Sunnudagur, 12. mars 2006
Ég er búin að vinna alla helgina. Vaknaði snemma á laugardaginn, klæddi mig í þægileg leikfimiföt og settist við tölvuna. Ég sat sleitulaust við tölvuna þangað til klukkan átta um kvöldið, þá var mér farið að líða verulega illa og áttaði mig á því að ég var orðin svo svöng að mér var hálf óglatt.
Ég á til að gleyma að borða þegar ég er mjög niðursokkin og þetta hefur komið fyrir mig aðeins oftar en tvisvar. Þegar svona er fyrir mér komið er hræðilega vont að borða. Mér er of óglatt til þess. Þar fyrir utan var ég orðin svo máttfarin að mig svimaði, svo ég byrjaði á því að fá mér tvo appelsínubáta til að fá beina blóðsykursinnspýtingu. Það virkaði, mér leið miklu betur en vissi að ég yrði að borða eitthvað. Mig langaði ekki í neitt, en setti lasanja í ofninn sem ég átti í frystinum síðan ég eldaði það síðast.
Þegar það var tilbúið gat ég borðað tvo bita af því. Þá langaði mig að gubba. Borðaði tvo appelsínubáta í viðbót til að halda meðvitund og velti því fyrir mér hvað í fjandanum ég gæti þvingað ofaní mig. Prufaði að elda pasta og gat borðað tvo munnbita af því og var lífsins ómögulegt að borða meira.
Þessi matur var nú samt sem áður nóg eldsneyti fyrir mig til að vinna til ellefu í gærkvöldi en þá fór ég í heitt bað og að sofa. Vaknaði snemma í morgun og eldaði hafragraut, til að endurtaka ekki ruglið. Í hádeginu náði ég mér í trefjajógúrt og var að drekka það öðru hvoru til fjögur. Ég var að klára að borða egg sem ég eldaði í kvöldmatinn og ég er í alvöru að hugsa um að fara í bað núna því ég er orðin þreytt. Mig langar mest að fara að sofa.
Djöfull hata ég explorer. Ég vinn alltaf í Firefox en villuprófa í xplorer. Gleymdi mér og var nánast tilbúin með lúkk þegar ég hafði rænu á að prófa í xplorer og viti menn. Allt í rugli og ég mátti byrja nánst uppá nýtt. ARG!
Ég er allavega ekki að deyja úr hungri. Þarf eiginlega að prógrammera símann minn til að pípa á mig á ca 4 tíma fresti og minna mig á að borða.
Ljóta helvítis ruglið að vera svona.