www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Mögnuð vika so far
Fimmtudagur, 23. febrúar 2006

Ég er búin að kaupa mér þvottavél!

Það er engin smá eðal þjónusta hjá Ormsson. Á eftir ætla tveir fjallmyndalegir karlmenn (og sterkir) að koma nýju þvottavélinni minni upp alla stigana fyrir mig OG taka hana úr umbúðunum OG taka flutningsfestingarnar úr henni fyrir mig!

Annars er ég nú reyndar það sjóuð að ég veit að maður á að byrja á taka flutningsfestingarnar. Núna síðast bjargaði ég fyrrverandi eiginmanni mínum frá því að skemma nýju þvottavélina sína með því að þvo með flutningsfestingarnar í.

Sparaði honum stórfé. Eins og einn frábær lesandi gerði í dag! Sparaði mér stórfé og ég fékk frábæra kynningu á vélinni og veit allt sem hún getur gert og svo veit ég ýmislegt fleira sem ég vissi ekki áður. Til dæmis vissi ég ekki að það væri gott að sjóða þvott í þvottavélum tvisvar í mánuði til að drepa alla sveppina sem eru í fötunum manns.

Til allrar hamingju þá vill svo skemmtilega til að ég þvæ tvær suðuvélar í hverjum mánuði. Ég sýð nefnilega þvottapokana sem ég nota til að hreinsa á mér andlitið kvölds og morgna í þeirri veiku von að ég verði bólulaus en það ætlar að vera bið á því svo það er eiginlega kominn tími á drastískar aðgerðir, sem er önnur saga.

Bygons.

Vissir þú að það versta sem þú setur í þvottavél eru moppur? Það er vegna þess að hár og þannig ló-flóki getur undið sig utanum dæluna - sem kann ekki góðri lukku að stýra. Svo ég keypti mér netapoka fyrir moppur.

Þar sem ég stóð við afgreiðsluborðið hver haldiði að hafi birst! Engin annar en Valdi bróðir! Þessi sem börnin mín vissu ekki að væri til fyrr en um síðustu jól þó hann sé nokkrum árum eldri en ég! Og hann var líka að kaupa sér þvottavél! Við Valdi höfum alltaf haft spes tengingu. Og hann er partur af.. lygilegustu "tilviljun" sem fyrir mig hefur komið.

Fyrst finnur geiðvikin lesandi draumaþvottavélina mína, næst gerir annar greiðvikin lesandi mér fært að kaupa drauma þvottavélina mína og þegar ég kom heim áðan, in high spirits, fann ég bisness proposal í tölvupóstinum mínum frá góðum vini mínum sem er í námi erlendis.

Ég á eftir að skoða þetta betur en first impression er bara "já" all over the place. Þó ég reikni nú ekki með því að verða svo rík að ég eignast einkaþotu. Strax.

Samt. Stranger things have been known to happen.

Ég get hreinlega ekki beðið eftir að fara að þvo á eftir. Sem er tilfinning sem ég finn sjaldan fyrir þar sem mér leiðist að þvo þvott. Kannski er það bara vegna þess að ég hef verið að nota vonlausar græjur!

Kærar, kærar þakkir Elín!


| anna | 13:18 |
comments

Einkaþotu...???!!!???
heyrðu það vill einmitt svo til að ég þekki fólk.
e-mailaðu mér.... ha ha ha!

Góða skemmtun í þvottahúsinu
wave

Nr. 1 | posted by: Elín | 23.02.2006 | 14:08:14 | [+] |

Já einkaþotu. Ekki gleyma að ég ætla að kaupa Bentley og herragarð og þjón sem mun svara þegar ég kalla "James". Einkaþota er bara partur af miklu stærri pakka.

Ég er mikil raunsæismanneskja og hef alltaf haft báða fæturna á jörðinni.

En ég heiti á þig Elín. Daginn sem ég eignast einkaþotu mun ég bjóða þér í flugferð til.. t.d. París.. út að borða eða í leikhús eða í óperuna.

Eða kannski ekki samdægurs, ekki mikill fyrirvari kannski, en í sömu viku og ég fæ hana!

Eða við gætum ráðið male strippers og haldið einkasamkvæmi. Jafnvel í þotunni. Eða nei. Það yrði of subbulegt með kampavín og súkkulaði og jarðaber útum allt. Leigjum svítu á Ritz fyrir svoleiðis sukk. Ég vil nefnilega hafa ljósar innréttingar og áklæði í vélinni...

...og flugmann sem heitir.. Jude. Bara svo ég geti sagt: "Jude. Take me to heaven and back".

Þessi setning virkar eiginlega með hvaða nafni sem er. Nema Burt.

eða Carmichael
eða Harald.

Og þó.. Harald gæti nú alveg virkað..

Takk aftur Elín! wave

Nr. 2 | posted by: anna | 23.02.2006 | 14:30:43 | [+] |

Ekki gera of miklar væntingar til flutningamanna really sad

Ég keypti mér rúm- græjan heimsend með einum sjötugum og lúnum kalli. Endaði með því að ég dröslaði queen size dýnunni ein upp fjórar hæðir. Kallinn gerði lítið gagn - sagði "obbosí" og dreyfði þess á milli gamalli svitafýlu um allt nánasta umhverfi.

Það versta var að þetta var vitlaus dýna...............en það er önnur saga.

TIL HAMINGJU MEÐ NÝJU ÞVOTTAVÉLINA colgate

Nr. 3 | posted by: Lindablinda | 23.02.2006 | 15:37:14 | [+] |

Woohoo! Nú get ég hætt að fá kvíðaköst þegar ég fer inn á klósett, hef alltaf haft stórar áhyggjur af því að þvottavélin þín hrynji niður í gegnum gólfið og kremji mig til dauða í einhverri óvirðulegri stellingu.

Til hamingju!

Að óskyldum málum, fæ ég að þvo hjá þér um helgina? angel

Nr. 4 | posted by: Hugi | 23.02.2006 | 16:22:41 | [+] |

Heyrðu, heldurðu að ég hafi ekki bara farið í svona hjálpartækjabúð fyrir karlmenn og keypt nokkra steinbora í borvélina mína um síðustu helgi (ég þurfti að setjast niður í nokkrar mínútur eftir kaupin, testosteronsjokkið var svo öflugt, mmmm, verfæri, karlmannlegt, aaah).

Nr. 5 | posted by: Hugi | 23.02.2006 | 16:50:15 | [+] |

Vú hú hvað verður gaman! Djöfulli hlakka ég til þegar þú verður rík!

En strippararnir mega ekki vera í g-streng og alls ekki hlébarða
g-streng ég er með fóbíu fyrir mönnum í hlébarða g-streng, geturu punktað þetta hjá þér ef þú verður búin að panta stripparana áður en þú lætur mig vita af ferðinni?

takk.

en hvað gerði hóran?

Nr. 6 | posted by: Elín | 23.02.2006 | 17:01:31 | [+] |

Heyrðu ástin mín, Anna mín. Mun ekki einkaþotan fljúga jómfrúarferð sína með þig/okkurhinöllsemþúætlaraðverðlaunaþegarþúverðurrík beint til Parísar?

Ein allsherjar árshátíð bara svo þú verðir ekki alla ævina að standa við gefin loforð við okkur öll sem erum svo góð við þig alltaf hreint. colgate

Þú ert best!

Nr. 7 | posted by: Harpa | 23.02.2006 | 22:03:43 | [+] |

Grímuball í þotu! laughing

Nr. 8 | posted by: Kalli | 23.02.2006 | 22:33:25 | [+] |

Drífðu þig í þessu stelpa. Þá geturðu ráðið pabba gamla sem flugmann colgate

Eftir á að hyggja... „Gunnar, take me to heaven“ freaks me out sour

Nr. 9 | posted by: Kalli | 23.02.2006 | 23:00:25 | [+] |

Það verða engir hlébarðar eða viðlíkur óhugnaður! Þeir verða allir í boxer buxum. Þröngum svoleiðis. Engir múslimir.

MÚHOHOHOHOHOHOHO

(ég þarf að koma við hjá þér í hádeginu á morgun, gleymdi svolitlu)

Nr. 10 | posted by: anna | 23.02.2006 | 23:05:33 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web