Laugardagur, 15. apríl 2006
Í kvöld fór ég á fund með manni sem bjó til game plan með mér og nú hef ég ákveðið hvernig ég ætla að gera þetta. Ég hef meira að segja trú á að ég geti það - sem hjálpar. Ef dæmið gengur upp, styttist afplánun mín verulega.
Þegar fundurinn var búinn fór ég heim og skerpti aðeins á beinagrindinni. Eins og staðan er lítur út fyrir að sagan universe verði tólf kaflar og fyrsti kaflinn í henni er ca fyrstu fjórar færslurnar á netinu. Ég sé samt fram á að halda áfram að birta stuttar færslur á netinu en ekki "heila" kafla.
Já og í gærkvöldi tók ég eftir því að ég var óvart með opið fyrir heilt net hjá Símnet. Ég lokaði því og þeir sem vilja lesa áfram hafa verið að skrá sig. Frábært að sjá hvað það eru margir sem vilja lesa - ég mun gera mitt besta til að hafa þetta skemmtilegt.
Ég útskýrði ákveðna idealógíu fyrir þessum manni sem ég hitti í kvöld - sem hitti í mark. Ég er á réttri leið. Spurði hann útí hvernig hann ímyndaði sér að þetta myndi nú enda alltsaman og hann sagði "happy and hopefully some sparks flying".
hehehe
Ég fór eins og lúðinn sem ég er á fundinn og sagði "look at this", og benti á andlitið á mér, "does this look like a happy ending to you?" og hann hló.
Mér finnst endirinn góður - en það verður auðvitað að taka inní reikninginn hvað ég er bitur og vond manneskja. Hann mun líklega koma svolítið á óvart. Kannski. Kannski ekki.
Eitt kom upp í kvöld sem bara drap mig úr hlátri. Vitleysingurinn hann Tobias sem ég held svo uppá í þáttunum Arrested Development hefur sagt ákveðna setningu on numerous occasions í þáttunum og ég hlæ alltaf jafn mikið þegar hann gerir það, vegna þess að þessi setning er aulaleg - eins og Tobias. Hún hittir samt alveg gjörsamlega í mark þar sem þessi setning er:
"I'm waiting for the universe to provide a path for me".