www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Óvænt endalok
Sunnudagur, 05. febrúar 2006

Styggðarlega góðir þættir.

Ég man eftir bits and peaces úr mörgum en einn þáttinn man ég næstum eins og ég hafi séð hann í gær. Veit ekkert af hverju því ég sá hann bara einu sinni og sem krakki. Það er stundum þannig. Eitthvað er eftirminnilegra en annað og það er ekkert endilega til einhver skýring á því.

Þessi þáttur fjallar um mann sem vinnur fyrir prest og hefur gert það alla sína hunds og kattar tíð. Hann og konan hans eru hamingjusöm og það eina sem þau þrá er að halda áfram að vinna fyrir prestinn þangað til þau eru komin á aldur og geta haft það notalegt í ellinni, enda eru þau komin vel yfir fimmtugt þegar sagan gerist.

En eins og í lífinu.. þá fara hlutirnir stundum ekki alveg eins og maður óskaði sér og einn daginn segir presturinn manninum upp störfum, vegna þess að okkar maður er ólæs og óskrifandi og getur þessvegna ekki tekið að sér eitthvað verkefni sem presturinn vill að aðstoðarmaðurinn taki að sér.

Gömlu hjónin eru gjörsamlega lost í lífinu og draumurinn um notalegt ævikvöld gufar upp þegar þetta gerist, því atvinnuhorfur eru ekki góðar og auk þess finnst þeim þau vera að tapa hluta af sér, hafa unnið fyrir kirkjunna allt sitt líf.

Eftir að hafa velt málinu fyrir sér ákveða þau að nota þann litla sparnað sem þau eiga og setja þá á laggirnar lítið og vinalegt kaffihús, eitthvað sem þeim finnst vanta í bæinn sem þau búa í.

Á stuttum tíma verður kaffihúsið myljandi success, þau opna útibú hingað og þangað um landið og þátturinn endar á því að þau eru að selja kaffihúsa keðjuna til fjárfestingarfyrirtækis fyrir alveg mökk af peningum.

Peningum sem koma til með að tryggja þeim töluvert mikið notalegra ævikvöld en þau höfðu látið sig dreyma um.

Þegar kemur að því að undirrita samningana verður okkar maður vandræðalegur og þarna í fundarherberginu kemur uppúr dúrnum að hann kann ekki að skrifa nafnið sitt.

Forsvarsmaður fjárfestingarfélagsins verður furðu lostinn og segir si svona: "eins farsæll bisnessmaður og þú! Hvernig væri líf þitt eiginlega í dag ef þú kynnir að skrifa fyrst þú gast áorkað öllu þessu ólæs og óskrifandi!"

Og okkar maður svarar: "ef ég kynni að skrifa væri ég ennþá aðstoðarmaður prestsins í bænum"

Ég held að ég muni alltaf eftir þessari sögu vegna þess að stundum.. þegar maður upplifir sig hafa misst eitthvað mjög verðmætt.. þá kemur í ljós seinna að hvað sem gerðist var ein stærsta gæfa sem fyrir þig gat komið.

Á morgun á ég stefnumót við mann... sem á hund.


| anna | 11:57 |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web