Mánudagur, 27. mars 2006
Það hefur breyst örlítið; ég HATA AÐ VERSLA!
Hatur nær meira að segja ekki alveg utanum þær tilfinningar sem ég hef í garð þess að versla í matinn.
Djöfull er þetta STYGGÐARLEGA leiðinlegt.
ÚFF!
Og í dag gleymdi ég innkaupamiðanum. Hræðilegt þegar það gerst, þá fer ég nefnilega að impróvæsa. Kaupi mökk af dóti sem ég á ALDREI eftir að nota, og ég veit það.
En í dag keypti ég svolítið jákvætt í improvæsinu sem ég hef verið á leiðinni að kaupa lengi.
NÝJAN RÆKJUPOKA!
Ég henti hinum rækjupokanum nefnilega fyrir ekkert svo löngu síðan og hef verið eitthvað svo leið síðan. Ég var búin að eiga hann síðan ég flutti að heimann! -Auk þess sakna ég Lifur smá og langaði í eitthvað sem minnir mig á hann.
Keypti líka mökk af öðru dóti sem ég hefði geta hent niður ruslarennuna þegar ég kom heim en ég ákvað að setja það fyrst uppí skáp og bíða þangað til það myglar áður en ég geri það.
It's feels like the right thing to do.
Ef ég skrifa einhvertíma sjálfsjálparbók ætla ég að láta rækjupoka fylgja hverju eintaki. Ég mun pottþétt gefa út fyrir jólin og eru ekki bækurnar alltaf í Bónus?
Það er ekkert venjulegt hvað manni líður vel þegar maður á rækjur.
MIG VANTAR HINSVEGAR EINHVERN TIL AÐ VERSLA ÞÆR FYRIR MIG - ásamt öðrum nauðsynjum.