Hringrás.. ekki lífsins, heldur..
Þriðjudagur, 28. mars 2006
Ég er búin að vera að vinna að útliti fyrir nýja heimasíðu. Það hefur gengið misvel.
Alltaf þegar ég byrja að vinna í svona útliti og dett niður á eitthvað concept, þá skíri ég skjalið sem ég er að vinna með einhverju nafni sem sker sig útúr öðru dóti sem ég er að vinna með og bæti 01 fyrir aftan. Svona:

Held áfram að vinna í lúkkinu og stuttu síðar lítur mappan mín svona út:

Þegar ég er komin með svona margar útgáfur skoða ég hverja og eina vandlega og finn venjulega eina sem mér finnst betri en allar hinar. Hana skíri ég..

Eins og sést var það útgáfa númer átta sem mér fannst best. En þrátt fyrir að ég sé búin að ákveða að þetta sé "the one", þá er það greinilega alltaf einhver misskilningur hjá mér því áður en ég veit af lítur mappan svona út:

-og af því ég er orðin frústreruð líta allar tilllögur sem ég bý til á eftir þessari.. svona út:

Þessi aðferð er ótrúlega öflug. Merkilegt hvað ég man nöfn á borð við 65465465465487777777777.png
EN..
Á þessum tímapunkti kemur venjulega einhver í heimsókn sem ég get borið útlitið undir. Þegar það er búið fær skjalið nýtt nafn:

-sem stuttu síðar breytist óumflýjanlega í...

Og það er yfirleitt hér sem ég skipti yfir í nýtt útlit entirely..