á bragðið!
Það hlýtur að vera gott að eiga svona góðan granna...lyktin á ganginum ekkert til trafala? Börnin eru þá ekkert að hangsa og leika sér frammi á gangi. Bara beint upp með bóunspokana fyrir mömmu, þessar elskur
Það jafnast ekkert á að eiga góða nágranna og Hugi er besti nágranni sem hægt er að hugsa sér. Hann er alveg frábær og hann er ekki síður fyndinn í eigin persónu.
Já börnin vita betur en að vera að þvælast á göngunum hérna. Bara beint upp með pokana og inní herbergi að læra!
muhohohohohohohoho
Nr. 10 | posted by: anna |
19.04.2006 | 23:02:06 | [+] |
Ærir verður að viðurkenna að þetta er skondin síða, sérstaklega að fólk skuli ná svo vel saman að það sé tilbúið að deila með hvort öðru sögum af hægðavenjum sínum. Er það ekki hámark örvæntingarinnar?
Þið eruð nú alveg ágæt. ég er búinn að roðna svo mikið í morgun að ég er búinn að sprengja hverju einustu háræð í líkamanum og lít út eins og veggfóður frá sjöunda áratugnum.