Föstudagur, 03. febrúar 2006
Ég verð í fríi í vinnunn eftir hádegi á mánudaginn.
Í nótt dreymdi mig að ég hefði sofið yfir mig, vaknaði klukkan 13:43 og þegar ég kom fram var búið að brjóta full af glerflöskum út um allt heima hjá mér.
Í gær opnaði ég skúffu í svefnherberginu mínu og fann átta þúsund og fimm hundruð kall sem ég vissi ekki að ég ætti.
Þegar ég var að elda skar ég stykki úr þumalfingrinum á vintstri hönd.
Maturinn var svakalega góður.
Sum lykt minnir mig á löngu gleymda atburði.
Sum lykt lætur mig fá tár í augun.
Ég sakna Lifur.
Ég sakna Igor.
Ég sakna Organistans.
Ég sakna Tony.