www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Niðurstöður
Þriðjudagur, 14. mars 2006

Í 2. heimsókninni til Alberts klóraði annar hundurinn mig örlítið á handleggnum. Um kvöldið klæjaði mig í handlegginn svo ég ákvað að panta tíma hjá ofnæmislækni.

Fór í morgun.

Þetta stendur á blaðinu sem ég hef fyrir framan mig. Nákvæmlega þetta.

Læknirinn feitletraði það sem feitletrað er:


Anna hefur áhuga á að fá sér hund. Fær mikil einkenni nálægt köttum.

Húðpróf með pikkprófi sýndu:

Histamín (jákvætt kontrol)
Diluent (neikvætt kontrol)
Prófað fyrir: birki, Trjáblöndu (Rauðbirki, White Ash, Beech, Cottonwood, Hickory, Oak, Elm, Maple), Blöndu 7 grastegunda (Timotej, Red Top, Perennial Rye, Meadow Fescue, Sweet Vernal, Kentucky Blue, Orchard), Myglugróm (Aspergillus niger, Alternaria tenuis, Hormodendrum hordei, Penicillum notatum), njóla (rumex crispus), túnsúru (rumex acetocella, hunda epithel, hesta epithel, dermatophagoides faraine og pteronyssinus (rykmaurum) og túnfífli. Einnig prófað lepidoglyphus.
Jákvæð svörun á hunda. Aðrir algengir loftbornir ofnæmisvakar voru neikvæðir.


| anna | 11:42 |
comments

nei

Nr. 1 | posted by: anna | 14.03.2006 | 11:49:47 | [+] |

Fúlt. really sad

Nr. 2 | posted by: Lindablinda | 14.03.2006 | 11:58:04 | [+] |

æ, það var sorglegt sad

en nú getur þú notað peningana í annað og sparað umhyggjuþörfina og ástina fyrir....Lifur cool

Nr. 3 | posted by: baun | 14.03.2006 | 12:01:40 | [+] |

Já, þetta voru slæmar fréttir. Fyrir ofnæmishunda eins og mig sem er með ofnæmi fyrir alskonar frjókornum, köttum og jólatrjám þá er þetta bara fúllt. Fæ bókstaflega asthmaköst hjá fólk með ketti (sem hefur áhrif á hvert maður þorir í heimsókn) og er sagt af þeim sem enn verr eru staddir en ég að það sé afar líklegt að ég gæti fengið ofnæmi fyrir bæði hundum og hestum á endanum. Svo ef ég ætla að gerast bóndi þá verða beljur, hænsni og rollur. En svo er þetta kannski bara spurning um að fá sér Aibo?

Nr. 4 | posted by: Simmi | 14.03.2006 | 12:16:01 | [+] |

Þá er bara ein lausn. Hún hentar vel á ofnæmisheimilum.

http://www.petpigs.com/
http://www.potbellypigofmyheart.com/
http://www.petpig.com/

Nr. 5 | posted by: DonPedro | 14.03.2006 | 12:39:36 | [+] |

Ég fer nú bara að orga, ég finn til með þér. En kannski er þetta ekki svo slæmt ofnæmi að þú getir ekki fengið þér hundinn. Kannski er hægt að fara í svona ofnæmisbólusetningar?... eða hreinlega gera eins og konan sem ég var að lesa um sem er með brjálæðislega hundadellu og helgar sitt líf allskyns hundgreyjum sem enginn annar vill eiga. Sú kona er á ofnæmislyfjum allt árið.
Bróðir minn lét sig hafa það að fá sér hund þrátt fyrir ofnæmi útumallt í fjölskyldunni og börnin hans þoldu það.... nú og til að vera alvöru absúrd, þá hef ég heyrt þá kenningu að maður sé yfirleytt ekki með ofnæmi fyrir því sem maður borðar mikið af, því líkaminn viti að það er ekki eitur. Fólk t.d. er sjaldan með ofnæmi fyrir kindum sem eru jú algengur matur. Hvað með að búa sér til hundaháraseyði doubt Ofnæmisviðbrögð eru varnarviðbrögð hjá líkamanum gegn því sem maður (líkaminn) álítur vera eitrað. En spurningin er: hvernig er hægt að útskýra fyrir hulstrinu þínu að hundur er ekki eitraður?
Hvað um það, í þínum sporum myndi ég láta reyna á þetta. Kannski þolirðu hunda betur er læknirinn heldur.

Nr. 6 | posted by: utifrik | 14.03.2006 | 13:11:22 | [+] |

Hvað gerir það til þó þú verðir smá flekkótt og klæji pínkupons??
Þú ert alltaf jafnfalleg hvort sem þú ert með Hlaupabólu, Rauða hunda eða þurfir sífellt að vera að klóra þér....

Nr. 7 | posted by: eddið | 15.03.2006 | 18:14:40 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web