Ég einmitt man eftir að hafa fengið svona dúkku í gjöf frá vinnustaðnum hennar Önnu og verð nú bara að segja að þær eru einstaklega sniðugar. Samkvæmt þeim voodoo sögum sem ég hef heyrt þarf reyndar að finna sér persónulega muni eins og t.d. hár af höfði viðkomandi.
En þar sem við unnum nú undir sama þaki þá var það frekar auðvelt, múhaha
Galdrahundurinn kemur innan skamms. Og galdrakötturinn og galdra hamsturinn! hahaha
Heima hjá mér á ég stóra þunga möppu Andri. Í þessari möppu er allskonar dót sem ég safna saman. Flasa. Neglur. Tannsteinn.. og mannstu þetta skipti sem ég sagðist vera að taka könguló af bakinu á þér þegar við vorum hérna fyrir framan húsið að slæpast í sólskininu?
Ég var að ná í hár.
MÚHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHO
Hefur þér ekki gengið vel annars síðan? Ég hef bara galdrað þér gæfu og gleði sko.
Nr. 3 | posted by: anna |
13.02.2006 | 14:27:24 | [+] |
flott myndabrosið anna.. líka helv.. sniðugt að láta taka mynd af sér við spegil svo maður geti nú verið viss um að ná svipnum
Það er auðvitað orðið möst að eignast svona dúkku - (þú þín sjálflæga kapítalisma kona sem þykist vera garlakelling) - Sér í lagi þar sem hún samkvæmt bloggi þínu þrælvirkar
......alveg eins og fávitafælan sem ég keypti eftir að ég sá viðtal við arvölu garlakellingar í blaðinu- fór svo í strætó og var komin með hinn hefðbundna fávitaskara utan um mig innan 5 mínútna.
Ég verð alltaf að eiga allt svona sem virkar.....eins og Vanish og hrukkukrem
Skemmtilegt viðtal! Og já, ljósmyndabrosið alveg svínvirkar Flott að ná því svona frá báðum hliðum í einu due to the mirror Spurning hvort ég ætti að reyna að markaðssetja þetta frekar og selja hjá nornunum
En hvar er fávitaskarinn núna Lindablinda? Ef þú hefur notað fæluna rétt eru fávitarnir farnir að láta sér nægja að mæna á þig úr fjarlægð. Þeir eru nú farnir að átta sig á því að þú ert of góð handa þeim og voga sér því ekki lengur að reyna að troða sér inn á þig. Ef þú ert ennþá að falla fyrir fávitum skaltu endurtaka galdurinn. Það þarf að æfa sig í galdri eins og öllu öðru.
Nr. 8 | posted by: Eva |
13.02.2006 | 17:22:27 | [+] |
Ljósmyndabrosið virkar, ekki spurning. Ég átti ekki hugmyndina að því að vera upp við spegil en það kemur vel út og á sumum myndunum er ég eins og tvær gjörólíkar manneskjur. Ég er viss um að þú gætir selt leiðbeiningar mðe ljósmyndabrostækni Sigga. Þetta er tækni, grínlaust.
Baun. Ég elska karlmenn og flestir þeirra eru yndislegir. Þeir eru bara einfaldlega búnir að finna sér konu þegar þeir eru komnir á minn aldur. Hinir.. eru líklega þessir sem við skildum við vegna þess að þeir eru vonlausir í sambúð eða.. þessir sem engin nennti að búa með in the first place.
Annars er ég nú bara að grínast með þetta. Við erum öll meingölluð, hvert eitt og einasta okkar. Konur eru ekki minni fávitar en karlmenn. Við þurfum bara að finna einhvern sem kann að meta gallana okkar.
Ég hef allavega engar þungar áhyggjur af því að finna ekki mr. right. Ef ég hefði áhyggjur.. væri ég þá ekki að gera eitthvað í að finna hann?
Nr. 9 | posted by: anna |
13.02.2006 | 17:53:24 | [+] |
Aaaaaa get it. Svona eins og Anna æfði sig í myndabrosinu
Því skarinn er þarna ennþá, þess vegna er ég hér inni með hvítlauksandremmu og dregið fyrir glugga. Besta að draga fram "kittið" og æfa sig smá. Æfingin skapar greinilega meistarann.