www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Congratulations!
Föstudagur, 24. mars 2006

silvianottvideo.jpg

Það er allt að vinna með Silvíu Nótt í þessu Eurovision dæmi. Ekki aðeins fær hún að vera síðust á sviðið - þannig að hún verður fersk í hugum fólks þegar það fer að kjósa - heldur tókst þeim að setja saman helvíti töff myndband við lagið og enska útgáfan fer fram úr björtustu vonum mínum.

Reyndar voru þær vonir ekkert svakalega bjartar en ég gleymdi að taka með í reikninginn að við eru með fagfólk í þessu.

I - LOVE - YOU!


| anna | 18:01 |
comments

Þessi stelpa er bara tremma talented. Ég hló upphátt að atriðinu þar sem hún talar við Guð í síma. Reyndar hélt ég að hún væri að tala við pabba sinn fyrst en það breytir engu. Þetta ákveðna atriði hefði mjög auðveldlega getað orðið leim en taktarnir hennar sjá til þess að svo er ekki. Skiluru.

Nr. 1 | posted by: Kalli | 24.03.2006 | 18:19:29 | [+] |

Já, heyrðu Anna, á ekki að koma Silvía Night-shining-in-the-light smælí? angel

Nr. 2 | posted by: Kalli | 24.03.2006 | 18:20:30 | [+] |

Hvað heldur þú?

Nr. 3 | posted by: anna | 24.03.2006 | 18:22:29 | [+] |

Bara ekki nokkur spurning - það lang, lang, lang besta sem við höfum nokkurn tíma sent í þessa keppni. Loxins hættir maður að geta haldið því fram að húmorgenin hafi dáið út í móðuharðindunum laughing

Nr. 4 | posted by: Simmi | 24.03.2006 | 20:20:30 | [+] |

Ohh hún er bara frábær, bæði á ensku og íslensku.
Ég er rosalega hrifin af enska textanum og hef tröllatrú á að hún eigi eftir að skemmta okkur á júrókvöldinu.

Ég er allavega byrjuð að skipuleggja júrópartý! vú hú colgate

Nr. 5 | posted by: Elín | 24.03.2006 | 20:53:41 | [+] |

ég hló svo mikið að dóttir mín spurði hvort ég væri farin að taka bleiku pillurnar oní þær gulu laughing

Nr. 6 | posted by: baun | 24.03.2006 | 20:54:10 | [+] |

Nú er bara að vona að þeir sendi einhvern sem kann að lýsa þessari keppni eins og því djóki sem hún er.

Páll Óskar var frábærlega nasty kynnir á sínum tíma.

Allt nema Gísla Martein. Please.

Nr. 7 | posted by: Lindablinda | 24.03.2006 | 22:16:58 | [+] |

Linda; Við erum að tala um Kastljóströllið Sigmar, eða er það ekki? Er hugsanlegt að það gæti klikkað?

Nr. 8 | posted by: Harpa | 24.03.2006 | 22:37:04 | [+] |

Silvia Nótt RÚLAR!

Nr. 9 | posted by: anna | 25.03.2006 | 11:37:59 | [+] |

Silvia Nótt love

Nr. 10 | posted by: Kalli | 25.03.2006 | 13:02:45 | [+] |

Silvía Nótt er tremmakrútt og maður hlakkar til að sjá hana á sviðinu í Afríku, enda elskum við hana og dáum, Íslendingar. Enski textinn er jafn flottur og hinn íslenski, og treysti ég því að SN hafi sjálf séð um umsnúninginn, annað væri ekki við hæfi. Nota talentana!

Búningarnir! Hommi og Nammi! Litirnir! Ohh, ég vildi að ég hefði fundið uppá ´essu, gæti dáið vitandi að ég hefði skilað einhverju meaningful til ykkar hinna tíkanna, ókei?
Fyrst að Lifur er annað hvort í aðgerð í frystihúsi Færeyinga (að bjarga verðmætum) eða klofandi fjörur í leit að grindhvölum og kemst ekki í tölvu langar mig að spyrja þig sem SN aðdáanda, anna:
vinnur hún útá a) lúkkið, b) húkkið, c) sönginn d) hinir geta ekki neitt, e) skiluru?

Nr. 11 | posted by: Atviksorða-Anna | 26.03.2006 | 1:49:06 | [+] |

tjah.. þú, eins og Lifur, spyrð spurninga með ekki svo góðum svarmöguleikum.

Ég hef aldrei haldið að hún muni vinna þetta, ég verð hinsvegar stolt þegar hún stígur á svið sem fulltrúi íslensku þjóðarinnar.

http://tinyurl.com/2zdcgb
e) skiluru?

Nr. 12 | posted by: anna | 26.03.2006 | 1:55:49 | [+] |

Hún er náttúrulega fulltrúi allra íslenskra kvenna sem tekst að finna hinn eina sanna Little black dress... wink laughing

Nr. 13 | posted by: Atviksorða-Anna | 26.03.2006 | 11:02:11 | [+] |

Hún er síðust í forkeppninni... maður hefur ekki hugmynd um hvar hún endar á sjálfu úrslitakvöldinu, ef hún kemst áfram þ.e.a.s.

Myndbandið er æði og þýðingin engu minna fyndin.
Var reyndar að spá hvernig það fari ofan í sumar teprur að heyra orðið fucking og að tala við Guð í síma og kalla hann dog hehehe.
Setningin um að hittast að ári á Íslandi finnst mér líka frábær.
Hún er multitalented og það verður gaman að sjá hana á sviði.

En ertu búin að sjá finnska vídeóið? Eh....

Nr. 14 | posted by: Edina | 26.03.2006 | 13:58:49 | [+] |

Silvía Nótt fær harða samkeppni frá Slóveníu þar sem þrír ýktir klæðskiptingar munu koma fram fyrir þeirra hönd. Var að spjalla við leigubílstjórann sem greip fyrir andlitið þegar umræðan kom upp og lýsti þessu svipðu og hér heima, þe. sumir alveg miður sín en margir sem vilja ögra keppninni! Verður það Ísland - Slóvenía!!

Nr. 15 | posted by: eddið | 27.03.2006 | 10:40:11 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web