Miðvikudagur, 08. mars 2006
Fór í gærkvöldi að hitta litlu hundana sem ég er að búa til síðuna fyrir. Jesús hvað þeir hafa stækkað. Klikkaði auðvitað á að vera með myndavél en þeir eru alveg yndislegir og mjúkir og.. oh..
Þegar ég kom heim var klukkan orðin margt svo ég fór beint í bað vegna þess að inní svefnherbergi, í rúminu mínu biðu mín ný sængurföt. Ég keypti mér nefnilega ný sængurföt um daginn. Þau fyrstu síðan ég skildi. Hef verið að nota sængurföt frá mömmu up till now.
Ég þvoði sængurfötin um helgina og í hádeginu í gær fór ég heim og skipti um á rúminu, bjó aftur um það og strauk yfir rúmteppið til að slétta það alveg. Horfði á rúmið í smá stund og hugsaði um hvað það yrði geðveikt að koma uppúr baði um kvöldið uppí rúmið mitt með nýja sængurverinu og fara að sofa.
Þegar ég var búin að þurrka mér eftir baðið skreið ég undir sæng og það fór um mig sæluhrollur. Ég held að ég hafi sofnað á korteri.
Þetta eru samt ekkert gríðarlega merkileg sængurföt þannig, keypti þau í RL–sérverslun á 1500. En.. þau eru úr bómull og svona krumpuð einhvernvegin og mér finnst alveg ofboðslega þægilegt að sofa með þetta.
Í morgun ýtti ég 13 sinnum á snooze áður en ég fór frammúr.