Mánudagur, 27. mars 2006
Ég er búin að komast að því að ég verð að hafa linkana hina bloggarana á öllu ravings svæðinu og forsíðu.
Ég þarf að hafa þá á öllu ravings svæðinu vegna þess að ég er oft einhverstaðar á færslu hjá mér þegar mig langar að lesa bloggið hjá einhverjum öðrum - og þá vil ég geta smellt á einn link til að komast þangað, ekki á tvo.
Auk þess skiptir consistency máli.
Réttast væri að setja þetta á alla fokking síðuna en ég ætla samt ekki að gera það. Bæti kannski við þessum dálki á alla síðuna og eitthvað annað á non ravings síðum.
Æ ég veit ekkert hvað ég ætla að gera. Svo kvíði ég endalaust fyrir að fara að versla í hádeginu. Þarf að kaupa svo ógeðslega mikið og mig vantar sterkan karlmann til að hjálpa mér með þetta upp á tíundu hæð (feels like ten) svo handleggirnir á mér verði nú ekki lengri en þeir eru þegar orðnir.
Djöfull á mér eftir að finnast ég RÚLA þegar ég er búin með þessi innkaup..