Þriðjudagur, 28. mars 2006
Ég þarf að gera skattskýrsluna.
Ég nenni ekki að gera skattskýrsluna.
Ég þarf að þrífa.
Ég nenni ekki að þrífa.
Íbúðin er haugur og ég þarf virkilega að þrífa. En af því þetta er orðið svo mikið.. þá fallst mér hendur og ég nenni þessu ekki.
Ég þarf að skila skattskýrslunni því annars kemur skatturinn, þræðir mig uppá spjót og grillar mig.
Ég nenni samt ekki að gera skattskýrsluna.
Það mun taka mig minnst fjóra klukkutíma að þrífa íbúðina.
Það mun taka mig innan við klukkutíma að gera skattskýrsluna.
Mér finnst hinsvegar svo ÓGEÐSLEGA LEIÐINLEGT að gera skattskýrsluna - að ef ég ákveð að gera hana í kvöld eru allar líkur á að ég þrífi í staðinn.