www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Kiddi og Balli
Laugardagur, 04. mars 2006

Ég fór í dag að hitta litlu hvolpana.

balli.jpg

Þessi hér er Balli.

kiddi.jpg

Þessi hér er Kiddi.


Hvernig á ég að orða þetta..

Annar þessara hunda er búinn að bræða mig alveg. Hann sækir í að vera hjá mér og mér líður vel með hann í fanginu. Hinn sækir ekki í að vera hjá mér og þegar hann er í kjöltunni á mér reynir hann að grafa ofaní lærin á mér.

Mér finnst þeir báðir alveg ofboðslega fallegir en mig langar í þann sem er hrifinn af mér og lætur mig finna það. Hann er samt ekki sá sem stendur mér til boða.

Hvað geri ég þá?

Ræktandinn sagði við mig í kvöld að ég mætti ekki taka hvolp sem ég er ekki 100% sátt við. Og á meðan annar þeirra lætur mér líða eins og honum þyki í alvöru vænt um mig, langar mig ekki í þann sem hegðar sér eins og hann sé kærastinn minn, þ.e. virðist vera nokk sama hvort ég er lífs eða liðin.

Ef mig langaði í svoleiðis væri ég að leita að karlmanni, ekki hundi.

Ég þarf ráðleggingar fólks sem veit betur. Hvað á ég að gera? Og þetta er ekki spurning um að ég verði að fá hvolp núna. Ég var búin að segja það áður. Ég er tilbúin að bíða eftir rétta hundinum.


| anna | 21:31 |
comments

Geturðu fengið að vera ein með honum? Bara í smá stund?

Kannski ertu að gefa frá þér víbra um að þú fílir bróður hans betur.?

Hundar eru ansi naskir á svona lagað svo að það væri gott fyrir ykkur að prufa að vera alveg ein - gefa honum og þér séns, slappa af og sjá hvað gerist.

Ef að þið eruð ekkert að fíla hvort annað þá ertu búin að læra það á lífsleiðinni að þú getur ekki þvingað einhvern til að elska þig - né heldur þig til að elska.

Ég lenti í þessu með hvolpa sem Ma og Pa áttu. Einn var svo laaaang sætastur og kelnastur að ég varð bara mest skotin í honum. Sá sem mér fannst ekkert sætur var hins vegar alltaf snúinn við mig. Svo fór sæti í fóstur og hinn (sem varð síðar langsætastur) setti í gang og varð besti vinur minn í 8 ár smile

Nr. 1 | posted by: Lindablinda | 4.03.2006 | 21:59:20 | [+] |

Já það er nefnilega akkúrat málið. Ég veit að ég get ekki þvingað einhvern til að elska mig og mig langar ekki að þvinga neinn til þess.

Það er þessvegna sem ég veit ekki hvað ég á að gera. really sad

Nr. 2 | posted by: anna | 4.03.2006 | 22:08:26 | [+] |

Prófaðu þetta - í alvörunni - og ef það gengur ekki- þá eru fleiri hundar í ........garðinum...?

Nr. 3 | posted by: Lindablinda | 4.03.2006 | 22:46:32 | [+] |

Takk Linda og DonPedro. Ég bíð eftir rétta hundinum.

- eða eins og Johnny Logan myndi orða það:

"What's another year"

Nr. 4 | posted by: anna | 4.03.2006 | 23:59:59 | [+] |

Stórt faðm. silent

Nr. 5 | posted by: Lindablinda | 5.03.2006 | 0:12:26 | [+] |

Mér líst vel á ráð Lindu. Prófaðu að vera ein með hvolpnum sem þér stendur til boða og sjáðu hvernig ykkur kemur saman.Ég veit um dæmi þar sem kaupandi hvolps var með hann í aðlögun fyrst. Hvolpurinn kom í heimsókn og svo var honum skilað heim. Þetta var gert í nokkur skipti til að sjá hvernig gengi. Getur þú ekki gert eitthvað svoleiðis áður en þú skrifar undir bindandi samning?

Hins vegar gerði ég ekkert slíkt með minn hund, af því að ég er ekki fyrsti eigandi og það hafði verið svolítið rót á honum. Ég fór bara með hann beint heim skv. ráðleggingu dýralæknis. Hann rétt leyfði mér að halda á sér þegar við hittumst fyrst, en ekkert mikið meira en það. Það breyttist á örfáum dögum.

Svo að mitt ráð er: gefðu hvolpnum séns, en ef samkomulagið hjá ykkur breytist ekki fljótlega þá eru fleiri fiskar í sjónum til fyrir þig og rétti eigandinn fyrir hann er einhver annar. smile

Nr. 6 | posted by: farfuglinn | 5.03.2006 | 0:41:04 | [+] |


Kannski eru nokkrar heimsóknir málið. Til þess að vera viss.

En hér kemur glefsa af netinu um það hvernig á að velja hvolp:

Googlaði bara how to pick a puppy og hrúga af síðum kom upp.

When you finally get to look at puppies, watch them interact for a while. Is one more aggressive than the other or does it cry in fear at every strange movement and noise? Does one come running up to you for attention or hide behind the couch? A bit of advice, pick the outgoing, friendly pup that comes to investigate your presence. These are all signs of the dog’s personality.

Hljómar eins og það sem þú ert að tala um.

Kannski er þessi hundur ekki hinn eini sanni Mr Albert.

Á annarri síðu stóð þetta:

Check out the puppies
Sit or kneel on the ground and call the puppy to you. Snap fingers, pat the ground, get the puppy's attention. If he comes quickly, he may have a strong attachment to people. If he stops to smell the flowers along the way, he may have an independent streak. If he doesn't come at all, he may have difficulty forming a bond with people. Of course, one such test means nothing. Try to visit the litter a couple of times before making a decision. Or depend on the breeder to tell you which puppies seem to have which behavior characteristics. Or both.

Etc.

Nr. 7 | posted by: Gestur | 5.03.2006 | 0:45:29 | [+] |

Ég ætla a.m.k. að vona að það séu ekki margir hvolpar í sjónum doubt

Líst betur á þá í garði happy

Nr. 8 | posted by: Kalli | 5.03.2006 | 5:42:16 | [+] |

Híhí, góður laughing

Nr. 9 | posted by: DonPedro | 5.03.2006 | 8:33:28 | [+] |

Við eigum tvo ketti og þegar við fengum þann síðari sem er högni hafði hann afar takmarkaðan áhuga á okkur á meðan annar úr sama goti var gjörsamlega athyglissjúkur og elti okkur um allt til að láta klappa sér og kjassa. Ég féll auðvitað alveg fyrir þeim ketti en sá var ekki falur. Við ákváðum að taka samt þennan sem okkur var ætlaður og um leið og við vorum komin heim með hann og hann var búinn að jafna sig á mesta aðskilnaðarsjokkinu sýndi hann sitt rétta eðli. Það er, hann er algjör knúsu-köttur, geðgóður og skemmtilegur og við höfum aldrei séð eftir því að hafa tekið hann. Fyrstu kynni segja ekki alltaf allt smile

Nr. 10 | posted by: Guðný Pálína | 5.03.2006 | 13:56:42 | [+] |

Ég veit ekki mikið um val á hvolpum, I admit. En... ég veit aftur á móti að þegar maður á systkini sem allir finnast miklu sætari og æðislegri en maður sjálfur, þá bakkar maður bara. Svo þegar maður kynnist einhverjum sem gefur manni séns, þá sýnir maður sitt rétt eðli.

Smá klikkuð sálgreining snemma á mánudagsmorgni, yfirfærð á hunda ehemm. En... you know what I mean, ikke? embarassed

Nr. 11 | posted by: Edina | 6.03.2006 | 9:43:03 | [+] |

Ah.. en það sem þú veist ekki.. er að ég þekki þá ekki í sundur nema með því að skoða mjög náið. Þannig að ég lék við þann sem sótti í mig.. og hélt að ég væri að leika við þann sem mér stendur til boða, ítrekað, kom í ljós að það var alltaf hinn.

Þetta er nefnilega ekki þannig að mér finnist annar sætari. Mér líkar bara betur við þann sem sækir í mig.

Nr. 12 | posted by: anna | 6.03.2006 | 10:02:21 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web