Þetta með tölur..
Föstudagur, 31. mars 2006
Ég gerði ótrúlega uppgötvun þegar ég var að klára skattskýrsluna. Ég þurfti að þrítékka og nudda augun vegna þess að ég einfaldlega trúði ekki því sem ég sá þarna á skjánum fyrir framan mig. Síðan ég skildi er ég búin að lækka höfuðstól skuldanna minna um tæplega.. EINA OG HÁLFA MILLJÓN.
I shit you not.
Ég er eiginlega ennþá að ná þessu því ég er líka búin að vera að borga inná yfirdráttarheimildina mína. Reyndar er ég búin að komast að því að þeir eru ekki að djóka með að fólk eigi nóg af peningum. Mínir hafa bara allir farið í að borga vexti!
Í kvöld mun ég reyna að gera gott úr þessu andliti sem ég er með, fara á hátíð og þegar það er búið mun ég flytja aðsetur mitt alfarið yfir á netið. Ég er hvort eð er búin að gera svo fínt hérna. Ég mun hætta að vera til í raunveruleikanum á meðan ég er á þessum lyfjakúr og ég er búin að fatta af hverju ég er alltaf með þessa húfu. Mér líður eins og ég sé ósýnileg með hana.
Auk þess má ég ekkert gera. Ekki má ég stunda líkamsrækt því þetta er svo mikið álag á liðina og ég gæti skemmt eitthvað. Ekki má ég taka lýsi - svo hárið mun pottþétt hrynja af mér.
Læknirinn sagði að ég mætti búast við að versna gífulega fyrstu vikuna en svo heldur hann að ég komi til með að lagast hægt og örugglega upp frá því.
Sjáum hvað gerist..
Djöfull er ég samt styggðarlega stolt af sjálfri mér.
Ein og hálf milljón. Unbefuckinglievable.