www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Já..
Þriðjudagur, 21. febrúar 2006

Á meðan ég man.

Það er ekkert eins og það lítur út fyrir að vera. Aldrei. Hvergi.


| anna | 0:55 |
comments

Allt er eins og það lítur út fyrir að vera. En oftast sjáum við bara það sem við viljum sjá.

Nr. 1 | posted by: Hugi | 21.02.2006 | 1:12:11 | [+] |

Þetta hljómaði illa... vona að þú hafir bara verið að sjá The Matrix (fyrstu myndina, annars þarftu áfallahjálp) í fyrsta skipti.

Nr. 2 | posted by: Kalli | 21.02.2006 | 1:19:51 | [+] |

what

Nr. 3 | posted by: Lindablinda | 21.02.2006 | 2:26:51 | [+] |

Hmmm... Mín reynsla er sú að yfirleitt séu hlutirnir nákvæmlega eins og þeir líta út fyrir að vera. Við erum hinsvegar frá blautu barnsbeini forrituð til að trúa á þá rómantísku hugmynd að svo sé ekki. Verðum svo fyrir nettu áfalli þegar kemur í ljós að raunveruleikinn var einmitt alveg eins og okkur grunaði í fyrstu en vorum búin að afneita. doubt

Nr. 4 | posted by: Eva | 21.02.2006 | 7:48:00 | [+] |

Já.

Kannski hef ég bara selective view. Rómantíska tendensa þó ég sé reyndar ekki að tala um karlmenn í þessu samhengi.

Ég er að tala um annað og líklega hef ég brenglað mat því það virðist aldrei vera eins og það lítur út fyrir að vera.

Nr. 5 | posted by: anna | 21.02.2006 | 9:39:36 | [+] |

Neineinei, ég er að tala um bækur. Byggðar á sannsögulegum atburðum.

Var að horfa á Capote í gær.

Nr. 6 | posted by: anna | 21.02.2006 | 10:10:09 | [+] |

Sannsögulegar bækur eru skrifaðar af eftirlifendum og til þess gerðar að fegra annan aðilann. Ekkert mark á þeim takandi, þær eru allar lygar sour

Já og íslendingasögurnar eru uppspuni líka. Þær eru skrifaðar af Halldóri Flexnes, norskum minnkabónda sem ekki fékk að kaupa fiskimjöl frá íslandi. Svona hefndi hann sín - með einni riiisastórri lygi.

toungue

Nr. 7 | posted by: Þór | 21.02.2006 | 10:27:21 | [+] |

Ah.
Hoffman hefur náttúrulega rúlað.
Anna = Hoffman fan?

Nr. 8 | posted by: magnus | 21.02.2006 | 12:33:01 | [+] |

utifrik: Gee whiz ! wink Komst upp um mig happy

Fyrri málsgreinin er þó sönn, sagan er rituð af sigurvegurunum.

Nr. 9 | posted by: Þór | 21.02.2006 | 12:36:22 | [+] |

Verð... að... bíta... í vörina... gnasher

Nr. 10 | posted by: Kalli | 21.02.2006 | 12:57:55 | [+] |

Af hverju þarft þú að bíta í vörina Kalli?

Hoffman hefur verið í uppáhaldi hjá mér síðan ég sá Happiness.

Þarf nú að fara að horfa á hana aftur..

Nr. 11 | posted by: anna | 21.02.2006 | 19:46:51 | [+] |

Þór fékk mig til að bíta í vörina. PSH er snillingur. Það var reyndar ekki Happiness sem fékk mig til að fatta hann en hann var afbragðsgóður í þeirri fínu mynd – rétt eins og öllum öðrum sem ég hef séð hann í. Svona alvöru leikari en ekki bara einhver Hollywood pretty boy.

Nr. 12 | posted by: Kalli | 21.02.2006 | 20:17:18 | [+] |

Auðvitað hefur anna rétt fyrir sér. Það er ekkert eins og það lítur út fyir að vera. Aldrei. Hvergi.

Það er augljóst og ástæðan er heilinn.

Ef til væri raunveruleiki í bókstaflegum skilningi þá myndu væntanlega allir upplifa allt eins. Alltaf. Allstaðar.

En svo er ekki. Ástæðan er heilinn.

Heilinn gerir mynd af því sem við sjáum. Upplifum. Skapar ímynd.

Raunveruleiki hvers og eins er því mynd hans af raunveruleikanum. Ímynd sem er í sjálfu sér óraunveruleiki. En samt raunveruleiki í huga þess sem upplifir.

Paradigm shift. Það þýðir eitthvað í þá áttina að maður verður fyrir upplifun sem lætur mann bylta hugmyndum um eitthvað sem maður hélt að væri - raunveruleiki. Til verður nýr raunveruleiki. Ný ímynd.

Tökum frægt dæmi sem kom fram í bókinni Seven Habits of Highly Successful People.

Maður kemur inn í lest. Með tvö börn. Það er ókyrrð í þeim. Læti. En maðurinn, væntanlega pabbinn, sinnir þeim ekki. Leyfir þeim að ólátast í lestinni. Situr bara og þegir. Sinnulaus.

Annar maður ferðast með lestinni. Er orðinn pirraður á þessum sinnulausa föður. Lélegur faðir hugsar hann sér. Óþekktarangar. Uppeldið hefur mistekist. Þetta er hans raunveruleiki. Hans ímynd af ástandinu.

Að lokum þrýtur hann þolinmæði og segir við föðurinn hvort hann geti ekki haft taumhald á börnunum. Jú, segðir faðirinn. Þetta er sennilega rétt hjá þér. En ég er miður mín. Börnin í losti.

Við vorum að koma af spítalanum þar sem mamma þeirra var að deyja.

Fyrir manninn sem upplifði er þetta nýr raunveruleiki. Ný ímynd.

Það er ekkert eins og það lítur út fyrir að vera. Aldrei. Hvergi.

Nr. 13 | posted by: igor | 21.02.2006 | 21:04:47 | [+] |

Eins og Gísli Gunnarsson sagði: „Vísindin efa alla dáð.“ colgate

Nr. 14 | posted by: Kalli | 21.02.2006 | 21:37:42 | [+] |

Igor. Þú skilur mig.

Sumt efni er líka matreitt með það markmið að vera misleading og fólk túlkar hluti mismunandi eftir því hvaða upplýsingar það hefur og hvað það hefur góðan gagnagrunn til að vinna úr þessum upplýsingum.

Ég var mjög syfjuð þegar ég skrifaði þetta en þú náðir að útskýra hvað ég var að meina, fullkomlega! Og ég fer ekki ofanaf því að það er ekkert eins og það lítur út fyrir að vera. Aldrei. Hvergi.

Nr. 15 | posted by: anna | 21.02.2006 | 23:17:12 | [+] |

Auðvitað. Skil ég þig. Við erum á sama máli.

Nr. 16 | posted by: igor | 21.02.2006 | 23:24:13 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web