www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Rökhugsun
Sunnudagur, 26. febrúar 2006

Ég er ekki nógu dugleg að borða.

Og ég get ekki ákveðið hvað ég vil hafa í matinn í kvöld.

Núna er ég er föst í nákvæmlega þessari hugsanalúppu:

mig langar í eitthvað alveg hrikalega gott. á ég að búa mér til kjúkling? æ.. þá þarf ég að fara útí búð. ég nenni ekki útí búð. á ég að búa mér til pasta? mér finnst pasta ekki alveg nógu hrikalega gott. á ég að búa mér til samlokuna sem ég ætlaði alltaf að gera eins og hann í spanglish gerði? þá þarf ég líka að fara útí búð. ég nenni ekki útí búð. ég vil eitthvað styggðarlega gott að borða. mér dettur ekkert í hug sem mér finnst styggðarlega gott. auk þess er ég ekki svöng. samt langar mig í eitthvað hrikalega gott.

Það er útaf þessu sem ég hef ákveðið að fara í bað.


| anna | 18:48 |
comments

passadu thig margeir var ad aflúsa sig í badkarinu thínu fyrr í dag. Í sendibréfi sínu til mín taladi hann líka um ad hafa sett "nakta moppu" í nýju thvottavélina.
Eitthvad taladi hann líka um ad hafa sett flutningsfestingarnar aftur í, en hey... ekki daema hann!

Nr. 1 | posted by: lifur | 26.02.2006 | 19:38:06 | [+] |

Ég veit þetta allt saman. Margeir leggur fæð á þessa þvottavél og ég greip hann glóðvolgann í gær að hella koppafeiti í hana. Hann sagði að þetta væri óhrein koppafeiti og hann yrði að þvo hana.

Stundum líður mér eins og ég sé komin í sambúð aftur.

Ég á eftir að missa mig einn daginn Lifur. Og ef við áttum okkur á því að þessi þvottavél tekur 5.5 kg. og bætum við þeirri vitneskju að margeir er 3 kg (því ég hef ekkert gefið honum að borða lengi). Þá þarf ekki eldflaugasérfræðing til að spá fyrir um til hvaða úrþrifaráða ég kem til með að taka.

Auk þess þarf að fara að þvo þessa klósettmottu.

Ég dæmi margeir ekki. En ég gæti meitt hann. Allt annar hlutur.

Nr. 2 | posted by: anna | 26.02.2006 | 19:53:48 | [+] |

ekki setja hann í thvottavélina, thad er thad sem hann vill (vid mamma laestum hann inni í hjólageymslu á medan vid fórum í sólarlandaferdir og festum sídan myndir úr vatnsrennigardinum á veggina í herberginu hans).
Ef thú vilt virkilega hegna honum skaltu maema. Kúluhattur, hvítir hanskar og folur andlitsfardi og málid er brádhvatt.
Óli á hjól.
Bára er barn.
Margeir hatar maem.

Over and out... í bili.

Nr. 3 | posted by: lifur | 26.02.2006 | 19:59:05 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web