Í fyrsta lagi BOOJAH. Það sá ég fyrst hér á anna.is og fljótlega fór ég á veitingastað í London og fyrsta orðið sem ég sá á matseðlinum var; BOOJAH, BOOJAH. Já, tvisvar.
Í öðru lagi JESS. Ég segi ekki að maður hafi ekki séð það áður en í gær þegar ég var að fara yfir lokaútgáfu ársreiknings fyrirtækisins með endurskoðanandum þá birtist allt í einu neðst á skjánum í Excel skjali endurskoðandans orðin JESS, JESS. Já, tvisvar. Og svo þegar ég fer á síðuna þína þá er fyrsta orðið sem ég sé; JESS.
Þetta er spúkí.
Nr. 4 | posted by: igor |
18.03.2006 | 8:19:32 | [+] |
Toppskor and then some!
BOOJAH!
Ég "heyrði" þetta fyrst í Arrested Development, BOOJAH!, og fékk það á heilann. Held að það sé skrifað svona.
Mér finnst mjög spúkí að endurskoðandi skuli skrifa JESS JESS í lokaútgáfu ársreiknigns. Hann virðist hafa mannlegar tilfinningar. Ertu viss um að hann sé endurskoðandi í alvörunni?
Nr. 5 | posted by: anna |
18.03.2006 | 13:40:45 | [+] |
Booyah hefur væntanlega öðlast mest fylgi eftir að Ali G notaði það. Held ég... Booyah!
Þú segir nokkuð. Ég held ég óski eftir afriti af prófskírteininu hans.
Nr. 7 | posted by: igor |
18.03.2006 | 16:53:59 | [+] |
Það myndi ég hiklaust gera og ef hann reynist vera alvöru endurskoðandi myndi ég kalla hann inná teppi og spyrja hvernig í andskotanum honum detti eiginlega í hug að vera með svona fíflagang í vinnunni þegar hann eigi að vera serious og professional svo hann sé stéttinni til sóma!
Ef hann svo mikið sem brosir á meðan þú segir þetta myndi ég láta aflífa hann á staðnum.
Öðrum endurskoðendum til aðvörunnar. Jafnvel láta stoppa hann upp og selja á ebay. Þetta er náttúrlega sögulegt.
Nr. 8 | posted by: anna |
18.03.2006 | 17:00:08 | [+] |
Ég myndi hiklaust kaupa uppstoppaðan endurskoðanda til að hafa í stofunni. Það er ef smekkur minn á húsmunum væri aðeins meira út í fríkí en hann er núna...
Yrði hann ekki tilvalinn í húsbóndaherbergi Don Pedro's? Einhver til að hengja jakkan jaa, eða spjalla við ef stemmningin er eitthvað dauf. Hef oft lent í að tala við endurskoðendur sem voru sem uppstoppaðir - get ekki ímyndað mér að raunverulega uppstoppaðir séu eitthvað verri.
Don Pedro gæti líka fengið sér endurskoðanda sem er uppstoppaður í kúl karatestellingu. Svo gæti hann stillt honum upp með uppstoppaðri kanínu sem er í Bun Fu stellingum. Svona eins og þau séu að berjast. Það væri svalast!
Hvenær fær maður heimboð í húsbóndaherbergið? Ég skal koma með Campari-flöskuna
Höböh... hann er kannski kynskiptingur og heitir Jess í alternatífu lífi ?
Hvarragharramahggha...
Þér tókst semsagt að velja gott mál
Samhryggist þessu með voffa Mikið Gæti ekki hugsað mér að hafa ekki möguleikann á að fá mér hund.. ( hef reyndar ekki möguleikann vegna húsnæðismála, en það er val, ekki kvöð..)
Vil'dað ðú værir hér að drekkja með mér hundasorgum í dýrindis ouzo
Það eru allir velkomnir í húsbóndaherbergið mitt þegar það er tilbúið. En þið getið hengt ykkur upp á það að þar verða engir endurskoðendur, uppstoppaðir eður ei.
Damn... ég var nebbblilega búinn að finna enn ein not fyrir uppstoppaðan endurskoðanda. Oft þegar ég er á mannamótum og þekki lítið til viðstaddra kemur óframfærnin upp í mér. Þá væri gott að hafa uppstoppaðan endurskoðanda til að þykjast vera að tala við. Þá er maður ekki eini gaurinn úti í horni heldur með í selskapnum!