www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Við morgunverðarborðið
Miðvikudagur, 01. mars 2006

Doddi "mamma. ertu nörd?"
Anna: "ha?"
Doddi: "ertu nörd?"
Anna: "heldur þú að ég sé nörd?"
Doddi: "ég veit það ekki"
Anna: "hvernig eru nördar?"
Doddi: "þeir eru alltaf í tölvunni"


Hvað er nörd í dag og er anna nörd?


| anna | 10:58 |
comments

"Nerd" er obsessive persóna sem vill vita allt um e-ð.

Þú ert hundanerd wink

Nr. 1 | posted by: Þór | 1.03.2006 | 11:19:37 | [+] |

Þetta er tíminn sem þú útskýrir fyrir syni þínum afhverju það er cool að vera "nörd" wink

Nr. 2 | posted by: Andri | 1.03.2006 | 12:02:44 | [+] |

Þór var búinn að svara því sem ég ætlaði að svara. Svona ef þú ert í einhverjum vafa, þá sér maður myndina af hundabolunum undir þessari færslu!
Auðvitað er kúl að vera nörd.

Nr. 3 | posted by: parisardaman | 1.03.2006 | 12:23:54 | [+] |

Þar sem að mín er orðin 16 er hún hætt að leita til mín um svör, en gefur þess í stað bara yfirlýsingar.

Dóttirin: Mamma þú ert nörd!

Lindablinda: Ég veit það. Elska þig líka nerd

Nr. 4 | posted by: Lindablinda | 1.03.2006 | 13:06:44 | [+] |

Anna, það er KÚL að vera nörd. Mundu það! wink

Nr. 5 | posted by: Ása | 1.03.2006 | 14:31:02 | [+] |

Nördahugtakið felur líka í sér félagslega vanhæfni, ekki bara yfirþyrmandi getu eða þekkingu á einu tilteknu sviði. Annan sem á þessa síðu virðist alls ekki passa undir þann hluta hattsins.
Væri skoðanakönnun, þessi með skemmtilegu valmöguleikunum, ekki við hæfi núna?

Nr. 6 | posted by: Gestur | 1.03.2006 | 16:03:06 | [+] |

Já, er skilgreiningin þannig. Ég var nefnilega svo mikill "nörd" að ég stalst til að horfa á Þætti úr hjónabandi eftir Ingmar Bergman þegar ég var 13 ára. En var óhemju félagslynd... og var í smart vinahópi... sagði þeim ekki að ég væri að nördast svona. Hef samt alltaf haldið því fram að ég sé mikill nörd inni við beinið. nerd

Nr. 7 | posted by: Sigga | 1.03.2006 | 16:29:08 | [+] |

Nördaprófið er einfalt. Alvöru nörd þjáist af ljótum úlpum og á erfitt með að halda uppi hversdagslegum samræðum við annað fólk.

Nr. 8 | posted by: DonPedro | 1.03.2006 | 16:41:43 | [+] |

Nú?

Nr. 9 | posted by: Lindablinda | 1.03.2006 | 16:45:14 | [+] |

Ég var alveg búin að gleyma þessu með úlpurnar. Þetta er major issue.

Rosalega margir vasar á þeim, ég hef séð svona!

Nr. 10 | posted by: anna | 1.03.2006 | 16:52:32 | [+] |

Eruði að tala þá um svona þunnar úlpur með fullt af vösum... ??

Nr. 11 | posted by: Elín | 1.03.2006 | 17:00:10 | [+] |

Hmm... ég á eina úlpu með amk 7 vösum ( ég er ekki viss um að ég sé búinn að finna þá alla ) en svo á ég einn sem bara er með 3 vösum, og annan með bara 4 vösum ( 2 innan á ).

Er ég þá einhverskonar... "meðalnörd" ?

Eða kannski bara ekkert nörd yfirleitt ?

Þó ég sé nú svolítið félagslega heftur embarassed

Nr. 12 | posted by: Þór | 1.03.2006 | 17:03:48 | [+] |

Ég er geek. Geek er nörd sem veit af félagslegum vanköntum sínum.

Nr. 13 | posted by: Kalli | 1.03.2006 | 17:15:53 | [+] |

Ég er búin að setja upp könnun sem mun gera útum málið.

Lesið alla valmöguleikana vel.

Nr. 14 | posted by: anna | 1.03.2006 | 17:38:02 | [+] |

Á fullt í fangi með að reyna að sættast við þá staðreynd að ég hljóti þjást af ljótum úlpum og eigi erfitt með að haldaú uppi hversdagslegum samræðum við annað fólk. sad Hlýtur að koma.

Nr. 15 | posted by: Lindablinda | 1.03.2006 | 20:54:13 | [+] |

Úlpan má ekki vera nýmóðins, en gjarnan halda góðum hita. Kennimerki góðrar nördaúlpu er að hún lítur út fyrir að hafa verið valin af ömmu. Einhverri ömmu. Random Ömmu. Litur má gjarnan vera grár, an aðrir óspennandi jarðtónar koma einnig til greina.

Gott er ef nörd á sér einlægt áhugamál sem heillar nánast engan annan. Mjög fókuseruð skordýrasöfnun eða einlægur áhugi á farskipum eða skák vinnur vel hér.

Þeir sem kommenta hér og eigandi þessa vefseturs eru ekki nördar. Kalli kom með mjög góðan punkt þegar hann benti á muninn á því að vera Nörd og geek.

Fólki sem eyðir aðeins meiri tíma en hollt er fyrir framan tölvuna finnst sætt að kalla sig nörda sem félagslega réttlætingu. Alvöru nörd veit ekki af því að hann er nörd. Vantar nefnilega mest alla félagslega meðvitund.

Könnunin þarf að taka þessa faktora inn til þess að geta kallast lögleg.

Nr. 16 | posted by: DonPedro | 1.03.2006 | 20:55:27 | [+] |

Nú held ég að ég geti sofnað ........held ég..... doubt

Nr. 17 | posted by: Lindablinda | 1.03.2006 | 21:05:31 | [+] |

Ég tók alla þessa faktora inní könnunina á forsíðu. Meira að segja þetta með ömmuna, sbr "allar gamlar konur".

Annars er þetta mjög góð samantekt bæði um nördaúlpuna og eðli og einkenni nörda almennt.

Ég finn soldið til með þeim. Hlýtur að vera einmanalegt. Vita þeir kannski ekki að þeir eru einmana? Eða verða nördar ekki einmana?

Nr. 18 | posted by: anna | 1.03.2006 | 21:05:44 | [+] |

Þú ert ekki einmana þegar þú hefur farskipatalningarlistann þinn.

Nr. 19 | posted by: DonPedro | 1.03.2006 | 21:10:25 | [+] |

hvernig læt ég! happy

Nr. 20 | posted by: anna | 1.03.2006 | 21:10:56 | [+] |

Er ekki aðeins of snemmt að óska Kalla til hamingju? Geek og nörd eru nebblega samheiti. Nema að átt sé við hina upprunalegu sirkusmerkingu geek, sem þýðir að fremja undarlegan verknað eins og að bíta höfuðið af kjúklingi öðrum til gamans. Gammosíur og skikkja innifalin. clown

Nr. 21 | posted by: Gestur | 1.03.2006 | 22:14:02 | [+] |

Fullyrðing mín um geek og nörd kemur frá Neal Stephenson. Ég tek henni sem betri skilgreiningu en öðrum sem ég hef heyrt. Hvaða orð annað ættum við að nota um það sem er geek skv. Stephenson?

Gestur hefur hugsanlega tekist hið ótrúlega og hlustað oftar en góðu hófi gegnir á Ballad of a Thin man hans meistara Dylan:

„You hand in your ticket
And you go watch the geek
Who immediately walks up to you
When he hears you speak
And says, "How does it feel
To be such a freak?"
And you say, "Impossible"
As he hands you a bone“

Þess skal samt geta að Oxford American Dictionary er sammála Gesti. Enda eru bara ekki allir ritstjórar orðabóka jafn prógressívir og framsýnir og Mörður Árnason.

Annars líst mér ekkert á það ef fólk ætlar að færa hér skotheld rök fyrir því að ég geti ekki lengur kallað mig nörd eða geek... Samkvæmt skilgreiningu Gests og Oxford American Dictionary má samt væntanlega færa rök fyrir því að Ozzy Osbourne sé (eða í það minnsta hafi verið) geek. Þetta hins vegar samræmist engan veginn málvitund minni.

Nr. 22 | posted by: Kalli | 2.03.2006 | 9:06:34 | [+] |

Hvenær hætti ég að lesa yfir það sem ég skrifa? Anna... get ég fengið edit takka, takk? melodramatic

Nr. 23 | posted by: Kalli | 2.03.2006 | 9:47:18 | [+] |

Það er spurning. Nema, að Gestur hafi hlustað yfir sig á Idiot Wind, sem samt er líka ólíklegt. Því Gestur þolir ekki Bob Dylan. Enn síður en Dylan, þolir Gestur bin Laden íslenskrar tungu, Mörð Árnason. Hann hefur framið hryðjuverk á móðurmálinu. Og hauslausan kjúkling nú!

Nr. 24 | posted by: Gestur | 2.03.2006 | 11:44:28 | [+] |

Sættir þú þig við leðurblöku? Þessi fuglaflensa gerir kjúkling meira að verkefni fyrir ofurhuga en geek.

Nr. 25 | posted by: Kalli | 2.03.2006 | 18:14:40 | [+] |

Ok, hana nú, breytist þá í leðurblöðku nú! Af öryggisástæðum. laughing

Nr. 26 | posted by: Gestur | 2.03.2006 | 19:01:01 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web