Við kvöldmatarborðhaldið.
Miðvikudagur, 01. mars 2006
Doddi: "þögnin er ekki versti óvinurinn í mínum skóla. Við eigum alltaf að hafa þögn svo það sé vinnufriður. Kennarinn minn segir þetta"
Anna: "það er punktur"
Jóhanna: "Doddi. Ég þoli ekki þegar þú gerir þetta. Kennarinn minn. Mamma mín. Þú segir þetta alltaf. "Jóhanna, mamma mín segir að það sé matur" "Mamma mín segir að þú eigir að fara að sofa". Eins og þetta sé ekki mamma mín líka. Ég á hana alveg eins og þú, og hef meira að segja átt hana mikið lengur! Þú talar við mig eins og ég sé skiptinemi frá kína!"
Anna: "Doddi! er þetta satt! (þetta er satt, hann gerir þetta) Langar þig að eiga mömmu einn?"
Doddi: "neeeiinei"
Anna: "langar þig ekki að eiga mig einn?"
Doddi: "jújú"
Jóhanna: "þið vitið það ekki en ég fór í dag að syngja fyrir nammi og er með fullt af nammi í töskunni minni sem ég ætla að sturta á stofuborðið á eftir og skipta á milli okkar"
Anna: "tótal brill! Göngum frá eftir matinn og svo skoðum við góssið hennar Jóhönnu!"
Doddi: "vei nammi!"
Anna: "Hver er besta mamma í heimi?"
Doddi og Jóhanna í kór: "Þúúúúú"
Anna: "Mér finnst það líkaaaa!"
MÚHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHO