www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Walk the line
Sunnudagur, 19. febrúar 2006

Doddi er veikur. Það var hringt í mig úr skólanum í gær og ég fór að sækja hann. Hann lá í sófanum eins og slytti í allan gær og allt gærkvöld. Hann var nú hressari í dag og horfði meira að segja á keppnina - úr sófanum - eins og hertogi. Eða.. eins og við hin.. horfði hann á Silvíu Nótt.. hitt hlustuðum við bara á.

Ég frétti um daginn að myndin um Johnny Cash væri góð, svo ég skellti mér á hana áðan - inní stofu. Johnny Cash var ekkert smá lengi að fá þessa einu réttu til að giftast sér en þegar hún loksins sagði já.. þá lifðu þau hamingjusöm til æviloka.

Mér fannst þetta góð mynd.

Til æviloka. Hvað ætli það sé langur tími í mínu tilfelli?

Could it be? You're turning to home?

Ég hef alltaf átt erfitt með þetta orð, "heim". Frá því ég man eftir mér, hefur mér aldrei fundist ég vera komin.. heim.

Ég hef sagt mjög fáum frá því.. en í byrjuninni á myndinni "the lion king" - á íslensku. Þá syngja þau í byrjuninni "þar til við finnum stað, sem að hentar okkur, gegnum lífið og lífsferilinn."

Dóttir mín horfði á þessa mynd þegar hún var lítil. Þetta var fyrsta myndin sem hún sá í bíó og ég veit ekki hvað oft hún horfði á myndina á vídeói. Upprunalega spólan sem við keyptum er ónýt. Af ofspilun. Og í hvert eitt og einasta sinn (líka í bíó þegar ég sá hana fyrst) sem ég heyrði þau syngja þetta leið mér.. ekki vel. Því ég vissi að ég var ekki búin að finna þennan stað.

Þá hélt ég að staðurinn væri bundinn við að eiga eigin íbúð.

Ég hafði rangt fyrir mér.

Stundum skammast ég mín fyrir að líða svona, fæ samviskubit gagnvart börnunum mínum. Ég er þeirra heimur, þeirra "heim". En þau eru ekki mitt. Ekki að mér þyki ekki meira vænt um þau en allt annað í heiminum og ég verð alltaf til staðar fyrir þau. En þau koma ekki til með að búa hjá mér alltaf þó að ég voni vissulega að þau komi alltaf til með að vera hluti af lífi mínu. Ég á þau ekki. Þau eiga sitt líf sjálf. Mitt hlutverk er að hjálpa þeim af stað.. að finna sitt "heim".

Ég hef aðeins einu sinni fengið það á tilfinninguna að ég væri komin heim.

Það var á kaffihúsi.

Og ég hafði rangt fyrir mér.


| anna | 1:17 |
comments

Well kjútípæ, haven´t we all ? "luvs" fyrir.... beint í mark. XXX

Nr. 1 | posted by: Lindablinda | 19.02.2006 | 2:21:14 | [+] |

Mér fannst Walk the Line alveg fín, þannig séð en ég hef vægt ofnæmi fyrir bjútí and ðe bíst heilkenninu og trúi því ekki alveg að þau hafi lifað hamingjusöm til æviloka.

Ég held nefnilega að það sé ekkert "heima". Trúi þessu með ferðalagið hans Tómasar.

Nr. 2 | posted by: Eva | 19.02.2006 | 12:29:13 | [+] |

Johnny Cash er gangsta!

Nr. 3 | posted by: Kalli | 19.02.2006 | 13:19:20 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web