Ég verð að segja fyrir mína parta, mér þætti meira spennandi að sjá Ingólf Arnarson eða Snorra Sturluson í allri sinni ( setjið lýsingaroð um gömul dauð kjötstykki hér ) dýrð fara með bálka úr Hávamálum en að sjá þetta ofmálaða ofgreidda ofdressaða ofleikna OF-fyrirbæri á sviði.
Eða bara kaffibrúsakallana.
Myndi meira að segja þakka pent fyrir að fimm-ára-bekkur einhvers leikskóla yrði fyrir valinu að syngja "signi sól" ( ekki að fimm-ára-bekkingar syngi illa, ég myndi bara frekar vilja sjá þá sem fulltrúa okkar tónlistarmenningar en þetta frík ).
Nr. 2 | posted by: anna |
2.02.2006 | 13:51:27 | [+] |
Aldrei aldrei aldrei skal ég opna eyru mín fyrir óhljóðum þessarrar (ó)veru aftur. Ég heyrði í henni hneggið í einhverjum kastljósþætti og hef ekki beðið þess bætur síðan.
Mér leið eins og það væri verið að skafa úr mér heilann með skeið - og viti menn, skeiðin var bitlaus og eftir á að hyggja þá vantar í mig stykki af heilanum
held að gaurarnir hér fatti ekki að Silvía er karakter - leikinn karakter - og mér finnst hún oft bráðfyndin...söng- og leikkonan Ágústa er allt önnur manneskja (frábær söngkona - syngur í Ske, skiljiði?)
Kalli: áhugaverður punktur. Og nokkuð úthugsaður. Ef við gefum okkur að Silvía(TM) sé soramanneskja ( athugasemd, ekki fullyrðing ) og gefum okkur svo að keppnin sé sorakeppni, og svo til viðbótar að keppnin sé Silvíu(TM) ekki samboðin, þá er keppnin væntanlega meiri sori en Silvía(TM) ?
Þá verður maður að spyrja sig, "Hvað erum við að hafa áhyggjur af þessarri keppni yfirleitt?"
Legg til að við leggjum keppnina á hilluna, og fáum eitt lifrarinnlegg eða svo.
talandi um texta ~ mer fannst bara svo frabaert thegar ljoshaerda beibid fra ameriku i bleika toppnum song sidasta laugardag um hvad thad vaeri mikil hamingja ad vera skilin vid kallinn, hehehehehe, og frjaaaaaaallllsss!! oborganlegt, hlo jafn mikid og yfir mr.Gervais i gaer.
Búinn að hlusta á þetta lag nokkrum sinnum. Ef það vinnur, þá 16. sæti eða neðar í keppninni úti. Mér finnst önnur lög sem hafa komið betri en þetta. Svo má ekki gleyma hvaðan meirihluti þátttakenda kemur núorðið.
Húkkið í laginu liggur í textanum og karakternum sem allir þekkja. Þessi texti er illþýðanlegur, og eftir að þú ert farin(n) frá Keflavík þá þekkir enginn Silvíu Nótt.