Mánudagur, 13. mars 2006
Í morgun þegar ég opnaði augun stóð Margeir við rúmið mitt og hélt á hamri. Mér dauðbrá og stökk á fætur. Kom í ljós að hann var að elta flugu sem hann ætlaði að éta og hún hafði lent á koddanum við hliðiná mér.
Allt er maur í harðindum.
Á meðan við borðuðum morgunmatinn fékk Margeir hinsvegar eina þá bestu hugmynd sem ég hef á ævi minni heyrt. Það er þessvegna sem ég náði mér í samþykktir til að stofna fyrirtæki í dag og á næstu dögum ætla ég að nota Albert peningana til að stofna fyrirtæki.
Ég er auk þess hætt við að fá mér Albert. Ég ætla að fá mér tík og ég veit ekki hvað ég á að skíra hana. Veit meira um þetta allt á morgun um hádegi en það eru líka góðar líkur á að ég svissi yfir í loðinn chihuahua líka. Skilst að þeir fari minna úr hárum en þessir snögghærðu og þar sem ég er ofnæmisgjörn manneskja langar mig í dýr sem fer sem minnst úr feldinum.
Þetta var útúrdúr. Ég er samt að fara að stofna fyrirtæki.
Margeir fékk nefnilega, eins og fyrr sagði, alveg magnaða hugmynd. Þetta er eiginlega scam.. en ekki ólöglegt. Ég er hrifin af öllu svoleiðis og það er bara til svo mikið af vitlausu fólki í heiminum sem þráir ekkert heitar en að búa til fjarlægð á milli sín og peninganna sinna, einmitt fólkið sem fyrirtækið mitt ætlar að hjálpa.
Af því ég vil ekki svindla á fólki sem les síðuna mína ætla ég að útlista þetta hér í smáatriðum. Ég er hvort sem er búin að skrá einkaleyfi á hugmyndinni og er með pending umsókn um alheimsvörumerki.
Fyrirtækið verður "alþjóðafyrirtæki" sem sérhæfir sig í að "verðlauna" einstaklinga og önnur fyrirtæki en mitt eigið. Fyrir hvað er ég ekki búin að ákveða - enda er það bara eitthvað mcguffin sem hægt er að breyta eftir þörfum. Segjum að við byrjum á að verðlauna fólk og félög.. for outstanding achievement in the field of excellence. Í anda Monty Burns. Hei! Kannski skíri ég fyrirtækið Burns Group!
Allavega. Ég bý til alveg ferlega flott bréf á fallegu bréfsefni og með flottum stimpli sem ég sendi til random félaga út um allan heim þar sem ég útskýri að þeir hafi unnið verðlaun for outstanding achievement in the field of excellence í hvaða bransa sem þeir eru. Það eina sem þeir þurfi að gera er að borga mér fimm þúsund dollara og þá sendi ég þeim flugmiða svo þeir geta flogið til Íslands á eitthvað flott hótel til að vera við athöfn þar sem ég gef þeim einhverja styttu eða eitthvað ódýrt rusl, kannski get ég líka nælt orðu í þá eða eitthvað og svo djamma allir langt fram á nótt.
Það er til svo mikið af fólki sem þráir viðurkenningu að það skiptir ekki nokkru máli fyrir hvað það er eða hvað það kostar. Eftir ellefu ár get ég bætt á bréfsefnið "awarding people for over a decade" og ber við stærðfræðiblindu minni ef ég verð spurð nánar útí það.
Ég spái því að það kosti varla meira en þúsund dollara að fljúga liðinu hingað, kaupa undir það hótelherbergi og henda í það mat og áfengi. HEI! ÉG GÆTI LÍKA VEITT VERÐLAUN FYRIR OUTSTANDING ACHIEVEMENT IN THE FIELD OF SOBERNESS. Já. Held að það sé ekki vitlaust. Auk þess yrði það alveg hræódýrt. Ekkert áfengi, einhver plastpeningur og málið er dautt.
Kannski ég hafi líka svona borða, eins og í fegurðarsamkeppnunum. Glatað að fá bara einhvern pening. Í alvöru talað.
Allavega. Ef þú færð bréf frá Burns Group eða Burns ltd eða MB global þar sem þú getur borgað mökk af peningum til að fá verðlaun, þá veistu að þetta er bara ég, i could not care less og er bara að þessu for the money.
Ég er samt ekki alveg nógu sátt við að Margeir ætli að sjá um bókhaldið.