Föstudagur, 03. mars 2006
Ég hef endað dagana undanfarið á því að liggja undir flísteppi í sófanum og horfa á einn þátt af R O M E.
Ókey ég svindlaði fyrsta kvöldið og horfði á tvo, en svo er ég bara búin að horfa á einn í einu. Ég bý yfir svo gífulegri sjálfsstjórn. Þarf að vinna líka og lífið er komið í góða rútínu.
Ég er búin að segja já við því sem var stungið að mér um daginn. Ég er mjög spennt að sjá hvernig það mun ganga. Þetta krefst undirbúnings og ég vil fara hægt af stað. Ekkert rugl.
Annars dreymdi mig alveg furðulegan draum í nótt. Mig dreymdi bekkjasystur mína síðan úr barnaskóla. Hún dó árið 1998. Í draumnum hafði ég farið aftur í tíma og var að lifa næst síðasta dag hennar á jörðinni. Vissi að hún myndi deyja daginn eftir.
Þetta var frekar skrítið. Við vorum aldrei neinar rosa vinkonur en engar óvinkonur heldur.
Í sama draumi dreymdi mig ónefndan bloggara. Hitti hann á furðulegri skrifstofu. Hann leit allt öðruvísi út og átti afar gamalt skrifborð. Ástæðan fyrir því að ég var að hitta hann var sú að hann hafði birt tölvupóst á heimasíðunni sinni sem ég skrifaði til hans. Mér fannst það undarleg hegðun og ég var þarna til að biðja hann um að fjarlægja þetta en samt pirraði þetta mig ekki neitt. Jafnvel þó ég væri að segja frá hlutum sem ég kærði mig ekki um að allir viti. Mér fannst það líka undarlegt. Af hverju mér alveg sama, ég átti að vera æf af reiði.
Hvað þýðir þetta? Ég hef ekki neinar áhyggjur af því að þessi bloggari birti tölvupósta frá mér á heimasíðunni sinni. Það er ekkert nógu krassandi í þeim sem ég sendi honum.
Af hverju dreymir mig löngu látna skólasystur mína og finnst eins og hlutverk mitt sé að afstýra því sem ég veit að gerist daginn eftir?
Af hverju dreymir mig bloggara og að hann birti tölvupóst frá mér á síðunni sinni, gjörsamlega og fullkomlega af ástæðulausu? Og af hverju verð ég ekki reið þó ég ætti að vera það?
Stundum vildi ég óska að mig dreymdi ennþá bara köngulær. Það var orðið svo þægilegt og safe. Að dreyma alltaf sömu hlutina. Rottur og köngulær útum allt.
Ég sakna þess. Nú til dags dreymir mig bara tómt rugl.