www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
4,5
Mánudagur, 06. mars 2006

Jæja. Ef marka má hversu mikið þessi jarðskjálfti skók Tæknigarð áðan...

..er heimili mitt líklega hrunið til grunna núna.

Ég er ekkert að djóka þegar ég segi að ég búi í illa byggðu húsi.

Ég þori ekki heim.


| anna | 15:02 |
comments

Eftir fljóta yfirferð sýnist mér ekkert af þínum húsmunum hafa endað niðri hjá mér, enda skjálftinn fremur aumingjalegur samanborinn við forþvott í gömlu vélinni þinni, hérna í den.

Nr. 1 | posted by: Hugi | 6.03.2006 | 15:11:45 | [+] |

LOL

Nr. 2 | posted by: anna | 6.03.2006 | 15:14:48 | [+] |

Þess vegna voru kisurnar svona crazy!!

Vissi ekkert af þessum skjálfta og fann ekki fyrir honum, en dýrin eru beintengd við náttúruna.

Meira að segja gamli (9ára sem sagt 63 ára) spólaði hér um á parkettinu, skaust beint upp í loft, setti upp kryppu og gólaði. Brjálæðingurinn hoppaði hins vegar bara sína hefðbundu 3 metra beint upp á stofuskáp og þóttist ekki vera til. chococat

(Brauðrist Anna, brauðrist wink )

Nr. 3 | posted by: Lindablinda | 6.03.2006 | 16:30:45 | [+] |

Katla og Anna J voru báðar hér inni þegar skjálftinn reið yfir. Ég fann strax fyrir honum, en þær fundu ekki neitt.

Já, og ég held að Tæknigarður hafi frekar lélegt burðarþol miðað við meðal-hús í Reykjavík. Amk finnst mér þetta hús vera sískjálfandi.

Nr. 4 | posted by: Elías | 6.03.2006 | 16:38:56 | [+] |

Gott að sjá að þú slappst lifandi. Annars er húsið þitt ekkert illa byggt ef ég man rétt. Alla vega var grunnurinn og sökkullinn alveg ágætlega unninn eftir því sem ég man best, góðir pollar og ranghalar síðar sem hentuðu fyrst í reiðhjólarallí og síðan til æsilega myrkraverka eftir að búið var að slá frá fyrstu steypunni.

Nr. 5 | posted by: AlanHudson | 7.03.2006 | 5:54:06 | [+] |

Það lítur út fyrir að anna.is hafi orðið eina fórnarlamb jarðskjálftans. Ég bið lesendur að minnast hennar með einnar mínútu bloggles- og skrifhléi.

Nr. 6 | posted by: AlanHudson | 8.03.2006 | 1:06:54 | [+] |


Sko, það er bara gaman á skjálfa pínu.

Skalf af spenningi, frá kl 04:30 aðfaranótt föstudagsins og til 07:20 á laugardagsmorgun.

Litla dóttir mín var sko að berjast við, að koma afabarni í heiminn.

Afabarn no4 iss karlinn er orðinn ríkari. tvær stelpur og tveir strákar, með mín gen að hluta. Fjögur atkvæði þar, þegar fram líður.

Kommarnir mega bara að fara að vara sig wave

kveð þig skjálfandi grobbinn.

Þú segir frambjóðandanum henni mömmu þinni þetta frá mér colgate

Fer að dansa Salsa og hafa tremma gaman af ellinni

Kveðjur

Bjarni
Miðbæjaríhald

Nr. 7 | posted by: Bjarni | 8.03.2006 | 10:07:03 | [+] |

Til hamingju með nýja afabarnið! wave

Ég öfunda dóttur þína. Vona að allt gangi vel með litlu dúlluna og góða skemmtun í Salsa! smile

Nr. 8 | posted by: anna | 8.03.2006 | 10:22:47 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web