Sem mig grunaði..
Fimmtudagur, 16. mars 2006
Í byrjun desember á síðasta ári hringdi ég og pantaði mér tíma hjá lækni. Í dag, rúmum þremur mánuðum síðar, fór ég í umræddan tíma.
Það er smá bið eftir tíma hjá þessum mönnum.
Hann þurfti ekki að skoða mig lengi til að staðfesta grun minn. Ástandið er langt frá því að vera eðlilegt eða ásættanlegt. Og það er til lausn. Í formi pillu.
Hann vill setja mig á lyf sem koma að öllum líkindum til með að gera líf mitt að helvíti í ca hálft ár. Þau eru svo sterk að það er bannað með lögum að gefa konum þessi lyf nema þær séu á skotheldri getnaðarvörn og þrátt fyrir hana mun ég þurfa að fara til hans einu sinni í mánuði í óléttupróf og blóðprufu.
Ég hef nefnilega ekkert verið að grínast þegar ég kvarta yfir bólum. Og þó ég sé hætt að kvarta yfir þeim daglega þýðir það ekki að þær séu farnar. Mér leiðist bara að endurtaka mig - of mikið.
Ég er mest þakklát fyrir að hann hafi ekki bara sagt mér að ég væri svona og yrði svona for the rest of my life. Því ég hreinlega kann ekkert að vera svona bólugrafin. Þetta er alveg nýtt fyrir mér og ég hef ekki smekk fyrir þessu. Hef öðlast nýja sýn og skilning á því hvað fólk var að tala um á unglingsárunum. Þetta er gjörsamlega óþolandi.
Mér finnst virkilega óhugnarlegt að fá þetta á mínum aldri. Ég er fráskilin, næstum miðaldra kona sem má ekki eiga hund. Ég á ekki séns í helvíti ef ég lít út eins og pizza með ólívum í framan.
Ef ég væri að fá bólur vegna þess að ég þrifi mig ekki, lifði á rusli og þessháttar fyndist mér það í raun fair. Þá gæti ég breytt um lifnaðarhætti og lagað í mér húðina þannig. En ég get ekkert gert. Það breytir engu hvað ég er að lifa "hollu" lífi, bólurnar fara ekki neitt og ég finn hvernig óhreinindin svoleiðis safnast saman undir húðinni og andlitið á mér er eins og ódáðarhraun.
Hann lét mig hafa stóran bækling með aukaverkunum, sagði mér að lesa þetta vel og ákveða svo hvort ég treysti mér til að gera þetta. Hann sagði að oft finnst fólki "verst" að það má ekki drekka áfengi á meðan það er á lyfjameðferðinni. Það er ekki eitthvað sem ég hef áhyggjur af. Ég er búin að lesa smá. Veit að þetta kemur til með að þurrka upp alla slímhúð. Ég kem til með að fá sveppasýkingar, leggangaþurrk, blóðnasir.. og ég er hætt að lesa. I don't care. Ég ætla samt að gera þetta.
Talaði við konu sem ég þekki sem fór á þennan kúr og hún segir að ég verði verri í húðinni á meðan ég er á kúrnum. Basically mun ég verða alveg ógeðslega ljót í hálft ár. Bólurnar munu springa út eins og hverir í andlitinu á mér, ekki get ég notað farða því þó þetta þurrki alla slímhúð skilst mér að maður glansi eins og bónaður skalli í framan og allur farði leki af þannig að bólurnar verða sjálflýsandi.
Maður spyr sig hvort það sé ekki nógu góð getnaðarvörn í sjálfu sér. Sé ekki alveg fyrir mér að það verði röð af karlmönnum að berja niður hurðina hjá mér á meðan ég lít þannig út. Svona alveg grínlaust. Þar fyrir utan er ég hvort sem er alltaf glansandi í framan. Það er ekkert smá gefandi.
Að sjálfsögðu mun ég documentera tortúrið sem þetta verður og vorkenna mér í bílhlössum.
Ég sagði lækninum að ég gerði mér grein fyrir að húðin á mér er orðin það örótt og illa farin að ég komi aldrei til með að hafa beinlínis "fallega" húð úr því sem komið er. Ég trúði honum varla þegar hann sagði mér, eftir að hafa skoðað húðina á mér með stækkunargleri, að ég ætti góða möguleika á að ná henni mjög góðri og jafnvel nokkuð sléttri. Ég er nefnilega ekki það slæm, þó ég sé slæm.
Þeir sem teljast mjög slæmir...
Shit.
Þið eigið alla mína samúð.
Við þá sem hrista höfuðið yfir því að einhver skuli vilja leggja á sig svona kvalræði til að losna við bólur vil ég segja: Það er ekki séns að þú sért með svona ógeð í andlitinu. Prufaðu að vera svona og þú áttar þig á að þú ert tilbúin til að gera nokkurnvegin HVAÐ SEM ER til að líta út eins og manneskja aftur.
Best af öllu. Ég var búin að panta mér tíma hjá kvensjúdómalækninum mínum seinna í dag til að láta taka hormónalykkjuna. Húðsjúkdómalæknirinn bannaði mér að gera það.
Ég vil ekki vita hvað gerist ef konur verða ófrískar á þessum lyfjum. En ég hef ekki áhyggjur af því að það komi fyrir mig. Nema þá að Jesú ákveði að nota mig sem portal fyrir endurkomu sína.
Hef ekki áhyggjur af því heldur. Ég trúi ekki að jessi gamli hafi verið eingetin.
Læknirinn sagði mér að hugsa málið í tvær vikur, áður en ég kem aftur til hans og ég er búin að hugsa málið.
Bring it on.