Þetta orð, bloggsuga, kom fyrst fyrir hér á anna.is fyrir kannski um 2 árum ef ég man rétt.
Bloggsugur blogga ekki en langar að blogga en geta það ekki sökum leti. Þær láta því bloggara um allt erfiðið, tæknilegu vandamálin, en lifa sníkjulífi á kommentakerfum og láta þannig ljós sitt skína.
Í maí 2006, daginn eftir Júróvisjón, mun ég eiga þriggja ára bloggsuguafmæli. Tíminn líður hratt.
Nr. 7 | posted by: igor |
18.03.2006 | 8:27:48 | [+] |
Mér finnst þetta orð neikvætt og þið Gestur eruð ekki bloggsugur í mínum huga. Bloggsugur skrifa langar færslur á blogg annarra og linka á sitt eigið til að "sjúga" yfir til sín traffík.
Vil benda á að ég er ekki að tala um samræður sem skapast oft á kommentakerfum sem mér finnst eitt það skemmtilegasta við bloggmenninguna.
Hvorki þú né Gestur gerið þetta. Þið hafið ekkert blogg til að linka á því þið bloggið ekki sjálfir og getið því ekki "sogað" eitt eða neitt. Þið eruð "á götunni" því þið nennið ekki að halda úti bloggi (þín orð). Fáið inni dag og dag fyrir bloggþörfina hjá mér og öðrum bloggurum, því þetta er ávanabindandi. Veit það vel. Það gerir ykkur að bloggrónum í mínum huga - sem mér finnst miklu vinalegra orð en bloggsuga.
Mér þykir afskaplega vænt um bæði þitt input og Gests og flestra sem skilja sporin sín eftir á síðunni minni.
Vona að þið verðir bloggrónar hjá mér sem lengst og ég meina það í fullri alvöru.
Ef þið hinsvegar ákveðið að fá ykkur varanlegan samastað á Internetinu vona ég að þið hættið samt ekki að vera á vergangi og kíkja til mín. Auk þess ætlast ég til að fá tilkynningu um opnun ásamt invite í ribbon cutting ceremoníuna!
(Eftir Arrested Development mun ég allavega aldrei halda uppá neitt nema það verði ribbon cutting ceremony.)
Nr. 8 | posted by: anna |
18.03.2006 | 13:31:56 | [+] |
Bloggsuga - bloggróni. Ég er búinn að vera í dálitlu áfalli yfir þessu innleggi Igors, en létti svo aðeins eftir þrumandi ræðu Önnu hinnar afkastamiklu.
Af því að maður veit aldrei fyrir víst, hvað bloggurum þykir um heimsóknir ókunnugra, sem ekki segja beinlínis deili á sér, eins og til dæmis Gestur, sem heitir ekki Gestur, en ER gestur.
Ég er mun ánægðari með rónatitilinn og þakka afdráttarlausan stuðning Önnu.
Róni fer á milli blogga, ekki kannski slagandi, en fær sér sopa og er ekki með fast aðsetur.
Ég þekki mann sem langaði eitt sinn til þess að verða strandróni, í framtíðinni, hlæjandi með drykk í hendi og í blómaskyrtu, á einverjum hlýjum stað.
Svo hef ég heyrt talað um dharma-róna, fólk sem vinnur ekki, klæðir sig hippalega og eltir austræna spekinga á röndum. Þeir eru mikið í Asíu.
En bloggróni hentar mér sem sagt vel. Hikk. (Hér væri pláss fyrir léttkenndan smiley).
Kveðjur til Kalla.