www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Nýtt útlit
Miðvikudagur, 29. mars 2006

Hvað finnst fólki um þetta?

(Já.. gera refresh smile )


| anna | 21:41 |
comments

Algerlega glæsilegt hjá þér Anna mín! Til hamingju með nýju uppsetninguna. Og takk fyrir Ribbon Cutting Ceremony'una. Hún var stórkostleg wave

Nr. 1 | posted by: Harpa | 29.03.2006 | 21:52:03 | [+] |

Takk fyrir komuna! Verð með beittari skæri næst! wave

Nr. 2 | posted by: anna | 29.03.2006 | 21:52:57 | [+] |

Já eða þynnra silki í borðanum.

Ég veit hvað varð um flöskurnar sem hurfu úr síðustu færslu hehehe cool

Nr. 3 | posted by: Harpa | 29.03.2006 | 21:55:33 | [+] |

MÚHOHHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHO

Nr. 4 | posted by: anna | 29.03.2006 | 22:00:05 | [+] |

Mér líst vel á þetta. Tekur kannski smá tíma að venjast en finnst sniðugt að hafa site navigation þarna efst, tenglana til vinstri og svo blogupdatethingies til hægri.

En afhverju færðu þér ekki banner? Bara lítinn...

Nr. 5 | posted by: Kalli | 29.03.2006 | 22:17:55 | [+] |

Þetta er frábært í heild sinni. Ert á réttri leið.

Mínar athugasemdir eru þessar.

1. Hafa "blogs" efst og síðan "links" sem þó er gott að hafa svona flokkaða.

2. Vantar kannski að ramma færslur (miðjuna) aðeins betur inn. Kannski þarf bara aðeins að skerpa á línum?

3. Nafn bloggsins "Ravings of a lunatic" er dáldið eins og fljótandi. Vantar smá stuðning?

4. Þegar smellt er á komment kemur "gamla lúkkið". Býst við að ástæðan sé sú að þú sért bara ekki búinn að breyta því?

Þetta eru svona fyrstu viðbrögð og komment frá mér.

Nr. 6 | posted by: igor | 29.03.2006 | 22:53:26 | [+] |

Spurning hvar þú setur

1. Search this site, kannski efst?

2. Könnun?

Nr. 7 | posted by: igor | 29.03.2006 | 23:01:04 | [+] |

Takk fyrir þetta! Links eru fyrir ofan blogs og verða þar áfram því ég nota þá meira en blogglinkana. Þetta er eitt af því fáa sem ég kem seint til með að breyta á mjög eigingjörnum forsendum smile

Það þarf líklega eitthvað að gera varðandi færslurnar, en ég veit ekki alveg hvað. Þó ég sé með smá hugmynd.

Gamla lúkkið er á allri síðunni nema bara ravings index-inu. Setti þetta bara upp til að fá viðbrögð og það fer eftir þeim hvort ég set þetta útlit á alla síðuna eða ekki wink

Nr. 8 | posted by: anna | 29.03.2006 | 23:01:12 | [+] |

Leitin verður "líklega" fyrir ofan monthly archive. Ég er mjög fylgjandi því að hafa leitina alltaf efst og var búin að setja upp þannig útlit en var bent á að það væri fallegra svona. Ég er ennþá að velta fyrir mér hvað ég geri í leitarmálum. Ég nota google mikið beint af síðunni minni og vil alls ekki sleppa því.

Könnunin er alltaf á forsíðu og þar er hvort sem er allt tómt hægra megin hehe

Nr. 9 | posted by: anna | 29.03.2006 | 23:04:17 | [+] |

Þetta er flott look Anna - dead simple en svínvirkar. Endilega halda þínum sérkennum - þetta er jú einu sinni þitt blogg. smile

Nr. 10 | posted by: Simmi | 29.03.2006 | 23:05:56 | [+] |

Ég held þú ættir ekki að setja leitina undir "archive" heldur halda þig við að setja hana efst.

En spurning hvort þú ættir að færa "vinstri" og "hægri" dálkana aðeins niður og láta efstu línuna ganga yfir báða þá dálka og vera með bæði "search this site" og google search í þeirri línu?

Nr. 11 | posted by: igor | 29.03.2006 | 23:08:34 | [+] |

Smá stafsetningarvilla hjá mér.

Þetta átti að vera þarna á undan svona:

...ekki að setja leitina YFIR "archive" heldur halda þig við að setja hana efst Á SÍÐUNA.

Nr. 12 | posted by: igor | 29.03.2006 | 23:13:46 | [+] |

Svona var fyrsta útgáfan http://www.anna.is/weblog/nyttanna.gif

Ég þarf að skoða betur hvað ég geri með leitina. Eins og ég segi, ég er mjög fylgjandi því að hafa hana efst - enda sérðu að ég er ekki búin að setja neina leit á nýja útlitið. Ég veit ekki hvar ég á að hafa hana ef hún er ekki efst.

Kannski er þetta meinloka í mér.

Nr. 13 | posted by: anna | 29.03.2006 | 23:18:29 | [+] |

Hafðu leitina efst til hægri. Leit á að vera efst til hægri - það stendur í stjórnarskránni happy

Nr. 14 | posted by: Simmi | 29.03.2006 | 23:32:44 | [+] |

Nei, þetta er ekki meinloka. Sumir hlutir bara eiga að vera á sínum stað. Það er held ég lógískt að hafa leitina uppi. Og einnig eðlilegt að hafa leitina með navigation fyrir síðuna.

Efst mæli ég með að þú hafir alveg frá vinstri og yfir til hægri (yfir alla síðuna) navigation fyrir síðuna og þar tel ég best að leitin sé líka.

Mér finnst fyrirsögnin og myndin betri í lúkkinu undir linknum sem þú varst að pósta.

Spurning hvar þú hefur galdradúkkur því sá linkur er í eðli sínu "auglýsing" því þú hannar hann þannig.

Það er erfitt að senda svona ábendingar sem texta og ég veit ekki hvort þú skilur upp né niður í þessu hjá mérwink

Nr. 15 | posted by: igor | 29.03.2006 | 23:33:03 | [+] |

Æi Anna þetta er agalegt svona. Maður á ekki að breyta breytinganna vegna. Ég var rétt farinn að venjast hinu útlitinu. Svo hefurðu minnkað myndina af þér í horninu sem þýðir að karlkynsgestum hérna mun snarfækka.

Nr. 16 | posted by: AlanHudson | 29.03.2006 | 23:54:44 | [+] |

Ég er einmitt ekki að breyta breytinga vegna. Ég er að breyta svo ég geti haft linkana sem ég vil hafa á síðunni - og þar sem ég fíla ekkert rosalega að hafa auka dálkinn til að linka á bloggara áttaði ég mig á að ég þyrfti að breyta eitthvað útlitinu til að allt fitti í tveggja dálka planið.

Um þá sem hætta að koma á síðuna vegna þess að myndin er orðin minni segi ég: good riddens.. wink

Nr. 17 | posted by: anna | 30.03.2006 | 0:00:04 | [+] |

En það eru fleiri myndir af Önnu í staðinn! Alger Önnufans!

Reyndar finnst mér litlu myndirnar pínu spúkí. Svipurinn verður eitthvað skringilegur á þeim...

Nr. 18 | posted by: Kalli | 30.03.2006 | 0:15:31 | [+] |

Whu? embarassed

Nr. 19 | posted by: Lindablinda | 30.03.2006 | 0:39:45 | [+] |

ohhhhh fáviti er ég melodramatic
Veistu - ég fílaði hitt betur...... en mér kemur það ekkert við

Nr. 20 | posted by: Lindablinda | 30.03.2006 | 0:44:54 | [+] |

ohhhhh fáviti er ég melodramatic
Veistu - ég fílaði hitt betur...... en mér kemur það ekkert við.

Less is more

Nr. 21 | posted by: Lindablinda | 30.03.2006 | 0:45:16 | [+] |

Ég veit núna hvað það er sem fer í taugarnar á vinstrimanninum mér við þetta nýja útlit. Það er miðjunin. Miðjaður texti er of framsóknarlegur. Hann á að vera vinstrijafnaður.

Nr. 22 | posted by: AlanHudson | 30.03.2006 | 1:52:48 | [+] |

Nei, það var betra hinsegin. Aðalatriðið á síðunni eru bloggfærslur þínar,
en í nýju útfærslunni fær maður svona attack of the links áfall.
það gerist líka eitthvað skrýtið þegar maður sér littlu myndina efst,
svo aðeins stærri myndina sem liggur aðeins lengra niður og
svo aftur littlu myndina til hægri sem er í sömu hæð og littla myndin til vinstri, maður missir jafnvægisskynð.

Nr. 23 | posted by: Magn-us | 30.03.2006 | 8:01:19 | [+] |

Ég skoðaði þetta ekki í explorer í gær og verð að viðurkenna að ég hló upphátt þegar ég skoðaði síðuna í honum rétt áðan.

Það er töluvert mikið öðruvísi upplifun finnst mér að skoða síðuna með linkana alla vinstrijafnaða - eins og þetta á að vera og eins og firefox sýnir síðuna. Alan gaf mér the hint sem mig vantaði. Það á nefnilega ekki neitt að vera miðjujafnað á síðunni.

Hvað sem gerist er ég búin að ákveða að færa menu linkana efst. Hvort sem ég geri það í kringum gamla útlitið eða þessu nýja á ég eftir að ákveða. En ég hefði mjög gaman af því að vita hvað ykkur, sem notið explorer, finnst þegar ég hef lagað hvað sem það er sem explorer er að kafna á.

Svo Alan.. þegar þú gerir refresh og sérð að linkarnir eru orðnir vinstrijafnaðir - eru allar líkur á að þú sért að horfa á það sem ég kalla nýja útlitið. In the meantime.. er hér mynd af því sem firefox notendur eru að sjá - svona sirkabát:

http://www.anna.is/nyttanna.html

Nr. 24 | posted by: anna | 30.03.2006 | 8:54:38 | [+] |

já.. sýnist ég vera búin að laga xplor viewið.. wave

Nr. 25 | posted by: anna | 30.03.2006 | 8:59:48 | [+] |

Er að fikta í þessu áfram.

Linda: takk fyrir að benda mér á þetta! Vissi ekki að væri búið að fikta í servera-settings. Verð að koma þessu í lag sem fyrst.

Nr. 26 | posted by: anna | 30.03.2006 | 9:57:50 | [+] |

Hafðu eitt í huga.

Það sem ég segi er bara ráðgjöf. Ráðgafinn tekur ekki ákvarðanir en hann getur samt staðið fast á sínu. Við þurfum ekki að vera sammála.

Þetta er þín síða. Þú tekur ákvarðanir en notar ráðin sem hjálpartæki.

wave

Nr. 27 | posted by: igor | 30.03.2006 | 10:12:07 | [+] |

Ég er auðvitað sjálfskipaður og ólaunaður ráðgjafi en geri þetta samt af einskærri eigingirni happy

Nr. 28 | posted by: igor | 30.03.2006 | 10:31:07 | [+] |

Skil ekki hvað er verið að kvarta, finnst þetta alveg til sóma nerd

Nr. 29 | posted by: Blue | 30.03.2006 | 14:12:56 | [+] |

Anna: www.sitevista.com

Þú vissir kannski af þessu? Annars gæti þetta verið gagnlegt verkfæri fyrir þig í vefuninni happy

Nr. 30 | posted by: Kalli | 30.03.2006 | 15:58:27 | [+] |

mér finnst þetta óxla flott, bara cool

Nr. 31 | posted by: hildigunnur | 30.03.2006 | 17:10:13 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web