www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Tilraun 2
Fimmtudagur, 30. mars 2006

Ef ég gef mér að þetta útlit birtist eins og því er ætlað að birtast þá eru bloggfærslurnar til vinstri, fyrir ofan þær: menu, fyrir ofan hann: banner, efst til hægri: leit og tveir dálkar til vinstri með nýjustu færslum og tenglum.

Í þessu útliti held ég að ég hafi komið til móts við alla (nema Hörpu sem vill hafa dálka báðu megin við meginmálið). Myndin er ekki eins lítil, menu-inn nær næstum yfir alla síðuna, leitin er efst til hægri, linkarnir byrja ekki fyrir ofan menu-inn og ég kem meira að segja galdradúkkulinknum líka fyrir. Það mun svo seinna bætast annar linkur þar fyrir neðan svo það er allt í lagi að hafa smá "hvítt" þar.

Ekkert á síðunni á að vera miðjujafnað, allt til vinstri.

Látið mig vita ef þetta er MEGA mongo.. hehe


| anna | 14:31 |
comments

mér finnst þetta flottasta útfærslan so far smile

Nr. 1 | posted by: baun | 30.03.2006 | 15:34:49 | [+] |

Mér fannst síðasta betri. Skýrari, einfaldri og flottari. Ekki þar fyrir að innihaldið er alltaf jafn gott wink

Nr. 2 | posted by: Simmi | 30.03.2006 | 15:46:44 | [+] |

Mér finnst allt mjög flott við þetta nema að hafa tvo dálka þarna hægra megin. Ef þú heldur þig við það myndi ég setja örlítið meira hvítt pláss fyrir ofan leitina og jafna Galdradúkkutengilinn við navigation slánna.

Svona þar til næsti tengill bætist við smile

Nr. 3 | posted by: Kalli | 30.03.2006 | 15:55:29 | [+] |

Þetta er til mikilla bóta

Nr. 4 | posted by: AlanHudson | 30.03.2006 | 16:18:56 | [+] |

Núna þekki ég þig aftur, anna.is er langflottust wink

Útlitið í gær var djók, sjúkk .. clown

Nr. 5 | posted by: Lisa | 30.03.2006 | 17:25:44 | [+] |

Andsk, ég var á leiðinni í bað þegar ég sé hvað þú ert búin að gera af þér. Aldrei má maður líta af þér eitt augnablik. melodramatic

Til að refsa þér þá ætla ég fyrst í bað áður en ég hringi í þig og skamma þig doubt

Nr. 6 | posted by: Harpa | 30.03.2006 | 17:47:33 | [+] |

Ég er furðulega forvitinn um hvort það hefur sömu áhrif að kona segi ANNA eins og karl. Ef það er rétt gert það er að segja.

Nr. 7 | posted by: Kalli | 30.03.2006 | 17:49:17 | [+] |

Það eina sem truflar mig við þetta, er þrjár leturstærðir á síðunni, það er linkarnir, bloggið og svo dálkarnir tveir. Það lítur út fyrir að kommentin og linkarnir séu af sömu stærð. shy

Nr. 8 | posted by: Gestur | 30.03.2006 | 18:37:46 | [+] |

Gestur: Kommentin og linkarnir eru af sömu stærð, finnst þér það eigi að vera öðruvísi?

Kalli: sjá svar við "breaking news"

Harpa: iss

Lisa: ertu ánægð með anna.is svona? (stundum þarf að stafa ofaní mig)

Alan: gott

Simmi: æji/takk

Baun: takk/gott

Nr. 9 | posted by: anna | 30.03.2006 | 18:42:14 | [+] |

Anna, ef ég opna anna.is eru leturstærðirnar þrjár, sem truflar augað mitt aðeins (ég er bara með eitt) en ef ég smelli á ravings kemur weblog síðan, sem mér finnst mjög flott. Svo ef ég opna kommentin þá kemur síða eins og anna.is síðan aftur, og þá er ég aftur komin með það lúkk ... ég vil stöðugleika.

PS. Kaupi þetta EKKI með ljótuna. Ég dvaldi einu sinni úti á landi í litlu plássi. Þar bjó kona, afar barngóð, sem hafði fyrir sið að kíkja ofan í barnavagna til að kjá framan í smáfólkið. Því miður brjáluðust börnin hins vegar undantekningalaust þegar þau sáu framan í hana. ÞAÐ kalla ég að vera ljótur. Og finnst það samt illa sagt. Maður á að tala vel um sjálfan sig, hvort heldur í gríni eða alvöru. Og hér myndi ég hrópa hana nú, til áherslu, ef Kalli væri ekki með kjúklingafóbíu.

Nr. 10 | posted by: Gestur | 30.03.2006 | 19:19:33 | [+] |

Er ég með kjúklingafóbíu? doubt

Eða er ég bara ljóska yet again? Silvia Nótt

Nr. 11 | posted by: Kalli | 30.03.2006 | 19:22:47 | [+] |

Já það! Þetta er eðlilegt. Ég er að fikta í ravings útlitinu og á sömu mínútu og ég verð ánægð sjálf með útlitið mun ég setja það útlit á alla síðuna eins og hún leggur sig.

Have patience, þetta kemur. Ímyndaðu þér bara að ég hafi rifið allt út og sé að endurinnrétta. Já og að ég hafi fengið mér innanhúsarkitekt. Verður ekki allt svo svakalega fínt þá?

Ég held að Kalli sé Silvía Nótt.. hmmm

Nr. 12 | posted by: anna | 30.03.2006 | 19:31:25 | [+] |

Það útskýrir þessa sjálfkynhneigð...

Nr. 13 | posted by: Kalli | 30.03.2006 | 19:38:56 | [+] |

[Ljósapera]
Ég held að minni Kalla sé jafnvel skemmra en ástir hans.

Samanber:

Sættir þú þig við leðurblöku? Þessi fuglaflensa gerir kjúkling meira að verkefni fyrir ofurhuga en geek.

| nr. 26 | posted by: Kalli | 2.03.2006 | 18:14:40 | [+] |

Nr. 14 | posted by: Gestur | 30.03.2006 | 20:43:54 | [+] |

Ég bíð endalaust eftir nýju lúkki... wink

Nr. 15 | posted by: Gestur | 30.03.2006 | 22:44:56 | [+] |

Nei, annars. Veistu, ég held að síðan hafi verið best eins og hún var. Ég er líklega rammasta íhald innst inni.
Augun eru farin að rúlla í hausnum á mér. weepy

Nr. 16 | posted by: Gestur | 30.03.2006 | 23:18:58 | [+] |

Silvia Nótt

Nr. 17 | posted by: Gestur | 30.03.2006 | 23:24:19 | [+] |

hehehe iss Gestur, þér finnst þetta nýja allt í lagi..

Nr. 18 | posted by: anna | 30.03.2006 | 23:29:30 | [+] |

Anna, nota bara Jedi Mind Trick™ á Gest happy

Hvernig vissi Gestur annars að mér finnst Lady Thatcher ákaflega glæsileg kona. Samt ekki alveg jafn ísprengileg og Silvía, sko, skiluru.

Nr. 19 | posted by: Kalli | 30.03.2006 | 23:36:45 | [+] |

Jæja, þannig að við erum ekkert að tala við Kalla heldur

Kalla-na punktur is.

Hvað verður það næst? Geir Ólafs?

what

Nr. 20 | posted by: Gestur | 31.03.2006 | 12:01:24 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web