www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
The look of love
Fimmtudagur, 23. febrúar 2006

whitemansoverbite.jpg

Stundum segir ein mynd meira en þúsund orð.


| anna | 21:21 |
comments

Ljóminn úr brúnum augunum skein....

Langt síðan ég hef séð þig svona ástfangna!
Til hamingju með græjuna wave

Nr. 1 | posted by: Harpa | 23.02.2006 | 21:54:44 | [+] |

Tekur hún bæði inn á sig heitt og kalt?

Nr. 2 | posted by: AlanHudson | 23.02.2006 | 22:11:54 | [+] |

happy

Nr. 3 | posted by: Kalli | 23.02.2006 | 22:32:17 | [+] |

crazy_pilot

happy

Nr. 4 | posted by: Þór | 23.02.2006 | 22:38:30 | [+] |

Á núna að henda balanum og brettinu?

Nr. 5 | posted by: Elías | 23.02.2006 | 22:41:59 | [+] |

Alveg rétt! Ég hef ekki séð svona auglit síðan mér voru síðast sýndar brúðkaupsmyndir. Og þá var svipurinn samt ekki alveg jafn innilegur.

Nr. 6 | posted by: Kalli | 23.02.2006 | 22:47:54 | [+] |

Hún tekur bara inn á sig kalt, en það er allt í lagi enda er bara kalt vatn í boði happy

Elías. Þú mátt gera það sem þér dettur í hug mín vegna. Ég myndi hinsvegar henda balanum og brettinu og fá mér þvottavél ef ég væri þú.

Kalli. happy

Nr. 7 | posted by: anna | 23.02.2006 | 22:52:30 | [+] |

Þetta minnir ótrúlega á leikritið ,,Líkamlegt samband úi Vesturbænum" hvar konan var haldin tækjakaupa áráttu.

Ekki svo að skilja, að það sé ekki bráðnauðsynlegt, að eiga eina svona flotta þvottavél. Ekki misskilja mig.

Ég hefði svosem frekar keypt sambyggða trésmíðavél til brúks út í bílskúr og farið með þvottinn til múttu. Svoan eins lengi og það væri í boði.

Innilega og óeiginlega til hamingju með græjuna.

Iss þið eruð flottar á myndinni, báðar tvær.

Kveðja

Bjarni K.

Nr. 8 | posted by: Bjarni | 24.02.2006 | 9:46:25 | [+] |

Bara sæt mynd, nú vill ég fá að sjá myndaseríu með Önnu og þvottavélinni.

1. Þegar þær hittust í fyrsta skipti
2. Þegar Anna klæðir hana úr
3. Þegar þær faðmast í fyrsta skipti

o.s.frv. embarassed

Nr. 9 | posted by: Andri | 24.02.2006 | 10:27:39 | [+] |

Trésmíðavél hljómar svona eins og Wallace & Gromit tól. Einhver maskína sem maður stingur spýtum í og út úr kemur stóll happy

Nr. 10 | posted by: Kalli | 24.02.2006 | 11:23:42 | [+] |

vá þessa ætti að nota í auglýsingar.
"Nýja parið frá AEG!"

kem essu áfram happy

Nr. 11 | posted by: Elín | 24.02.2006 | 11:40:05 | [+] |

úúúú happy


Nr. 12 | posted by: anna | 24.02.2006 | 13:46:31 | [+] |

" Stundum segir ein mynd meira en þúsund orð. " segir þú í upphafsinnleggingu.

Ég var ánægður með að sjá orðið "stundum" í þessu samhengi því það er skárra en flestir myndu skrifa þetta. Flestir nota þetta spakmæli sem alhæfingu á þennan hátt:

" Ein mynd segir meira en þúsund orð".

Ég hef stundum velt því fyrir mér hver það var sem fann þetta spakmæli upp því sem alhæfing er þetta auðvitað eins og hver önnur vitleysa. Það er nefnilega augljóst að orð með mynd hljóta að segja miklu meira en myndin ein og sér.

Niðurstaða mín er því sú að sá sem fann þetta spakmæli upp var annaðhvort latur, lesblindur eða illa skrifandi nema auðvitað að allt hafi átt við. Nema honum hafi dottið þetta í hug eftir að hann hafði verið beðinn um að skrifa texta við auglýsingu en ekki dottið niður á neitt gott og því reddað málinu með finna upp þessai klisju.

Tökum dæmi um það hvernig skilaboðin verða stöðugt skýrari eftir því sem textinn með myndinni verður lengri (orðin fleiri).

1. Kona og þvottavél.

2. Anna og AEG þvottavél

3. Einstæða móðirin anna við nýju AEG þvottavélina sem hún fékk hjá Bræðrunum Ormsson en þess má geta að þessi gerð er með íslensku stjórnborði.

Í fyrsta dæminu eru orðin 3, í næsta dæmi 4 og í því síðasta eru orðin 24. Það er því ljóst að eftir því sem orðunum fjölgar því skýrari verða skilaboðin.

Til nánari sönnunar má nefna að ef allar færslur sem tengjast umræddri þvottavél og komment við þær eru lesin þá eru orðin sennilega orðin nokkur hundruð og um leið eykst skilningur þeirra sem sjá myndina og lesa orðin, ergo: Skilningur eykst.

Í þessu samhengi má nefna að það hefur t.d. verið sýnt fram á að sáralítill munur er á lestri texta frá 50 orðum og uppí 500 orð.

En svakalega myndist þið báðar vel. Það verður ekki af ykkur tekið.

Nr. 13 | posted by: igor | 26.02.2006 | 13:48:03 | [+] |

Samt er það nú stundum að sumir geta fjölgað orðafjölda án þess að stuðla að aukningu skilnings. En það eru reyndar oftast stjórnmálamenn. Annars er ég alveg sammála. Fólk sem brúkar spakmæli, orðtök og máltæki, et al, sem heilagan sannleik fer óendanlega í taugarnar á mér.

Nr. 14 | posted by: Kalli | 26.02.2006 | 16:17:14 | [+] |

eða eins og Kate Bush segir
...
Then I took my laundry basket
And put the linen all in it
And everything I could fit in it
And all our dirty clothes that hadn’t gone into the wash
And all your shirts and jeans and things
And put them in the new washing machine
Washing machine
Washing machine

http://www.alwaysontherun.net/kate.htm#n4

Nr. 15 | posted by: lesandi sem kommentar aldrei | 28.02.2006 | 16:55:55 | [+] |

er það ég.. eða er þessi texti dirty?

ehm.. happy

Nr. 16 | posted by: anna | 1.03.2006 | 11:13:44 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web