www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
SOAP
Þriðjudagur, 21. febrúar 2006

Ég nenni ekki að fletta því upp því ég man ekki hvar þessi umræða var, hvort hún var á mínu bloggi eða hjá einhverjum öðrum.. en mig rámar í að fólk hafi verið að velta því fyrir sér hvort þessir þættir eltust illa.

Well. Frumburðurinn er búin að sitja fyrir framan sjónvarpið í allt kvöld, veltist um úr hlátri og er búin með 1. season af soap.

Þetta eru bara dásamlegir þættir. Alveg dásamlegir.

Ég fór hinsvegar á kaffihús í kvöld með vini mínum. Við vorum að spjalla saman, eins og fólk gerir og ég spurði hann hvort hann væri búinn að sjá myndina brokeback mountain og hann sagði nei. Svo sagði hann "og ég held að það gæti orðið vandræðalegt að fara með einhverjum af strákunum á hana". Ég glennti upp augun - sá fyrir mér ákveðnar senur í myndinni og tvo vini útí sal. Karlmenn sem ákváðu að fara saman í bíó. Straight karlmenn. Ég dó úr hlátri því ég efast um að þeir karlmenn kæmu til með að fara NOKKURTÍMA AFTUR Í BÍÓ SAMAN.

Né nokkuð annað.

Þetta er líklega tabú fyrir straight karlmenn. Ég fór með vinkonu minni á þessa mynd í bíó og ég fann ekki fyrir neinum vandræðagangi með það. Ég veit ekki hvort það hefði verið vandamál ef myndin hefði fjallað um lesbíur. Líklega ekki þar sem vinkona mín er gift. Ég myndi ekki fíla að fara á lesbíu - ástar mynd með vinkonu minni sem væri single. Því eins og Kristján Ólafsson myndi orða það.. ".. gæti misskilist".

En grípum niður þar sem Mary er að útskýra fyrir Burt af hverju hún er "not in the mood" og Burt er frekar ósáttur því í hálft ár hefur hann ekki verið "in the mood" og Mary hefur gert lítið annað en að kvarta yfir því.

Burt: "Not in the mood. Not in the mood! For six months, all I've been hearing from you is "when" and now all of the sudden it's "i'm not in the mood"".
Mary: "Burt.. how can i be in the mood? This morning we took Jody to the hospital (Jody er að fara í kynskiptiaðgerð) this afternoon Jessica found out Chester has been unfaithful to her and a few moments ago i found out the mob is trying to kill Danny"
Burt: "uhhh... well..aaa.. that kinda let's the air out of my tires"


| anna | 23:01 |
comments

Anna! Heyri ég raddir fóbíu og vanþekkingar hljóma??

Á dauða mínum átti ég von......

Eiga s.s lessu og homma vinir bara að sleppa því að fara í bíó af því að þar eru allir straight að gera dodo og það gæti misskilist....eða....má ég ekki fara með giftri lesbíu á mynd um lesbíur því þá myndi hún kannski vilja kyssa mig eða....við á straight mynd ...og ég myndi vilja dúndra hana????????????

TOO CONFUSING!! melodramatic

Nr. 1 | posted by: Lindablinda | 22.02.2006 | 0:19:15 | [+] |

Confused? You won't be after the next episode of.. SOAP

hehehe

Nr. 2 | posted by: anna | 22.02.2006 | 0:21:01 | [+] |

.......minnir mig á þegar að ég nýskilin gellan gekk niður Laugarvegin með vinum mínum kynvillingunum og allir sem sáu mig ráku sig í rass og ákváðu að ég væri lessa og þess vegna værum við skilin hjónin.

Það sem samt var fáránlegast var að það var talað um það eins og það væri eitthvað hræðilegt ef satt væri og eitthvað sem ég ætti að skammast mín fyrir.

En djöf...væri ég til í að sjá SOAP aftur - hef ekki séð þá frá sjónvarpsdögum.......en samt er ég straight!

Nr. 3 | posted by: Lindablinda | 22.02.2006 | 0:23:10 | [+] |

Mig rámar í þessa þætti. Billy Crystal að halda að hann sé 100 ára gamall Gyðingur ekki satt? Væri gaman að sjá þá aftur. Og líka Sledge Hammer happy

Ég man þegar ég fór með vini mínum á My Own Private Idaho og honum fannst sem það væri horft skringilega á hann. Kannski þótt ég ekki nægilega hot date fyrir hann melodramatic

Nr. 4 | posted by: Kalli | 22.02.2006 | 1:06:46 | [+] |

Þessi umræða var víst hjá mér:

http://nannar.blogspot.com/2005/08/g-s-fjlmilarni-frttablasins-tti.html

Nr. 5 | posted by: Nanna | 22.02.2006 | 1:34:22 | [+] |

Já mig minnti að þetta hefði verið hjá þér einmitt en fannst eins og ég hefði einhvertíma líka skrifað um sápuna og það var rétt hjá mér, nema ég skrifaði S.O.A.P ekki SOAP. Líklega var ég undir einhverjum helvítis M.A.S.H. áhrifum nema með punkta í staðin fyrir stjörnur.

Ég virðist alltaf vera undir áhrifum.

Annars myndi ég ekki kaupa mér SOAP seríuna á DVD eins og það er í dag. Mér finnst hljóðið svakalega lélegt. Breytir ekki að þessir þættir klikka ekki. Nostalgía dauðans.

Nr. 6 | posted by: anna | 22.02.2006 | 11:05:57 | [+] |

Alveg var ég viss um að þú ætlaðir að fara að tala um Simple Object Access Protocol. Stundum er maður bara of mikill nörd.

Nr. 7 | posted by: Daníel | 22.02.2006 | 15:34:41 | [+] |

lol

Nr. 8 | posted by: anna | 22.02.2006 | 16:49:30 | [+] |

Af hverju fæ ég alltaf hroll þegar einhver notar að "gera dodo" þegar það er til nánast óendanlegt úrval af orðum yfir kynferðislegt samræði, og mörg orðin mjög skemmtileg.

Linda, I smell wool, ertu landsbyggðapakk?

Afsakið neikvæðnina colgate

Nr. 9 | posted by: DonPedro | 22.02.2006 | 23:49:37 | [+] |

GRRRRRR, addna donpedrometró og allslags solleiss.
Við landsbyggðapakkið sættum okkur ekki við að svona sé um okkur talað. Við erum landsbyggðarfrík og ekkert minna en það. Ég ét framsóknartútturnar mínar upp á það drunk

(Hvað er þetta..., jú, og hvað með það þó Ístex hafi flutt ullarþvottastöð sína á Blönduós melodramatic )

Nr. 10 | posted by: Harpa | 23.02.2006 | 0:49:19 | [+] |

Harpa. Ég held að þú sért örlítið að misskilja DonPedro. En Pedro, you are excused. wink

Já og Harpa, ég veit að ég á ekki að spyrja að þessu og líklega mun ég sjá eftir því, en.... hvað, nákvæmlega, eru "framsóknartúttur"?

Erum við að tala um skó, húsdýr eða nýja framhaldssögu eftir Margit Sandemo? doubt

Nr. 11 | posted by: anna | 23.02.2006 | 10:11:35 | [+] |

Amm, allir rólegir, ég er anti-metró maðurinn holdi klæddur. Konan mín kaupir fötin mín. En svona málskrípi tíðkast meira hjá þeim sem eiga glímubúninga en hjá þeim sem nagað hafa malbik frá blautu barnsbeini.

Þannig að spurningin var af Mál-Landafræðilegum toga.

Nr. 12 | posted by: DonPedro | 23.02.2006 | 10:41:18 | [+] |

Ég var nú meira að benda á grundvallarmuninn á pakki og frík happy
Nú er nýmóðins að vera frík. Skilurru? cool

Ég veit alveg að DonPedro var ekkert að dissa landsbyggðina, fannst ég bara verða að svara, verandi frík angel

Og Anna mín, þú þarft að fara oftar upp fyrir Ártúnsbrekkuna. Framsóknartúttur eru að sjálfsögðu hvítbotna gúmmískór colgate

Nr. 13 | posted by: Harpa | 23.02.2006 | 11:36:38 | [+] |

Hvað er þetta eiginlega! Ég sagði skór! Meira að segja fyrst! melodramatic

Nr. 14 | posted by: anna | 23.02.2006 | 11:55:14 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web